Ægir - 2019, Qupperneq 18
18
Fjölskylduhátíðin Hátíð hafsins verð-
ur á sínum stað við Reykjavíkurhöfn
um sjómannadagshelgina en á henni
er lögð áhersla á fróðleik um hafið og
matarmenningu hafsins í bland við
skemmtiatriði. Í megindráttum hefur
Hátíð hafsins verið með þessu sniði
allt frá árinu 2002 en að henni standa
Faxaflóahafnir, Sjómannadagsráð og
HB Grandi. Með tíð og tíma hefur
Hátíð hafsins orðið að einn af stærstu
viðburðum í höfuðborginni ár hvert
en um 40 þúsund manns lögðu leið
sína á hafnarsvæðið um sjómanna-
dagshelgina í fyrra.
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla
aldurshópa
Aðal hátíðarsvæðið er á Grandagarði þar
sem viðburðir eru á stóru sviði bæði
laugardag og sunnudag. Þess utan er
mikið um að vera víðsvegar um svæðið,
bæði á Grandagarði, á athafnasvæði HB
Granda og á bryggjunum við höfnina.
Mikið er gert fyrir yngstu kynslóðina og
til að mynda er leiksvæði fyrir börn við
HB Granda, Ronja ræningjadóttir kemur í
heimsókn, boðið er upp á dorgveiði,
töframaðurinn Einar Mikael sýnir listir
sínar, andlitsmálun er í boði, Leikhópur-
inn Lotta sýnir, Lína Langsokkur lítur
við og þannig mætti lengi telja.
Meðal skemmtikrafta verða Emmsé
Gauti, Babies-flokkurinn, Matti Matt og
Hreimur og Sirkus sjóarar á stultum. Þá
taka félagar í Harmonikufélagi Reykja-
víkur nikkur sínur til kostanna og kitla
dansfætuna og Skólahljómsveit Austur-
bæjar tekur þátt í skrúðgöngu. Síðast en
ekki síst er hátíðardagskrá á sunnudeg-
inum þar sem sjómenn verða heiðraðir
og verður sjómannadagsmessa í Dóm-
kirkjunni að morgni sunnudags. Björgun
úr sjó verður einnig sýnd en mikilvægi
öryggismála sjómanna eru jafnan í kast-
ljósi um sjómannadagshelgina.
Bragðlaukarnir fá síður en svo hvíld
á Hátíð hafsins en fiskmarður verður
opinn í Granda Mathöll sem nú er eins
árs og sömuleiðis verður báða dagana
boði upp á fiskismakk við Grandagarð.
Sjómannadagurinn
Tugþúsundir sækja Hátíð hafsins
þétt dagskrá alla sjómannadagshelgina
■ Skrúðganga í tilefni dagsins.
■ Fiskasýningin vekur alltaf forvitni.
■ Björgun úr sjó sýnd.
■ Jafnan er þjóðlegt og hátíðlegt á
Grandagarði og við Reykjavikurhöfn
um sjómannadagshelgina. Myndir:
hatidhafsins.is