Ægir - 2019, Side 56
56
Tæknifyrirtækið Curio hlaut fyrr á
þessu ári 2,3 milljóna evra styrk frá
Evrópusambandinu til þess að þróa
áfram nýja vél sem sker klumbubeinið
af bolfiski. Tækið, sem þegar hefur
verið smíðað í frumgerð, stuðlar að
betri nýtingu afla, sparar verulega
mannafla og dregur úr kolefnisspori.
Áður hafði Curio hlotið styrk til sama
verkefnis frá norska FHF sjóðnum,
sem leit á verkefnið sem mikið fram-
faraspor og nýlega hlaut síðan fyrir-
tækið einnig styrk frá Tækniþróunar-
sjóði. Að sögn Elliða Hreinssonar,
framkvæmdastjóra Curio, hafa þessir
styrkir haft úrslitaáhrif á að hægt sé
að sinna þróun búnaðarins af krafti,
enda sé svona verkefni bæði mjög
tímafrekt og afar kostnaðarsamt.
Um er að ræða tölvustýrða klumbu-
skurðarvél fyrir h/g fisk (headed and
gutted), en mest er unnið af slíkum fiski,
ferskum eða uppþíddum, í Noregi, ann-
ars staðar í Evrópu og Bandaríkjunum .
Fram til þessa hafa klumbubeinin verið
skorin af fyrir flökun ýmist með hand-
skurði eða gamlir hausarar verið aðlag-
aðir og nýttir til verksins við illan leik
og með lélegri nýtingu .
Fiskvinnsluvélar Curio víða um
heim
Áhersla Curio er á
framleiðslu vélbúnaðar fyrir fisk-
vinnslur og hefur fyrirtækið hingað til
lagt höfuðáherslu á framleiðslu og sölu
þriggja gerða véla, fyrir bolfiskflökun,
hausun og roðdrátt, auk sérhæfðra
brýna fyrir þessar vélar . Fyrirtækið sel-
ur stærstan hluta sinnar framleiðslu
á erlenda markaði og eru Curio
vélar nú komnar í
vinnslur í mörgum
þjóðlöndum . Samhliða útflutningnum er
þó að sögn Elliða ávallt mikil áhersla
lögð á markaðinn hér heima, sölu vél-
búnaðar til fiskverkenda og þjónustu við
vélarnar .
Fyrirtækið er gott dæmi um vöxt
þjónustufyrirtækja í íslenskum sjávarút-
vegi en Curio hefur á 12 árum vaxið í að
vera með yfir 50 manns í vinnu og með
tvö dótturfélög erlendis í sölu og þjón-
Curio þróar byltingarkennda
klumbuskurðarvél
■ „Leiðarljós í okkar þróun er að auka hráefnisnýtingu og gæði afurðanna,“ segir
Elli Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio.
Nýja klumbuskurðarvélin
stuðlar að betri nýtingu,
sparar verulega mannafla og
dregur úr kolefnisspori.