Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Síða 25

Ægir - 2019, Síða 25
25 „Í starfi mínu í dag kemur reynsla og þekking úr sjómennskunni að góðum notum og ég er þakklátur fyrir að búa að henni. Það stóð á sínum tíma ekki annað til en vera lengur í sjómennsk- unni en raunin varð en þrátt fyrir þau slys sem ég varð fyrir þá leið mér alltaf vel á sjónum. Ég fann aldrei til sjóhræðslu en hins vegar losnaði ég aldrei algjörlega við sjóveikina. Í dag sakna ég sjómennskunnar ekki en neita því ekki að það væri gaman að geta farið á bát hér út á Eyjafjörðinn í góðu veðri,“ segir Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri, sem kynntist því af eigin raun á sínum sjómannsferli hversu hættulegt starf sjómennskan getur verið. Hann bjargaðist úr tveimur skipsströndum og varð síðan fyrir alvarlegu slysi um borð í frysti- togara sem gerði að verkum að hann gat ekki lengur sótt sjóinn. Þá tók við nám í sjávarútvegsfræði og í fram- haldi starf hjá Fiskistofu en í dag býr Eyþór á Akureyri. Sjórinn togaði þrátt fyrir sjóveikina Eyþór er uppalinn sveitadrengur á sauð- fjárbúi í Austur-Húnavatnssýslu sem fór 19 ára gamall í fiskvinnu á vertíð í Grindavík. „Ég tók vetrarvertíðina, síld- ina um haustið og svo fór ég á sjó í eina vertíð. Eftir hana fór ég í land og hét því að gera þetta aldrei aftur. Fannst sjó- mennskan ömurlegt starf. Ég var bull- andi sjóveikur en samt fór það nú þann- ig ég var kominn aftur út á sjó eftir fá- einar vikur. Ég get ekki útskýrt hvað það er sem togar svona í mann út á sjó en þarna var ég búinn að kynnast kon- unni minni sem er úr sjómannafjölskyldu og kannski hafði það einhver áhrif að ég hélt áfram. Svo er sjómennskan líka gríðarlega sterk í samfélaginu í Grinda- vík en smátt og smátt fór ég að kunna að meta starfið. Til að tryggja mér möguleika til að stunda sjómennskuna árið um kring fór ég í kokkaríið, sem auðvitað gaf líka kvarthlut aukalega og var kærkomið fyrir ungan mann sem var að stofna fjölskyldu,“ segir Eyþór en hann réð sig sem kokk á Hrafn Svein- bjarnarson III.„Þegar þarna var komið var ég farinn að gera mér grein fyrir því að ég ætlaði að vera áfram á sjónum og ákvað því að fara í Stýrimannaskólann.“ Útgerð Hrafns Sveinbjarnarsonar III fékk endi í febrúar 1988 þegar báturinn strandaði við Hópsnes, austan Grinda- víkur. Eyþór fór síðan aftur á sjóinn á þann bát sem útgerðin fékk í staðinn og þaðan lá leið hans á togarann Gnúp í Grindavík en þar var aflinn saltaður um borð. „Við vorum með hausara og flatnings- vél um borð í Gnúpnum og í raun var aflinn settur í saltpækil. Þetta var skemmtilegt tímabil í sjómennskunni en ég veit ekki til þess að nokkur útgerð geri þetta í dag, líkt og Þorbjarnarskipin gerðu á þessum árum. Afkoman á saltinu var ágæt og auðvitað skipti alltaf miklu máli hvernig fiskaðist. Tekjurnar réðust af því,” segir Eyþór en hann fékk að kynnast ýmsum veiðiskap á sinni sjó- mannstíð; togveiðarfærum, netaveiði, rækjuveiði, síldveiði, loðnuveiði og fleiru. „Það var á þessum árum alltaf mikill ljómi yfir vertíðunum, mikill afli og vinna. Þegar komið var fram undir hrygningartímann var stutt fyrir okkur á Grindavíkurbátunum að sækja, kannski hálftíma stím í fyrstu trossu. Sannarlega mikið fiskirí en þá að sama skapi mikil vinna því samfara.“ Giftusamleg björgun þegar Hrafn III strandaði Mannbjörg varð þegar Hrafn Svein- bjarnarson III fór upp í fjöru við Hóps- nes en þá var báturinn á leið í land úr Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri, talar um ár sín í sjómennskunni og sjóslysin sem hann varð fyrir á ferlinum Ægisviðtalið ■ Eldhamar GK hét áður Hulda ÍS en báturinn var smíðaður árið 1988 og kom til Grindavíkur árið 1990. Sumarið 1991 var hann lengdur í Póllandi og var því í einum af fyrstu róðrunum þegar slysið við Hópsnes varð. Mynd: tímaritið Ægir ■ Forsíða Morgunblaðsins laugar- daginn 23. nóvember árið 1991 þar sem sagt var frá hinum hörmulega sjóslysi við Hópsnes þar sem fimm félagar Eyþórs í áhöfn Eldhamars fórust.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.