Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 142. tölublað 108. árgangur
STEFNAN
TEKIN Á
AUSTURLAND
URÐU PENNA-
VINIR FYRIR
15 ÁRUM
ÞÝSKALANDS-
MEISTARI FJÓRÐA
ÁRIÐ Í RÖÐ
VERÐLAUNABÓK 28 SARA BJÖRK 27FERÐALÖG
AFP
Kína Lífleg viðskipti á Chaowai-
markaðinum í höfuðborginni Peking.
Ótti við að kórónuveira berist til
Kína með ferskum laxi eða laxa-
umbúðum veldur ekki teljandi
vandræðum hjá íslenskum eldis-
fyrirtækjum. Síðasta sendingin af
laxi sem fara átti með beinu flugi á
vegum DB Schenker til Kína sl.
sunnudag var dregin til baka á síð-
ustu stundu. Sendingin hefði verið
stöðvuð á flugvellinum og henni
eytt. Þá hafa laxeldisfyrirtækin
gert hlé á slátrun og verða því ekki
fyrir sömu áhrifum og mörg fyrir-
tæki í öðrum löndum. »4
Hættu á síðustu
stundu við að senda
laxinn til Peking
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Viðskiptavinum Icelandair hefur gengið illa að
fá endurgreitt frá flugfélaginu vegna aflýstra
flugferða. Í sumum tilfellum hefur enn ekki bor-
ist greiðsla þó að liðnir séu nokkrir mánuðir frá
því óskað var eftir endurgreiðslu.
Að sögn Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Icelandair, hefur tekið langan tíma
að afgreiða málin. Segir hún að niðurfellingar
flugfélagsins vegna heimsfaraldurs kórón-
uveiru hafi haft áhrif á hundruð þúsunda far-
þega.
Um þriðjungur umræddra farþega hefur ósk-
að eftir endurgreiðslu miða. Þá hefur meirihluti
þegið inneignarnótur eða fallist á að breyta dag-
setningum flugferða.
„Við þurftum að fella niður nær allt flug á
þessum tíma. Það er því ljóst að þetta hafði áhrif
á hundruð þúsunda farþega og þar af hefur
þriðjungur óskað eftir að fá miðana endur-
greidda. Það eru mörg útistandandi mál og það
hefur tekið langan tíma að afgreiða þau. Við
gerum allt sem við getum til að afgreiða þetta
eins fljótt og mögulegt er,“ segir Ásdís, sem að-
spurð kveðst ekki þekkja hvort kröfur einstakra
viðskiptavina hafi verið sendar í innheimtu.
Torsótt að óska eftir endurgreiðslu
Neytendasamtökin hafa fengið inn á borð til
sín mál viðskiptavina Icelandair, segir Breki
Karlsson, formaður samtakanna. Að hans sögn
hefur félagsmönnum að mestu gengið vel með
að breyta dagsetningum og fá inneignarnótur.
Fjöldi krafna er lúta að endurgreiðslu flug-
miða er þó enn útistandandi. „Við höfum kvart-
að yfir því við Neytendastofu og Icelandair að
þú getir með einum smelli fengið inneign en
þarft á sama tíma að vaða eld og brennistein til
að fá peninga til baka. Við þekkjum til þess að
fjöldi fólks hafa ekki fengið endurgreitt í nokkra
mánuði en auðvitað er það svo að við fáum yfir-
leitt slæmu fréttirnar enda er það í eðli okkar
starfsemi,“ segir Breki.
Spurður hvað sé til ráða fyrir viðskiptavini
sem ekki hafa fengið endurgreitt segir hann að
stefna verði félaginu eða setja kröfuna í inn-
heimtu. Hann viti til þess að einhverjir neyt-
endur hafi í síðustu viku íhugað að senda kröfu á
félagið í gegnum innheimtuþjónustu. „Sömu-
leiðis getur fólk stefnt en það er mjög íþyngj-
andi leið, sérstaklega í ljósi þess að það er eng-
inn ágreiningur uppi um kröfuna.“
Þriðjungur vill endurgreiðslu
Meirihluti viðskiptavina Icelandair hefur fallist á tilfærslu dagsetninga eða inneignarnótur Félagið
þarf að afgreiða hundruð þúsunda mála Hluti viðskiptavina beðið í mánuði eftir endurgreiðslu miða
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Minnihluti viðskiptavina flug-
félagsins hefur óskað eftir endurgreiðslu.
Breiðhyltingar nutu lífsins í góða veðrinu á
hverfishátíð á Bakkatúni við Arnarbakka í gær.
Foreldrafélög grunnskóla í Breiðholti héldu þar
þjóðhátíð í samvinnu við íþróttafélögin í hverf-
inu. Fjöldi fólks sótti skemmtunina. Börnin
höfðu að ýmsu að hverfa, gátu hoppað í kastala
eða feykt upp sápukúlum. Mannlífið blómstraði í
garðinum þar sem nú standa 6.500 túlípanar í
blóma. Hefðbundin dagskrá í miðborginni var
ekki fjölsótt í ár enda var fólk hvatt til að fagna
17. júní frekar heima í hverfunum og á minni há-
tíðum í sínum bæjarfélögum. »2 og 11
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Dregið í sápukúlur á hverfisskemmtun
„Það getur ekki gengið að sveit-
arfélög sem reka hjúkrunarheimili
hafi lagt í þetta hundruð milljóna
króna á undanförnum árum og geti
ekki rekið þau lengur,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Nokkur sveitarfélög hafa ákveðið
að búast til að slíta samningum við
ríkið um rekstur hjúkrunarheimila
vegna þess að daggjöld ríkisins
duga ekki fyrir rekstri þeirra, sam-
kvæmt þeim kröfum sem gerðar
eru. Hefur verið mikill halli á sum-
um þeirra.
Aldís segir mikilvægt að meta
hvaða þjónustu eigi að veita á þess-
um heimilum og hvað hún kosti.
Stofnaður hefur verið starfshópur
til að fara yfir það. »6
Slíta sig frá rekstri
hjúkrunarheimila