Morgunblaðið - 18.06.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is
Hlíf – fréttatilkynning
Til tónleikagesta og velunnara Sumartónleika
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar
Sem listrænn stjórnandi Sumartónleikaraðar
Listasafns Sigurjons Ólafssonar til margra ára sé ég
mig knúna til að tilkynna ykkur að sumartónleikaröðin
verði ekki haldin í ár, eins og undanfarin 31 ár.
Ástæðan er ekki Covid -19 faraldurinn heldur
áhugaleysi þeirra, sem taka ákvarðanir um starfsemi
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.
Hlíf Sigurjónsdóttir
fiðluleikari
Pawel Bartos-
zek, borgar-
fulltrúi Við-
reisnar, hefur
verið endurkjör-
inn forseti borg-
arstjórnar. Í
kosningu á fundi
borgarstjórnar á
þriðjudagskvöld
hlaut Pawel 22
atkvæði, en einn borgarfulltrúi
skilaði auðu. Hann kveðst þakk-
látur fyrir stuðninginn:
„Ég er nokkuð ánægður með
þetta þar sem forsetar borgar-
stjórnar hafa oft verið kosnir ein-
ungis með atkvæðum meirihlut-
ans,“ segir hann.
Stærsta viðfangsefni næstu
tveggja ára sé að bæta starfs-
andann í borgarstjórn. „Átök eru
eðlileg en ég held að við gætum
verið jafngóð í átökum og haft and-
rúmsloftið örlítið vinsamlegra á
köflum.“
Pawel tók við embætti forseta
borgarstjórnar fyrir ári af Dóru
Björt Guðjónsdóttur borgarfulltrúa
Pírata, en það fyrirkomulag var til-
kynnt þegar nýr borgarmeirihluti
var kjörinn í júní 2018. „Mig langar
líka að þakka öllum fulltrúum í
meiri- og minnihluta fyrir að hafa
lagt hönd á plóg þegar kórónu-
veirufaraldurinn skall á. Störf
borgarstjórnar og minnihluta
gengu vel fyrir sig.“
Pawel endurkjörinn forseti borgarstjórnar
Pawel Bartoszek
Sólin skein á borgarbúa á þjóðhátíðardaginn
17. júní í gær. Hátíðarhöld voru með nokkuð
breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Skipuleggjendum víðs vegar í borginni
tókst þó að bjóða upp á ýmiss konar skemmtun
en fylgja um leið þeim takmörkunum sem í gildi
eru vegna sóttvarnaráðstafana.
Samkomutakmarkanir settu samt sem áður
óumdeilanlega mark sitt á hátíðarhöld sem
voru nokkru lágstemmdari en alla jafna. Á
Austurvelli voru hátíðarhöld með fremur hefð-
bundnu sniði. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra ávarpaði gesti, sem voru talsvert færri en
undanfarin ár, og að venju heiðraði forseti Ís-
lands minningu Jóns Sigurðssonar. Edda Björg-
vinsdóttir leikkona var fjallkona Reykjavíkur-
borgar þetta árið og flutti ljóð eftir Þórdísi
Gísladóttur í tilefni dagsins. Undir kvöld iðaði
mannlífið í borginni og fjölmennt var á veit-
inga- og öldurhúsum miðborgarinnar.
Morgunblaðið/Íris
Leikur Það var kátt á hjalla á Klambratúni á þjóðhátíðardaginn. Veðrið lék við borgarbúa og stemning var góð.
Prúðbúin Þjóðargersemin Edda Björgvinsdóttir var fjallkona Reykjavíkur.
Listir Sirkuslistafólk Hringleiks sýndi listir sínar á Klambratúni.
Söngur Ingó veðurguð skemmti gestum með brekkusöng í Breiðholti.Líf Margt var um manninn á Laugaveginum fram á kvöld.
Lágstemmd-
ur 17. júní