Morgunblaðið - 18.06.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 18.06.2020, Qupperneq 32
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins heldur sumar- tónleika sína í Langholtskirkju í kvöld kl. 20. Herdís Mjöll Guðmundsdóttir leikur á þeim hinn margfræga fiðlukonsert eftir Jean Sibelius. Herdís stundar nám við Oberlin-tónlistarháskólann í Bandaríkjunum og er kennari hennar þar Sigurbjörn Bernharðsson. Hljómsveitin frumflytur einnig nýtt verk eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson sem kallast A B C H og er tilbrigði við nafnið Bach og einnig verður flutt sinfónía nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Stjórnandi á tón- leikunum er Gunnsteinn Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins skipa yfir 60 nemendur úr tónlistarskólum á höfuðborgar- svæðinu, LHÍ og erlendum tónlistarháskólum. Fiðlukonsert Sibeliusar á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ari Skúlason, hagfræðingur í hag- fræðideild Landsbankans og for- maður starfsmannafélags bankans, byrjaði snemma að hugsa til efri ár- anna, hóf nám í húsasmíði 2013 og tók sveinsprófið í liðinni viku. „Ég held áfram að vinna mína vinnu en horfi fram á það að hætta vegna ald- urs eftir tvö til þrjú ár. Ég verð von- andi sæmilega hress og starfshæfur í mörg ár enn og þá er gaman að geta unnið við smíðar í frístundum.“ Hagfræðingurinn segir að fyrir sjö árum hafi hann sagt við sjálfan sig að hann þyrfti að fara að læra eitthvað gagnlegt. Hann upplýsir að hann hafi lengi smíðað hitt og þetta, staðið í innréttingum fyrir fjölskyld- una, dyttað ásamt öðrum að sumar- bústöðum bankans og þar fram eftir götunum. Þar sem eiginkonan hafi kennt í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti og hann því þekkt til í skól- anum hafi hann ákveðið að taka nokkra kúrsa í húsasmíði „til þess að læra réttu handtökin“ eins og hann orðar það. „Ég byrjaði þannig en ekki leið á löngu þar til gamalreyndur kennari kom til mín og sagði að þetta væri ekki nóg, ég yrði að klára þetta.“ Í kjölfarið hafi hann grafið upp stúd- entsprófið frá 1974 og fengið það metið en tekið þá kúrsa sem upp á vantaði til þess að verða húsa- smiður. „Ég hef dundað við þetta í rólegheitum í sjö ár. Ætlaði að út- skrifast í fyrra en áttaði mig ekki á aðsókninni, var of seinn að sækja um að fara í lokaáfangann og missti þá af lestinni.“ Góð blanda Lokaverkefnið var að gera líkan af þaki, svonefndu valmaþaki, og fólst það í því að búa til þaksperrur á 20 klukkutímum. Nemendur fengu teikningu og notuðu reglustiku, blýant, sög, hefil og sporjárn. „Ekki mikið meira,“ segir Ari. Langur vegur er á milli vinnu á fjármálamarkaði og húsasmíði. Ari bendir á að í samkomubanninu vegna kórónuveirufaraldursins hafi hann verið með starfsstöð heima sem starfsmaður Landsbankans. Á sama tíma hafi hann unnið við að standsetja íbúð fyrir dóttur sína í nágrenninu. „Ég vann stundum bara hálfan daginn í Landsbank- anum og var alveg búinn sem hag- fræðingur um hádegið. Þá fór ég að smíða og var ferskur sem smiður. Um kvöldið var ég orðinn þreyttur sem smiður en ferskur sem hag- fræðingur á ný.“ Smíðarnar liggja vel fyrir Ara og þær gefa honum mikið rétt eins og hagfræðin. „Það er mjög gaman að vinna með tré og ég hef alltaf verið heillaður af því,“ segir hann og bæt- ir við að hagfræðin og smíðarnar falli vel hvort að öðru, því þetta séu svo ólíkar greinar. „En þegar ég fer á eftirlaun ætla ég ekki að fara að vinna sem húsasmiður. Ég ætla ekki að taka meistaraprófið heldur læt þetta duga. Hins vegar er alltaf gaman að ljúka því sem að er stefnt og ég hef lært margt í náminu, kann að beita sporjárni og svo framvegis.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Húsasmiður Ari Skúlason, hagfræðingur í Landsbankanum, með sveinsstykkið, líkan af svonefndu valmaþaki. Húsasmiður í hjáverkum  Hagfræðingurinn Ari Skúlason hugsar til framtíðar FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Natasha Anasi og liðsfélagar hennar í Keflavík hefja leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu, Lengjudeildinni, á sunnudaginn kemur gegn Völsungi á Húsavík. Keflvík- ingar féllu úr efstu deild síðasta sumar eftir stutt stopp en fyrirliðinn Natasha, sem lék sína fyrstu A- landsleiki fyrir Ísland í mars á þessu ári, ítrekar að liðið sé reynslunni ríkara eftir erfitt sumar í úrvalsdeildinni. Markaskorarinn Sveindís Jane Jónsdóttir er horfin á braut og hefur liðið þurft að breyta um leikstíl vegna þessa en Natasha er þrátt fyrir það brött. »26 Keflvíkingar ætla sér að stoppa stutt við í Lengjudeildinni ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.