Morgunblaðið - 18.06.2020, Page 8

Morgunblaðið - 18.06.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT BYGGINGAKERFI Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is Bestu undirstöðurnar fyrir: SÓLPALLINN SUMARHÚSIÐ GIRÐINGUNA NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is Fáðu Dvergana senda heim að dyrum DVERGARNIR R Kolbrún Baldursdóttir, borgar-fulltrúi Flokks fólksins, skrifaði um umferðaröryggi í borginni í pistli á blog.is. Þar sagði hún m.a.: „Víða í borginni er umferðaröryggi ábótavant og að- stæður hættulegar. Strætisvagnar stoppa á miðri götu til að hleypa farþegum í og úr sem getur skapað mikla slysahættu. Dæmi eru um að strætisvagnar stoppi á miðju hringtorgi. Hreyfi- hömluðum er ætlað að leggja bíl- um sínum í götur sem hallast og ekki er gert ráð fyrir eldri borg- urum í miðbænum enda aðgengi þar að verða aðeins fyrir hjól- andi. Bílastæðahús eru af ýmsum orsökum vannýtt. Nýlega var grjóti sturtað á miðjan Eiðs- granda sem getur skapað stór- hættu.“    Samgöngumál í borginni erumikil sorgarsaga og þessar ábendingar Kolbrúnar eiga því miður við rök að styðjast.    Eftirfarandi ábendingar henn-ar mættu einnig verða meirihluta borgarstjórnar um- hugsunarefni: „Ljósamálin eru enn í ólestri. Á 100 stöðum í borginni eru úrelt ljós. Snjall- stýrð götuljós myndu bæta mikið. Að aðskilja andstæðar akreinar með vegriði er oft hægt að koma við. Sömuleiðis ætti að byggja göngubrýr alls staðar þar sem það er hægt. Flest slysin verða þegar götur eru þveraðar og þá langoftast þegar hjólreiðamenn hjóla þvert yfir götu/gangbraut.“    Ef borgaryfirvöld legðu sér-viskuna og öfgarnar til hlið- ar mætti bæta mjög samgöngur og öryggi í borginni. Kolbrún Baldursdóttir Athyglisverðar ábendingar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vegahandbókin, sem út kom á ís- lensku í ár, er í fyrsta sæti á met- sölulista Eymundssonar. Bókin kem- ur út annað hvert ár á íslensku og ensku til skiptis, en hún hefur ekki setið á toppi metsölulistans í nokkur ár, að sögn Hálfdánar Örlygssonar, útgefanda bókarinnar. Hann segist hafa fundið fyrir mikl- um áhuga á bókinni meðal Íslend- inga, enda aukin áhersla nú lögð á ferðalög innanlands og því ekki ama- legt að bókin skuli koma út á íslensku þetta árið. Með árunum hefur landinn í auknum mæli nýtt sér forrit eins og Google Maps, til þess að rata á áfangastaði, og hafa vegabækur því eflaust oft beðið lægri hlut í huga neytenda. Hálfdán segir þó að bókin snúist um mun meira en að rata: „Þú getur kannski ratað með slík- um forritum en þú færð ekki þennan fróðleik sem bókin veitir,“ segir hann. Bókinni var ekki síður vel tekið af landanum þegar hún kom fyrst út ár- ið 1973. „Þegar bókin kom út árið 1973, á sama ári og Vestmannaeyjagosið varð, þá varð ekki bara eldgos í Eyj- um, með hrauni og öllu tilheyrandi. Það varð líka eldgos með bókinni. Hún sló í gegn strax á fyrsta ári og seldist upp um leið,“ segir Hálfdán. Bókin inniheldur fróðleik um 3.000 staði á Íslandi, þar á meðal helstu náttúruperlur landsins, auk upplýs- inga um menn, verur og vætti, að sögn Hálfdánar. „Fjölskyldur í landinu hafa margar alist upp við að fara í ferðalög. Einn keyrir og annar les úr bókinni og hin- ir hlusta. Hvers virði er að ferðast um þetta fallega land ef maður veit ekki hvað neitt heitir eða hvaða sögur það hefur að geyma?“ Vegahandbókin efst á metsölulista  Ekki setið á toppnum í nokkur ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vegahandbókin Hálfdán Örlygsson gaf handbókina fyrst út árið 1973. „Ég þekki humarinn vel eftir að hafa verið á slíkum veiðum í níu vertíðir,“ segir Kjartan Brynjar Sigurðsson, sjómaður í Þorláks- höfn. Í gær var við veitingastaðinn Hafið bláa, sem er við vestursporð Óseyrarbrúar, afhjúpað listaverkið Humar við hafið. Kjartan er höf- undur þess; stórs stykkis sem er unnið úr plasti og lagt á járngrind. Þetta er eftirlíking af humri, en veiðar og vinnsla á honum skiptu löngum miklu fyrir byggðarlögin á þessum slóðum, Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Veitingastaðinn eiga þau Hannes Sigurðsson og Þórhildur Ólafs- dóttir. Listaverk er við fiskverk- unarstöð þeirra í Þorlákshöfn og nú er bætt um betur. Kúnstgrip- urinn er á áberandi stað við fjöl- farna leið og má gera ráð fyrir að margir hafi þar viðkomu í framtíð- inni. sbs@mbl.is Humar við hafið er stórt listaverk  Afhjúpun við Óseyrarbrúna í gær Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjávarlist Kjartan Brynjar Sigurðsson, til vinstri, og Hannes Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.