Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 27

Ægir - 2019, Blaðsíða 27
27 aftur af skutnum og í sjóinn. Það er varla hægt að lýsa því hvernig er að vera í svona brotsjó en ég hef stundum sagt að þetta hljóti að vera líkast því að vera í þeytivindu. Krafturinn í sjónum sópar manni til og frá, snýr manni og veltir um í sjórótinu. Strax í kjölfar fyrsta brotsins sem tók mig aftur af skipinu fór ég með útsoginu djúpt niður og mér fannst ég vera undir skipinu. Þegar ég var að krafla mig upp aftur kom næsta brot og dró mig aftur niður en eftir það náði ég að komast upp og draga andann áður en það þriðja reið yfir. Eftir þetta fannst mér brotin aðeins léttast, sem var vegna þess að ég var smám saman að mjakast upp í fjöruna. Sjálfsagt var það ómeðvitað en þegar brotin komu þá dró ég mig í hnút og hélt um höfuðuð því ég hugsaði með mér að ég yrði að reyna að forðast að lenda ut- an í hvössu grjótinu. Á endanum náðu svo björgunarsveitarmenn til mín í fjör- unni og komu mér á þurrt en því miður fórust þarna allir fimm félagar mínir í áhöfninni. Líkast til hefur það bjargað mér að flotgallinn hélt allan tímann og ég kom algjörlega ómeiddur úr þessum hrakningum. Gallarnir hjá félögum mín- um voru rifnir eftir barninginn en þegar slíkt gerist þá missa gallarnir mikið flot. Í þessum aðstæðum verður ótrúlega stutt milli lífs og dauða og í rauninni er algjör tilviljun að ég skyldi komast þarna lífs af,” lýsir Eyþór en þegar hann komst í hendur björgunarsveitarmanna í landi var liðin rösk klukkustund frá því bátur- inn hafði sent út neyðarkallið. Eina hugsunin að lifa af Eyþór segist ekki hafa fundið fyrir kulda fyrr en hann kom í björgunarsveitarbíl- inn. „Adrenalínið var í botni en fyrst og fremst hafði maður hugsað um að lifa af. Ég hafði ekki fundið fyrir neinum kulda fyrr en þarna. Stundin í björgunarsveit- arbílnum líður mér aldrei úr minni því þarna sat ég einn í myrkrinu, heyrði í talstöðvarsamskiptunum og gerði mér grein fyrir að alvarlegir atburðir væru að gerast. Ég hafði verið viss um að um að félagar mínir hlytu að koma heilir upp úr fjörunni líkt og ég en þarna áttaði ég mig að svo var ekki um alla. Smám sam- an kom svo í ljós að þarna höfðu allir fimm félagar mínir og góðir drengir far- ist,” segir Eyþór og skiljanlega tekur á að rifja þennan sorglega atburð upp. Farið var með Eyþór á sjúkrahúsið í Keflavík og þaðan fór hann með sjúkrabíl aftur til Grindavíkur eftir að hafa farið í gegnum læknisskoðun og verið klæddur í þurr föt. Eins og áður segir vonuðust skipverj- arnir á Eldhamri eftir að þyrla kæmi þeim til bjargar í tæka tíð en þegar hún loks kom frá Varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli var það um seinan. Þyrla Land- helgisgæslunnar var biluð á Ísafirði og var því ekki fáanleg á slysstað. „Ef þyrla hefði komið til okkar í tæka tíð þá hefði þetta ekki þurft að fara svona. Þarna fór flest úrskeiðið sem gat farið úrskeiðis, því miður,“ segir Eyþór en í kjölfar slyssins jókst umræða um þörfina á björgunarþyrlukaupum til að auka öryggi sjómanna. Áfallameðferð var ekki á þessum tíma skipulögð líkt og er í dag en Eyþór segir að þau hjón hafi unnið saman úr áfallinu. „Svona lagað tekur langan tíma en ég man lítið eftir fyrstu vikunum eftir slysið því ég var al- gjörlega dofinn. En svo líður tíminn og lífið heldur áfram.“ Langaði samt aftur á sjóinn Í kjölfar Eldhamarsslyssins voru haldin sjópróf og síðan málaferli sem Eyþór þurfti að ganga í gegnum vegna slyssins og segir hann að þau síðarnefndu hafi tekið mikið á. „Ég hygg að það hafi verið nauðsynlegt að fara í gegnum allt slysið í heild sinni með þessum hætti þar sem ég var einn til frásagnar um atburðar- rásina. Á vissan hátt gæti verið að það hafi verið ákveðin áfallahjálp fyrir mig að fara yfir atburðinn lið fyrir lið eins og þurfti að gera en þrátt fyrir allt er það svo að atburðurinn sækir aldrei á mig sem slíkur. Ég hef til dæmis aldrei vakn- að upp úr svefni með þessar minningar eða slíkt. En það er örugglega mjög ein- staklingsbundið hvernig menn takast á við áföll og vinna úr þeim. Mér hefur gengið það ágætlega.“ Eyþór segist sjálfur hafa farið að hug- leiða fljótt eftir Eldhamarsslysið að snúa aftur á sjóinn en segist í fyrstu hafa hik- að við að nefna þann möguleika við eig- inkonu sína. Þegar hann svo gerði það þótti henni það sjálfsagt ef hann treysti sér til. „Ég þekkti ekkert annað en sjó- mennskuna og langaði ekki að gera neitt annað. Langaði að fara á sjóinn aftur. Í janúar 1992 fór ég svo aftur á sjó á 100 tonna togbát sem hét Þröstur og ég man að í fyrstu siglingunni fórum við út úr innsiglingunni í Grindavík til að stilla kompásinn. Það var mjög skrítin tilfinn- ■ Mikil umræða varð í kjölfar Eldhamarsslyssins um nauðsyn þyrlukaupa til að auka öryggi sjómanna. Málið var rætt í þing- sölum strax í vikunni eftir slysið. ■ Eyþór var í áhöfn Hrafns Sveinbjarnarsonar GK III sem strandaði við Hópsnes í febrúar árið 1988.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.