Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 ✝ GuðmundurWilliam Vil- hjálmsson fæddist í Edinborg í Skot- landi 24. maí 1928. Hann lést á Vífils- stöðum 26. maí 2020. Foreldrar hans voru Kristín Thors húsmóðir, f. 16.2. 1899 á Akra- nesi, d. 27.7. 1972, og Guðmundur Vil- hjálmsson, forstjóri Eimskipa- félags Íslands, f. 11.6. 1891 á Undirvegg í N-Þingeyjarsýslu, d. 26.9. 1965. Systkini Guð- mundar voru Thor, rithöfundur, f. 12.8. 1925, d. 2.3. 2011, kvænt- ur Margréti Indriðadóttur fréttastjóra, f. 28.10. 1923, d. 18.3. 2016, Helga Alice, hús- móðir og ritari, f. 15.8. 1926, d. 15.8 2019, gift Magnúsi Magn- ússyni, fyrrverandi prófessor, f. 19.10. 1926, Margrét Þorbjörg húsmóðir, f. 29.7. 1929, d. 8.3. 2018, gift Sverri Norland for- stjóra, f. 8.1. 1927, d. 26.6. 2007, og Hallgrímur, f. 26.11. 1930, d. 7.4. 1945. Eiginkona Guðmundar var Guðbjörg Jónína Herbjörns- dóttir Vilhjálmsson, fædd á 1948, stundaði nám í lögfræði og frönsku við HÍ, lauk embættis- prófi í lögfræði 1953, öðlaðist hdl.-réttindi 1958 og stundaði áfram frönskunám á vegum Alliance Française. Guðmundur stundaði sjómennsku á sumrin á námsárunum, m.a. á Goðafossi og Gullfossi. Hann starfaði hjá skipaafgreiðslum í Kaupmanna- höfn, Hamborg, Antwerpen og New York 1953-54, var inn- kaupastjóri hjá Eimskipafélagi Íslands 1954-62, innkaupastjóri hjá Loftleiðum hf. frá 1962 og síðan hjá Flugleiðum hf. 1974- 1990. Hann var forstöðumaður eldsneytisdeildar Flugleiða 1990-1996 en þau viðskipti gátu skipt sköpum um afkomuna þegar umrót var mikið í heims- viðskiptum. Guðmundur var frjór og skapandi þátttakandi í menningarlífinu. Hann var frumherji í listrænni ljós- myndun og tók aftur upp þann þráð á efri árum með tilstyrk tölvunnar. Hann sótti myndlist- arnámskeið og málaði af mikilli ástríðu, tók þátt í samsýningum og hélt einkasýningar. Hann var stofnfélagi í Kammermúsík- klúbbnum árið 1957 og stjórn- arformaður hans í áratugi til 2013. Hann var sæmdur fálka- orðunni 17. júní 1998 fyrir störf sín í þágu tónlistar. Útför Guð- mundar fer fram frá Langholts- kirkju í dag, 18. júní 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Breiðavík í Barða- strandarsýslu 22.3. 1930, d. 26.5. 2018. Börn þeirra eru: 1) María Kristín, f. 20.8. 1966, hús- móðir í Danmörku. Fyrri maki Maríu Kristínar var Birg- ir Sigurþórsson, tæknifræðingur í Reykjavík. Börn þeirra: a) Sara María lögfræðingur í Árósum, f. 22.4 1987, maki hennar er And- ers Grau og eiga þau þrjár dæt- ur, og b) Vilhjálmur William hagfræðingur í Kaupmanna- höfn, f. 26.10. 1989, maki hans er Elena Deskoska. Síðari maki Maríu Kristínar var Torben Machon, f. 30.4. 1969, raftækni- fræðingur. Þau skildu. Börn þeirra: c) Nína Júlía, f. 13.4. 1996, maki hennar Peter Jørg- ensen, og d) Martin, f. 24.4. 2000. 2) Guðmundur Thor, f. 6.10. 1967, matreiðslumaður. Guðmundur fæddist í Edin- borg en fluttist með foreldrum sínum til Íslands tveggja ára gamall og ólst upp við Landa- kotstún og á Bergstaðastræti. Hann lauk stúdentsprófi frá MR Nú hefur Mundi kvatt, síðastur fimm systkina af Bergstaðastræt- inu, úr húsi afa og ömmu sem var svo risastórt í endurminningunni. Systkinin fjögur sem komust á fullorðinsár bjuggu öll í Voga- hverfinu með fjölskyldum sínum – Mundi og Lillý í tólfhæðablokk- inni í Sólheimum, nærri bókasafn- inu. Systkinin voru samrýnd og samgangur góður í frændgarðin- um, vinsælt að taka stóru vörulyft- una upp á sjöundu hæð og njóta viðmóts og veitinga, fá jafnvel að pútta á stofugólfinu eða horfa af svölunum yfir byggðina sem þroskaðist hægt og bítandi úr byggingasvæði í hverfi með rætur og sögu. Og stundum vorum við nokkra daga eða jafnvel vikur húsgestir hjá Munda og Lillý þeg- ar foreldrarnir brugðu sér til út- landa. Þau Mundi og Lillý voru glaðlynd og hláturmild, og snemma farin að segja okkur – og af okkur – alls konar sögur svo við fengum okkar sess í sagnaheimi fjölskyldunnar; þau voru öruggur og órjúfanlegur hluti af bernsk- unni og lífinu æ síðan. Lillý snögg til svars og röggsöm en Mundi hægur og háttvís í bragði. Þau voru saman í öllu nema kannski hugsanlega í Loftleiða- og seinna Flugleiðastarfi Munda þar sem hann bar ábyrgð á olíukaup- um, og hann talaði æ síðan um Loftleiðaævintýrið með ljóma í augunum sem bestu árin sín í vinnunni. Þar naut hann sín sem lögfræðingur og kannski hafði hann líka styrk af sínu listræna innsæi þegar kom að því að spá í markaðina. Mundi var alla tíð fullur af listþrá, skapandi í hugsun og með eindæmum listnæmur. Hann stundaði ljósmyndun á yngri árum af alvöru, tók þá myndir sem um margt voru nýstárlegar og vitn- uðu um sérstakt og þroskað form- skyn. Upp úr miðjum aldri tók hann aftur upp þráðinn við mynd- sköpun; sótti námskeið í myndlist og málaði af ástríðu, hélt sýningar og tók þátt í samsýningum. Í ell- inni fór hann svo að leika af hug- kvæmni með ljósmyndir fyrri ára í tölvunni þannig að úr urðu lit- skrúðugar og fjörugar myndir sem hann sýndi nokkrum sinnum við góðar undirtektir, síðast þegar hann var orðinn níræður. En mest yndi hafði hann af því að hlusta á tónlist og lifa og hrærast í um- hverfi klassískrar tónlistar; hann komst ungur í tæri við djass í New York, sótti klúbbana og keypti plötur þeirra meistara sem þá voru að ryðja sér til rúms. Átti saxófón en lánaði hann og hafði ekki fyrir því að rukka hann til baka. Hann var stofnfélagi Kammermúsíkklúbbsins árið 1957, stjórnarformaður áratugum saman, skipulagði ótalmarga tón- leika með félögum sínum þar af brennandi áhuga. Hann var list- unnandi af því tagi sem sífellt er að leitast við að skapa réttar að- stæður fyrir hið gullna augnablik, hann þráði fegurð og fann hana á slíkum stundum. Eftir að Lillý hvarf inn í sína birtu fyrir fullt og allt var hann vængbrotinn og gat eiginlega aldrei á heilum sér tekið. Hún kom svo og sótti hann Munda sinn sama daginn og hún hafði sjálf kvatt þetta jarðlíf tveimur árum fyrr. Megi minningarnar ylja ykk- ur, elsku Mæja og Mundi Thor, börnum og barnabörnum, og öll- um þeim sem fannst vænt um hann og sakna nú vinar í stað. Örnólfur og Guðmundur Andri Thorssynir. Þegar við hugsum nú til Munda, móðurbróður okkar, kem- ur Lillý vitaskuld strax upp í hug- ann. Mundi og Lillý, órjúfanleg heild í lífi og dauða. Síðan emm-in tvö, músík og myndir. Mundi og Lillý fylgdust sam- hent að á milli staða, frá Bakkabúð á Lindargötu, í Sólheima, Espil- und í Garðabæ og síðan loks að Hrísmóum í sama bæ, á þriðju hæð í lyftulausu húsi þar sem þau sögðust halda sér í þjálfun með því að ganga stigana. Að því kom þó að Mundi seldi þá íbúð og fluttist á Herjólfsgötu í Hafnarfirði. Hann fékk þar útsýni yfir sjóinn og þreyttist aldrei á því að horfa út á hann enda sigldur maður. Lillý var orðin langt leidd af alzheimersjúkdómnum, komin á Sólvang og andaðist 26. maí 2018. Og nú, tveimur árum síðar, er Mundi einnig farinn frá okkur og þar með öll systkinin yndislegu af Bergstaðastræti 75. Við minn- umst þeirra ávallt í hjarta og huga. Og að sjálfsögðu genginna maka þeirra, Lillýjar, Margrétar I. og Sverris, föður okkar. Þegar Mundi lét af störfum hjá Flugleiðum þurfti hann ekki að kvíða því að hafa ekkert fyrir stafni. Þar komu emm-in tvö sterklega til sögunnar. Músíkin var allt um kring og Mundi eld- hugi í að vinna að framgangi henn- ar sem hlustandi og konserthald- ari. Þar var Kammermúsík- klúbburinn að sjálfsögðu miðdepillinn. Djassinn fangaði einnig Munda. Þau Lillý bjuggu um hríð í NY og þar mátti fara á klúbba þar sem djassstjörnurnar léku við hvern sinn fingur. Síðan myndlistin. Hann tók frábærar ljósmyndir, vann falleg málverk, hafði mjög næma litaskynjun, og hanga allnokkur þessara verka uppi í híbýlum okkar. Loks sam- einaði hann ljósmynd og málverk með því að taka gamlar litskyggn- ur sínar og teygja þær og toga í myndvinnsluforriti. Ekki höfum við tölu á myndlistarsýningunum sem hann hélt. Við rituðum fyrir tveimur árum minningargrein um Lillý þar sem við gerðum grein fyrir samheldni þeirra og því hversu góð þau voru við okkur öll, systkinabörn Munda. Óþarfi er að endurtaka þau skrif hér en nauðsynlegt að ítreka þakklæti okkar. Mundi og Lillý hófu að stunda golf í byrjun sjöunda áratugar lið- innar aldar þegar fáir iðkuðu þann leik. Mundi dró pabba með sér upp í Grafarholt og þrátt fyrir mótþróa í byrjun hóf Sverrir Nor- land að leika golf og fann þar áhugamál sitt nr. eitt, þökk sé Munda. Mundi bjó í Hafnarfirði í rúm tvö og hálft ár. Sjónin var orðin slæm, glákan herjaði á hann en snillingurinn María Soffía augn- læknir bjargaði öðru auganu með aðgerð. Fætur voru fúnir og lík- aminn almennt orðinn þreyttur eins og von er þegar menn eru komnir á tíræðisaldur. Við öll systkinabörnin og aðrir gerðum það sem við gátum til að létta Munda lífið. Að lokum fékk hann heilablæðingu, var fluttur á Vífils- staði og andaðist þar 26. maí síð- astliðinn, tveimur dögum eftir af- mæli sitt, og nákvæmlega tveimur árum eftir að Lillý kvaddi þennan heim. Mundi, vinur vors og blóma, hafðu þökk fyrir að hafa verið svo stór og góður hluti af lífi okkar. Guðmundi Thor og Maríu Krist- ínu sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Kristín, Jón og Halla. Mér er í fersku minni þegar ég sá Guðmund Vilhjálmsson fyrst. Guðmundur W. Vilhjálmsson Það var á upphafstónleikum Kammermúsíkklúbbsins árið 1957 er hann ávarpaði tónleika- gesti og bauð þá velkomna til þess að hlýða á hina „fögru kammer- músík“ eins og hann orðaði það. Hann hafði þá ásamt mági sínum, Magnúsi Magnússyni eðlisfræð- ingi, og fleirum, stofnað klúbbinn með fulltingi Björns Ólafssonar fiðluleikara og Árna Kristjánsson- ar píanóleikara, sem stýrðu tón- listarflutningi klúbbsins fyrstu ár- in. Fáa grunaði þá að þetta yrði upphafið að meira en sex áratuga óslitnu tónleikahaldi sem Guð- mundur leiddi í meira en hálfa öld með óbilandi áhuga og eldmóði og síst grunaði mig að ég ætti eftir að kynnast honum og eignast í hon- um traustan vin. Þegar ég tók sæti í stjórn klúbbsins voru þar fyrir, auk Guð- mundar, Þórarinn Guðnason læknir, Jakob Benediktsson, for- stöðumaður Orðabókar Háskól- ans, og verkfræðingarnir Runólf- ur Þórðarson og Einar B. Pálsson en þeim tókst að skipuleggja starf stjórnarinnar þannig að hver og einn gengi fumlaust að sínu verki. Ef hægt væri að segja að Einar væri heilinn í stjórninni þá var Guðmundur hjartað en hann myndaði með ljúfmennsku sinni góð og náin tengsl við flytjendur og aðra sem að málum komu. Þeir voru óþreytandi að hvetja fólk til þess að gerast félagar í klúbbnum og víst er að þeir sem hlýddu kall- inu létu sig ekki vanta á tónleika áratugum saman og voru kjarninn í tryggum félagahópi sem varð stjórninni hvati til að halda þessu áhugastarfi áfram. Þegar ákveða þurfti dagskrá hvers vetrar kall- aði Guðmundur stjórnina til fund- ar á heimili sínu, lagði fram mót- aða dagskrá ásamt kostnaðar- áætlun og hafði undirbúið allt svo vel að varla þurfti annað að ræða en niðurröðun tónverka og tryggja að ekki vantaði verk eftir Beethoven á dagskrána! Þá var slegið á létta strengi og sest að veglegu kaffiborði í boði Guð- mundar og Lillýjar en hún stóð sem klettur við hlið manns síns og studdi hann í einu og öllu. Þau nutu þess að fara á alls konar tón- leika og sóttu aðra listviðburði af kappi. Guðmundur var hógvær maður og hlýr, með ríka kímnigáfu en jafnframt þrautseigur og fylginn sér ef þurfti. Hann var alla tíð með opinn huga og hrifnæmur, hafði í sér listrænan streng og málaði bæði með pastel- og vatns- litum. Síðustu árin vann hann með tölvutækni óhlutbundin verk úr ljósmyndum sem hann hafði tekið um ævina. Hann hélt nokkrar sýningar á verkum sínum og veittist mér sú ánægja að setja upp með honum tvær síðustu sýn- ingar hans. Eftir að Guðmundur treysti sér ekki til að aka langar leiðir tókum við hjónin hann og Lillý nokkrum sinnum með á Sumartónleika í Skálholti og Guð- mund einan eftir að Lillý var ekki lengur ferðafær. Það voru ógleymanlegar stundir og nutum við öll hvers augnabliks í þeim ferðum. Við Maggý erum full þakklætis fyrir vináttu þessara öndvegis- hjóna og umhyggju þeirra í okkar garð. Stjórn Kammermúsík- klúbbsins minnist Guðmundar með þökk fyrir úthald og elju í þágu tónlistarinnar og við sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Helgi Hafliðason. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SELMA EGILSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu 3. júní síðastliðinn. Útför fer fram frá Stórólfshvolskirkju föstudaginn 19. júní klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Kirkjuhvols eða Skógræktarfélag Rangæinga. Eyvindur Kristín Auður Yngvi Karl Lilja Sólrún Ingibjörg Guðmunda Ólöf Guðrún og fjölskyldur Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, sonar, tengdasonar, bróður og mágs, LÚÐVÍKS LÚÐVÍKSSONAR, Strandaseli 11, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi 22. maí. Pála Kristín Bergsveinsdóttir Ívar Örn Lúðvíksson Kristófer Páll Lúðvíksson Lúðvík Lúðvíksson Steinunn J. Kristófersdóttir Sigurlaug Pálsdóttir Bergsveinn Þorkelsson Sigríður Jónatansdóttir Valgarður V. Lúðvíksson Berit Willysdóttir Eide G. Arna Lúðvíksdóttir Guðbrandur Elí Lúðvíksson Fatima Fahmi Lea Valdís Bergsveinsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamamma, amma og langamma, SVANHILDUR INGVARSDÓTTIR Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Klettahrauni 5, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 4. mars. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 25. júní klukkan 15. Sveinn Þorkell Guðbjartsson Katrín Sveinsdóttir Kristján Rúnar Kristjánsson Hildur Dís Kristjánsdóttir Þorgeir Albert Elíesersson Sveinn Rúnar Þorgeirsson Svana Lovísa Kristjánsdóttir Andrés Garðar Andrésson Bjartur Elías Andrésson stúlka Andrésdóttir Hinn ástkæri og lífsglaði eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÞÓRÐUR GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Plettenberg Bay í Suður-Afríku 11. júní. Minningarathöfn auglýst síðar. Drífa Sigurbjarnardóttir Guðlaug Dís Þórðardóttir David Bond Kristín Þórðardóttir Anthony Blewitt Sæmundur Þórðarson Trianne Imelda barnabörn og barnabarnabörn Guðrún Sæmundsdóttir Sjöfn Sæmundsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG HALLDÓRA BIRGISDÓTTIR frá Stokkseyri, Reykjavíkurvegi 52B, Hafnarfirði, lést á líknardeildinni í Kópavogi 2. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Alexander Hallgrímsson Ingunn Alexandersdóttir Gísli Guðjónsson Arnór Alexandersson Halldóra Alexandersdóttir Einar Skaftason Bryndís Alexandersdóttir Birgir Alexandersson Ásgerður M. Þorsteinsdóttir og barnabörn Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.Minningarkort áhjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.