Ægir - 2019, Page 103
103
Skipum er bannað að veiða með veiðarfærum sem
fest eru í botni eða dregin eftir honum, svo sem
netum, botnvörpum og þesslegum á svæðum þar sem
háspennusæstrengir liggja. Svæði það sem hér er átt við
er vanalega 200m belti hvoru megin sæstrengsins.
Á landtaksstöðum sæstrengja eru hringlaga spjöld sem
fest eru á stangir. Gerð merkjanna er sýnd hér fyrir ofan.
Þegar merki ber saman í lóðréttri línu, er skipið sem næst
því að vera yfir sæstrengnum eða á miðju bannsvæðisins.
Aldrei má reyna að losa skip við sæstreng með því að höggva strenginn í sundur. Það getur
valdið manntjóni vegna raflosts eða alvarlegum brunasárum.
Ef skip í nauð þarf að leggjast að akkeri á bannsvæði, þar sem sæstrengur liggur, eða skip
rekur á sæstreng, ber að draga akkerisfestina varlega inn.
Ef vart verður við að akkerið hefur fest á sæstreng, til dæmis þannig að drátturinn verður
stöðugt þyngri eða menn finna að akkerið rennur til, ber að slaka keðjunni varlega út aftur,
setja við hana dufl og losa hana frá skipinu ef mögulegt er. Slíkt ber að tilkynna til RARIK
án tafar.
Komi sæstrengur óvart upp úr sjó á akkeri, má reyna að losa hann af akkerinu með því
að bregða kaðli undir strenginn meðan akkerið er látið síga undan honum. Slíkt ber þó að
tilkynna réttum aðilum án tafar, þar sem strengurinn getur hafa skaddast við hnjaskið enda
þótt áverkar séu ekki sjáanlegir á ytra borði hans.
Sæstrengir
RARIK ohf. • Sími 528 9000 • www.rarik.is
AÐVÖRUN