Morgunblaðið - 18.06.2020, Page 18

Morgunblaðið - 18.06.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 ✝ Jóhann LíndalJóhannsson, fæddist 25. nóv- ember 1930 í Bol- ungarvík, hjón- unum Jóhanni Sigurðssyni, f. 5.8. 1891, d. 27.8. 1932, og Línu Dalrós Gísladóttur, f. 22.9. 1904, d. 14.12. 1997. Jóhann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 23. apríl 2020. Systkini Jóhanns eru Guð- munda, f. 20.3. 1922, d. 12.3. 2005, Gísli, f. 29.8. 1923, d. 9.9. 1989, Guðbjörg Kristín, f. 3.12. 1925, d. 3.6. 1926, Guðbjörg, f. 29.4. 1927, Óskar, f. 25.5. 1928, Áslaug f. 29.9. 1929, d. 29.3. 2009, Alda, f. 9.3. 1935, d. 1.3. 2011, Herbert, f. 29.8. 1936, d. 5.11. 1985, Sigurvin, f. 13.8. 1937, d. 25.12. 2012, Sveinn Viðar, f. 5.12. 1939. Jóhann lauk sveinsprófi í raf- virkjun árið 1951 og prófi frá rafmagnsdeild Vélskóla Íslands árið 1954 og framhaldsnámi í há- spennutækni í Stokkhólmi og Málmey í Svíþjóð árin 1954-1956. Hann lauk lögreglunámskeiði í Reykjavík 1959 og flugmanns- prófi 1968. Þorsteinsson, f. 5.8. 1952. Börn þeirra eru þrjú. Eftir nám starfaði Jóhann sem verkstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins, síðan sem stöðvarstjóri Reiðhjallavirkjunar og rafveitu- stjóri í Bolungarvík 1958-1965. 1965 fluttist fjölskyldan til Ytri- Njarðvíkur þar sem hann starfaði sem rafveitustjóri og síðan rekstr- arstjóri háspennusviðs hjá Hita- veitu Suðurnesja til starfsloka. Jóhann Líndal var virkur í fé- lagsmálum og átti frímúrara- reglan hug hans allan. Hann gekk í frímúrararstúkuna Njálu á Ísafirði í febrúar 1959 þar til hann flutti suður til Njarðvíkur og varð einn stofnenda frímúr- arastúkunnar Sindra og gegndi þar öllum helstu ábyrgðar- stöðum og varð stólmeistari stúk- unnar. Hann hlaut heiðursmerki frímúrarareglunnar. Hann var einn stofnenda Junior Chamber og sat í fyrstu stjórn á Suður- nesjum 1968. Hann var formaður Lionsklúbbs Njarðvíkur 1974 og var í stjórn Íscargo frá 1979, for- maður Karlakórs Keflavíkur 1969-1971 og 1979. Var einn stofnenda Flugfélagsins Þórs og stjórnarformaður þar frá 1968- 1972. Einnig var hann í stjórn Sambands íslenskra rafveitna 1969-1971 og formaður Félags rafveitustjóra 1974-1975. Útför Jóhanns fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 18. júní 2020, og hefst athöfnin kl. 14. Jóhann gekk í hjónaband með Elsu Dóru Gestsdóttur þann 28.4. 1956 og eignuðust þau fimm börn saman en fyrir átti Jóhann dótt- urina Agnesi með Ingibjörgu Ingi- mundardóttur, f. 1.5. 1935. Börn Jóhanns Líndals og Elsu eru Hreinn Líndal Jóhannsson, f. 12.8. 1956, eiginkona Anna Dóra Lúthersdóttir, f. 8.4. 1956, börn þeirra eru sex. Jóhann Gestur, f. 7.1. 1959, eiginkona Svava Tyrfingsdóttir, f .2.4 1960. Börn þeirra eru fjög- ur. María Líndal, f. 5.8. 1961, fyrrv. eiginmaður Þórir Jónsson, f. 20.2. 1964. Dætur þeirra eru þrjár. Elías, f. 21. okt. 1962, eig- inkona, Guðlaug Helga Sigurð- ardóttir, f. 19.4. 1966. Synir þeirra eru þrír. Lína Dalrós Jó- hannsdóttir, f. 13.3. 1969, eig- inmaður Gunnlaugur Þór, f. 19.2. 1968. Börn þeirra eru þrjú. Agnes Jóhannsdóttir, f. 25.3. 1953, eiginmaður Bessi Halldór Í dag kveð ég minn elskulega föður sem var mér minn helsti vin- ur og klettur í lífinu. Af honum lærði ég mikið og sem barn sat ég gjarnan með honum þegar hann var að dytta að hinu og þessu í skúrnum. Vandvirkur var hann mjög og hafði ég mikla unun af því að fylgjast með honum vinna. Á sama tíma sagði hann mér sögur og þreyttist ég ekki á að hlusta á hann segja frá því þegar hann var ungur í „Víkinni“ þar sem hann ólst upp. Hann kunni ógrynni af skemmtilegum vísum og sagði svo skemmtilega frá. Veiðitúrarnir urðu margir með foreldrunum og stoltust var ég þegar við pabbi áttum stöng sam- an. Þetta voru mikil forréttindi og gæðastundir. Ósjaldan sátum við á kvöldin í stofunni á Hraunsvegin- um á uppvaxtarárum mínum og spjölluðum og urðu samtölin að jafnaði alvarleg, fróðleg og skemmtileg í senn. Þúsundþjala- smiður var hann og ávallt tilbúinn að hjálpa eða kenna mér og lærði ég mikið af því að vera í kringum hann, því þolinmóður var hann og virtist eiga auðvelt með að kenna mér. Eftir að ég fór sjálf að búa var hann alltaf tilbúinn að rétta hjálp- arhönd og skipti engu hve stór eða smá verkin voru, alltaf var hann kominn til að aðstoða. Þakka ég honum það í dag að ég get tekið til hendinni heima við og mun ég varðveita borvélina frá honum eins og dýrmætan geimstein. Nokkrum sinnum tókum við japanska lagið Sukiyaki saman en eftirminnilegast var þegar ég var nýflutt heim frá Japan og að sækja þau eftir JC-skemmtun í Bláa lónið. Mjög líklega hafði hann verið veislustjóri þetta kvöld því ósjaldan var hann beðinn um það. Þegar ég gekk inn heyrði ég salinn klappa hann upp og hrópa „Sukiyaki“ í sífellu. Öllum að óvör- um, þar á meðal mér, þar sem ég stóð í dyrunum í úlpunni, kallaði hann mig upp á svið og vildi að ég tæki lagið með sér. Ekki gat ég neitað honum og við tókum lagið saman algjörlega óæft. Svona var hann pabbi minn. Hann var skemmtilegur maður. Gott var að heimsækja þau mömmu hvort sem var heim, í bú- staðinn eða til Spánar. Þau tóku alltaf svo vel á móti manni. Sam- heldin hjón voru þau og gerðu nánast allt saman. Hafði ég mikla unun af því að fylgjast með þeim vinna saman og í Staðarhverfinu leið þeim vel og féll sjaldan verk úr hendi, hvort sem verið var að gera að fiski, svíða hausa eða lapp- ir eða dytta að bústaðnum. Einnig leið þeim mjög vel í hús- inu sínu á Spáni og eyddu þau þar nokkrum mánuðum i senn ár hvert til fjölda ára og eignuðust þar marga góða vini. Elsku pabbi minn. Ég kveð þig með söknuði og þakka fyrir allar dýrmætu stundirnar með þér í gegnum lífið. Þín dóttir María. Elsku pabbi minn. Ég er svo heppin að hafa átt þig sem pabba. Þú varst alltaf svo létt- ur í lund, með endalausa þolin- mæði og einstaklega ljúfur. Ég man ekki eftir að þú hafir skamm- að mig eða hækkað röddina við mig þó svo ég hafi örugglega átt það skilið nokkrum sinnum. Þegar ég var barn vildi ég vera með þér öllum stundum. Þú gast gert allt skemmtilegt, að taka börkinn af appelsínu og útkoman varð karl úr berkinum. Það var falleg silfurskál með loki í glugganum á skrifstof- unni þinni heima og þú sagðir mér að kíkja í hana og gá hvort eitthvað væri í henni og viti menn, þar var nammi. Í mörg ár birtist alltaf eitt- hvað í skálinni góðu af og til. Ég reyndar lét þig vita ef mér fannst líða of langur tími á milli, þá varstu fljótur að kippa því í liðinn. Ég fékk að koma með þér í ýmsar út- réttingar. Fórum að ná í sand á kerrunni eða fórum á vörubíl upp í staðarhverfi þegar þið voruð að koma ykkur fyrir þar með sumar- húsið ykkar. Það var fastur liður að fara með pakka og jólakort á að- fangadagsmorgun og þá var auð- vitað komið við í sjoppunni og keypt filma í myndavélina og flass- kubbur. Ég fékk alltaf að bjóða vinkonu með mér í Staðarhverfið (Grindavík) og þar varstu í essinu þínu. Þú sýndir okkur hreiður, við skoðuðum skeljar, kuðunga og fundum krítarsteina í fjörunni, fór- um út á sjó á trillunni ykkar og brölluðum ýmislegt. Þú sagðir mér margar sögur frá því þú varst lítill, þín barnæska var ekki auðveld. Mamma þín varð ekkja 28 ára með 6 börn og þú þá yngstur 2 ára og þú þurftir að verða fullorðinn fljótt. Ég á auðvitað jafn margar góð- ar minningar frá unglings- og full- orðinsárunum. Við Gulli heimsótt- um ykkur reglulega með krakkana í bústaðinn og svo til Spánar þar sem þið voruð búin að koma ykkur vel fyrir. Þú talaðir um að einn helsti kostur manneskju væri að vera góður í mannlegum samskiptum og geta sett sig í spor annarra. Maður gat alltaf leitað til þín og mömmu og þið alltaf tilbúin að hjálpa ef þess þurfti. Þið mamma voruð einstaklega samrýnd hjón sem áttu 64 ára gott hjónaband, voruð miklir vinir og vinmörg enda mjög notalegt að vera í kringum ykkur. Ég veit að það eru ekki auðveldar stundirnar hjá mömmu án þín en við reynum að passa upp á hana fyrir þig. Elsku pabbi, takk fyrir allt og guð geymi þig á nýjum stað. Þín Dalrós. Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast með nokkrum orðum elskulegs tengdaföður míns, Jó- hanns Líndals, en hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 23. apríl. Það var fyrir 35 árum sem ég kom inn í fölskylduna, þegar við Elli vorum að byrja saman. Ég var þá 19 ára gömul og nokkuð stress- uð yfir því að fara að hitta tilvon- andi tengdafólkið mitt. En stress- ið var óþarfi, því strax við fyrstu kynni líkaði mér vel við Jóhann. Í ræðu Jóhanns í brúðkaupi okkar Ella sagði hann að ég væri þeim sem ein af dætrunum og þannig leið mér alltaf í návist hans. Jóhann var mikill húmoristi og hafði gaman af því að segja sögur og segja góða brandara. Hann sagði skemmtilega frá öllu og var alltaf jákvæður og hress. Einnig var Jóhann góður söngvari og hafði hann sérstaklega gaman af því að syngja japanskt lag sem heitir Sukiyaki og söng hann það á japönsku, nú síðast fyrir Helga og Elsu okkar, stuttu áður en hann fór á spítalann. Þegar fjölskyldan hittist á jólum og öðrum tyllidögum var nauðsyn- legt að ná mynd af öllum barna- hópnum. Á meðan flestir sögðu „sís brosa“ sagði Jóhann við krakkana „segið kúkur og piss“ og það þurfti ekki að segja það nema einu sinni því þetta þótti krökkunum fyndið og brostu sínu breiðasta. Þegar við Elli vorum að byggja árið 2000 var Jóhann manna fyrst- ur til að koma og hjálpa. Var mættur eldsnemma á morgnana og fór með þeim síðustu á kvöldin. Hann gaf þeim yngri ekkert eftir, þá 70 ára gamall. Einnig var Elsa dugleg að færa vinnumönnum veitingar, þær voru yfirleitt af dýrari gerðinni hjá henni. Jóhann og Elsa voru mjög sam- rýnd hjón og nutu þess að vera saman í sumarbústaðnum sínum í Grindavík og húsinu sínu á Spáni. Fyrir þó nokkru fór heilsu Jó- hanns að hraka mikið. Minnið fór að gefa sig og annar heilsubrestur fylgdi. Í nóvember sl. var bílprófið tek- ið af honum og þá sá maður hvað allur kraftur í honum fjaraði smám saman út. En það lýsir húmornum hans best þegar hann sagði mér að þeir hefðu gleymt að taka af honum flugmannsprófið. Hann væri alveg fær um að fljúga flugvél en ekki að keyra bíl. Nú í apríl sl. var Jóhann lagður inn á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja þar sem hann gat ekki verið lengur heima. Hann lá inni í 3 vikur og enginn mátti heimsækja hann. Það var erfitt fyrir alla að mega ekki koma til hans og erfitt fyrir fullorðið fólk að skilja þetta og þessa fordæmalausu tíma þjóð- félagsins. Við fengum að vera með honum þrjá síðustu sólarhringana og lést hann í faðmi fjölskyldunnar á sólríkum sumardeginum fyrsta. Nú ertu okkur farinn frá. Elsu þína við munum að gá. Minningar um þig ei gleymast. Uns aftur við hittumst, ég guð minn bið þig að geyma. Hafðu þakkir fyrir allt. Þín tengdadóttir, Guðlaug Sigurðardóttir. Jóhann Líndal Jóhannsson ✝ Bergrós Þor-grímsdóttir fæddist í Reykjavík 16. janúar 1959. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 6. júní 2020. Foreldrar henn- ar voru Þorgrímur Þórðarson, f. 1934, d. 2009, og Jónína G.B. Thorarensen, f. 1935, d. 2015. Bræður Berg- rósar eru Pétur, f. 1960, Haukur Þór, f. 1963, og Bjarni, f. 1966. Bergrós giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sveini Sveinssyni, f. 25. ágúst 1949, þann 26. september 1981. For- eldrar hans voru Sveinn Guð- mundsson, f. 1924, d. 1986, og Þuríður Sigurjónsdóttir, f. 1920, d. 2008. Börn þeirra eru Sveinn Þorgrímur Sveinsson, f. 7. júní 1980, giftur Margréti Ragn- arsdóttur, f. 1980. Börn þeirra eru Kristófer Ragnar, f. 2004, Birkir Snær, f. 2007, og Andrea, f. 2012. Rakel Rós Sveinsdóttir, f. 18. júní 1984, í sambúð með Hrafni Stefánssyni, f. 1982. Börn þeirra eru Bjarki, f. 2013, og Vera, f. 2017. Pétur Hafliði Sveinsson, f. 17. júní 1989. Fyrir átti Sveinn Ölvi Styr Sveinsson, f. 4. jan- úar 1975, í sambúð með Þuríði Sveins- dóttur, f. 1981. Börn þeirra eru Daníel Máni, f. 2018, og Lovísa Sól, f. 2020. Bergrós ólst upp í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem foreldrar hennar höfðu byggt sér heimili. Hún var í sveit á Hrauni í Ölfusi nokkur sumur sem barn og bar þangað ætíð sterkar taugar. Eftir landspróf starfaði hún meðal annars í þvottahúsi nöfnu sinnar og frænku en fór svo ut- an til Englands sem au-pair árið 1977 í eitt ár. Árið 1981 byggðu Bergrós og Sveinn sér hús að Bjargi 2 í Mosfellsbæ og bjuggu þar síðan. Hún vann um tíma á skrifstofu BM Vallár og síðar hjá Osta- og smjörsölunni en frá árinu 2002 vann hún hjá Orf líf- tækni þar til hún hætti vegna veikinda í lok árs 2016. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 18. júní 2020, klukkan 13. Mig langar að kveðja mágkonu mína til fjörutíu ára með nokkrum orðum. Hún hafði gaman af allri tónlist og elskaði að dansa. Á þess- um árum kynntist ég henni sem glaðlyndri og hláturmildri konu, sem lét sér einkar annt um fjöl- skyldu sína. Ég get aldrei full- þakkað henni hversu góð hún var við mömmu mína, tengdamóður sína, öll þau ár sem þær áttu sam- leið. Ég vil þakka þér, Rósa mín, fyrir öll þau samskipti sem við átt- um allan þennan tíma. Sigríður Huld Sveinsdóttir. Elsku Rósa mín, mínar fyrstu minningar um þig eru af þér mjög ungri. Þá bjuggu mamma þín og pabbi í Bústaðahverfinu og ég var í Réttarholtsskólanum búandi í Árbænum. Það voru strjálar strætóferðir og í vondum veðrum fékk ég iðulega að gista hjá ykkur. Þá passaði ég ykkur Pétur bróður þinn stundum þegar foreldrar ykkar skruppu frá. Við erum reyndar systradætur og var mamma þín hún Nína frænka allt- af í miklu uppáhaldi hjá mér. Skömmu seinna urðum við svo ná- grannar, ég hafði byrjað búskap minn á Steinastöðum ofan við Rauðavatn í litlu parhúsi og flutt- uð þið fjölskyldan við hliðina á okkur á meðan foreldrar þínir voru að byggja í Hlaðbænum. Á uppvaxtarárum þínum fylgd- ist ég alltaf með þér enda í góðu sambandi við mömmu þína. Á þeim tíma var svolítið langt á milli okkar í árum, en eftir að við báðar urðum fullorðnar styttist á milli okkar og tókum við upp notalegt frænkusamband – sem hefði mátt vera miklu meira. Þér var margt til lista lagt, mikill hagyrðingur og ég held mikið upp á kvæðabálkinn sem þú samdir til mín þegar ég varð sextug svo ég tali ekki um frábæran kveðskap sem þú fluttir okkur Jónsa á ættarmóti á Breiða- bakka. Þú ert búin að vera mikil hetja í gegnum þessi erfiðu veikindi þín, enda ótrúleg kona. Elsku Rósa mín, þakka þér okkar góðu kynni og góður Guð veri með fjölskyld- unni þinni. Guðlaug Steingrímsdóttir. Kær vinkona er fallin frá. Kynni okkar Rósu voru í gegnum mennina okkar sem ólust upp í ná- grenni við Reyki. Sumir frændur og aðrir nágrannar. Mikil sam- skipti voru þá meðal krakkanna í hverfinu og milli margra þeirra hefur haldist vinskapur alla tíð. Við Rósa náðum vel saman en framan af var ekki eins mikill samgangur, þar sem allir voru að vinna úti frá og fjölskyldan og uppeldi barna í forgrunni. Rósa var mikil fjölskyldumanneskja og reyndi að vera heima við fyrstu árin með börnunum og vann þá frekar seinni partinn þegar hinir voru komnir heim. Hún var dug- leg til vinnu hvort sem var að halda heimilinu fínu, vinna í garð- inum eða vinna hvar sem er. Hún var mikil smekk manneskja og hafði gaman af því að hafa fínt í kringum sig og gera garðinn fín- an. Svo var hún líka svo skemmti- leg. Alltaf í góðu skapi og gat grín- ast með hitt og þetta. Þegar veikindin herjuðu á Rósu og hún þurfti að hætta að vinna fórum við að hittast oftar. Nú sakna ég þess að geta hringt fyrri part dags og spurt hvort ekki sé búið að hella á könnuna. Rósa barðist hetjulega við veikindi sín í meira en þrjú ár og alltaf var þetta alveg að koma. Baráttuviljinn var mikill en því miður hafði hún ekki betur gegn þessum vágesti. Við þrenningin, Rósa, Þyrí og ég reyndum að hittast nokkuð oft eftir að Rósa veiktist og þegar heilsan leyfði hjá henni. Þá var farið á kaffihús og jafnvel sýning- ar eða bara setið heima yfir kaffi- bolla. Rósa var mikil listunnandi bæði á myndlist og tónlist. Hún naut þess vel. Þetta voru yndisleg- ar stundir sem gátu dregist á langinn ef dagskráin var ekki stíf hjá okkur. Eitt var Rósu vel til lista lagt en það var að setja saman vísur. Vissi ég að hún var að setja saman vísur til barnabarnanna þegar þau áttu afmæli og hafa margir notið þess, þar á meðal ég sem fékk eina á síð- asta afmælinu mínu. Þetta var einstaklega flott hjá henni og gaman að eiga þetta eftir hana. Það er sárt að sjá á eftir ynd- islegri vinkonu alltof fljótt. Hún átti svo margt eftir að gera. Trú- lega hefur hennar verið þörf ann- ar staðar. Elsku Nenni, Sveinn Þorgrím- ur, Rakel, Pétur og fjölskyldur. Við Gunnar sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur og megi guð styrkja ykkur á erfiðri stund og áfram. Kristín Davíðsdóttir. Það var fyrir hartnær átján ár- um er ég fyrst kynntist Rósu er hún gekk til liðs við okkur hjá ORF Líftækni. Þetta var á upp- Bergrós Þorgrímsdóttir  Fleiri minningargreinar um Jóhann Líndal Jóhanns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Deildartungu, Birkigrund 63, lést 13. apríl og fór útför hennar fram í kyrrþey 30. apríl. Minningarathöfn verður haldin í Langholtskirkju mánudaginn 22. júní klukkan 13. Jón Finnbjörnsson Erla S. Árnadóttir Guðrún Hrönn Jónsdóttir Ragnar Steinn Ólafsson Birna S. Jónsdóttir Einar Ingi Davíðsson barnabarnabörn Ragnheiður Jónsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu okkar, RAGNHEIÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Séstakar þakkir færum við fólkinu á deild B7 á Borgarspítalanum. Magnús Hjálmarsson Halldóra Magnúsdóttir Lára Magnúsardóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.