Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 9

Ægir - 2019, Blaðsíða 9
9 Aldrei verið létt að vinna í fiski Á löngum ferli í fiskvinnslunni segist Ragnheiður hafa upplif- að miklar breytingar. Í dag sé meira vélrænt og af sem áður var þegar þurfti að bera yfir 20 kílóa fiskbakka á höndum. Líkamlega erfiðið hafi minnk- að. „Störfin eru vissulega létt- ari hvað þetta varðar en það hefur samt aldrei talist létt að vinna í fiski. Það tekur líka á að vinna á snyrtilínu, sér í lagi er álag á axlir og skurðar- úlnliðinn þannig að líkamlega álagið er alltaf til staðar. En í snyrtilínunni sem við erum komin með núna höfum við stóla til að sitja á þannig að álagið á fætur er ekki eins mikið og áður. Það finnst mér mikill munur.“ Eitt af því sem tekið hefur breytingum í áranna rás er launafyrirkomulagið en á sín- um tíma var einstaklingsbón- uskerfið afnumið en hópbón- uskerfi tíðkast enn. Ragnheið- ur segir tekjumöguleikana hafa verið meiri þegar ein- staklingsbónusinn var og hét. „Mín tilfinning er sú að á þeim tíma hafi tekjurnar hlut- fallslega verið meiri en í dag. Ég tel að menn hafi samið af sér þegar bónusinn var færð- ur inn í tímakaupið en vissu- lega voru líka ókostir við ein- staklingsbónuskerfið. Þetta kerfi var mjög slítandi og sér í lagi fyrir þær konur sem voru að vinna á borði,“ segir Ragn- heiður. Handapatið virkar líka! Á vinnustað Ragnheiðar er nú um helmingur starfmanna- hópsins af erlendu bergi brot- inn. Hún segir erlendu starfs- mennina prýðisfólk sem margt hvert hafi búið lengi og starf- að í Eyjum. „Samskiptin ganga ágæt- lega. Við tölum saman ein- hverja útgáfu af ensku með pólsku eða rúmensku ívafi ef á þarf að halda. Það hefst fyr- ir rest að gera sig skiljanlega. Erfiðast er þegar um er að ræða fólk sem ekki talar neina ensku. En þá virkar handapat- ið líka vel,“ segir Ragnheiður og hlær. Hún segist fátt geta út á fiskvinnuna annað en að launakjörin mættu vera betri. „Þetta er vanmetið starf. Margir líta niður á fiskvinnsl- una almennt og þau viðhorf eru frekast áberandi hjá fólki sem hefur ekki kynnst því að vinna í fiski. Það verður að viðurkennast að fólk lítur meira upp til starfa þar sem kjörin eru betri því þegar allt kemur til alls þá ráða kjörin alltaf miklu um viðhorf til starfa. En ég hef notið þess að vinna í fiski og geri enn,“ seg- ir Ragnheiður. Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík ■ Séð yfir vinnslusalinn í Leo Seafood. Myndir: Óskar P. Friðriksson ■ Ragnheiður byrjaði að vinna í fiski í Þorlákshöfn árið 1977. Fiskvinnsla

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.