Morgunblaðið - 23.06.2020, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 146. tölublað 108. árgangur
VORU BEST
Í ANNARRI
UMFERÐ NÝ KRÝSUVÍKURKIRKJA
VAR MIKIÐ
FYRIR PÖNK
OG LÆTI
VERKLOKUM FAGNAÐ 11 MENNING 28ÍÞRÓTTIR 26
Sýna Icelandair áhuga
Fjárfestar erlendis frá íhuga að leggja flugfélaginu til fé í væntanlegu útboði
hér innanlands og höfum ekki haft
frumkvæði að því að tala við fjárfesta
erlendis frá. Þátttaka erlendra aðila
kemur þó alveg til greina,“ segir Bogi
og bætir við að félagið eigi í reglu-
legum samskiptum við stærstu hlut-
hafa flugfélagsins. „Við höfum verið
að ræða við þá sem eru stærstir í okk-
ar hluthafahópi. Við höfum haft frum-
kvæði að því og erum í reglulegu sam-
bandi við þá,“ segir Bogi.
Ljóst er að áður en af hlutafjárút-
boði verður þarf Icelandair að finna
lausn á kjaradeilu flugfreyja. Þá þarf
að ljúka samningum við fjölda hag-
aðila. Að sögn Boga miðar viðræðum
við lánardrottna og aðra hagaðila
ágætlega. „Þetta eru flóknar viðræð-
ur og margir mótaðilar. Þetta þokast
áfram,“ segir Bogi sem kveðst að-
spurður ekki geta tjáð sig um hvort
flugfélagið hafi fengið vilyrði fyrir
umbreytingu skulda frá einhverjum
viðkomandi lánardrottna.
Segir hann að félagið vinni nú hörð-
um höndum að því að vera vel í stakk
búið fjárhagslega þegar flugumferð í
heiminum tekur að ráði við sér. „Það
veit enginn hvernig spilast úr þessu.
Við búum okkur undir að þetta geti
tekið langan tíma að ganga að fullu til
baka. Allir okkar innviðir eru tilbúnir
og við erum því klár að stökkva af stað
á hverjum tíma. Það er mjög jákvætt
að létt var á takmörkunum til og frá
Íslandi um miðjan júní og jukum við
strax við framboðið. Þannig munum
við vinna áfram og getum bætt í þegar
aðstæður bjóða upp á,“ segir Bogi.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Forsvarsmenn Icelandair hafa fundið
fyrir áhuga erlendra fjárfesta í að-
draganda hlutafjárútboðs flugfélags-
ins. Hefur félagið þó ekki haft frum-
kvæði að slíku samtali. Þetta segir
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair. Að hans sögn miðar vinna fé-
lagsins við að sækja fé í framan-
greindu útboði til innlendra fjárfesta.
„Við höfum verið með einbeitinguna
Hjólreiðahópurinn Team Rynkeby á Íslandi
gerði sér ferð til Bessastaða í gær til að afhenda
Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, treyju
fyrir hönd hópsins. Team Rynkeby saman-
stendur af 2.100 hjólreiðamönnum frá um 57
löndum, sem hjóla á hverju ári frá Danmörku til
Parísar og safna fé fyrir börn með alvarlega
sjúkdóma. Keppninni í ár var hins vegar frestað
og hjólar hópurinn því innanlands í byrjun júlí.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Buðu Guðna í hópinn
Verkís mun sjá um óháða rýni á
hönnun og framkvæmdum vegna
Fornebubanen, stærsta neðan-
jarðarlestarverkefnis í Noregi í
seinni tíð. Er áætlaður heildarkostn-
aður um 225 milljarðar króna.
Magnús Skúlason, viðskiptastjóri
og verkfræðingur hjá Verkís, segir
það sérlega ánægjulegt fyrir Verkís
að hafa fengið tækiværi til að vinna
við þetta risaverkefni.
Hlutur Verkís sé töluverður og
hafi aukist eftir því sem lengra hef-
ur liðið frá útboðinu. Á næstu sex ár-
um verða 8-10 starfsmenn Verkís að
jafnaði í þessu, flestir hér á landi en
einnig unnið í samstarfi við dóttur-
félag Verkís í Noregi.
Við höfum ekki séð mikið af
stórum verkefnum hér á landi síð-
ustu ár, en Norðmenn hafa sett auk-
inn kraft í jarðgangagerð, vegagerð
og byggingar. Verkefnum okkar í
Noregi hefur fjölgað töluvert og nóg
verið að gera hjá dótturfélagi
okkar,“ segir Magnús. »8
Verkís tekur þátt í
risaverkefni í Noregi
Noregur Risastórt jarðlestarverkefni er
að fara af stað við Fornebu-flugvöllinn.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég myndi ekki búast við stórum
skjálfta á Húsavíkur-Flateyjar-
misgenginu í þessari hrinu, eins og
hún hefur verið. Þetta er fyrst og
fremst opnun á beltinu sem liggur
norður frá mynni Eyjafjarðar. Hef-
ur skjálftavirkni færst norður eftir
sigdalnum og ef það koma stórir
skjálftar þar veldur það minna
álagi á mannfólkið í landi,“ segir
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur.
Hann telur mestar líkur á að
þessi opnun haldi sig á þessu belti.
Fari ekki í austur eins og gerðist í
hrinunni á árinu 2012, nema eitt-
hvað annað komi til, og heldur ekki
til vesturs. Hann bendir í þessu
sambandi á að allt frá Kröflueldum
á áttunda áratugnum hafi opnun
verið meiri á austurhluta Tjörnes-
brotabeltsins, norður af Öxarfirði
og í áttina að Grímsey og Kolbeins-
ey. „Nú virðist manni, miðað við
skjálftana 2012 og aftur núna, að
opnun sé að færast meira í Eyja-
fjarðarálinn. Maður býst ekki við að
þessir virkilega stóru skjálftar sem
ekki tengjast opnun heldur þver-
gengisbjögun verði við þessar að-
stæður,“ segir Ragnar. »4
Ljósmynd/Unnur Sæmundsdóttir
Mökkur Töluverð skriða féll úr Hvanndalabjargi í jarðskjálftanum á laugar-
dagskvöld. Myndin var tekin úr Hrísey og sýnir mökkinn eftir hrunið.
Býst ekki við stórum skjálfta nú
Ragnar Stefánsson telur að jarð-
skjálftarnir haldi sig við Eyjafjarðarál
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Gögn sem Meniga hefur tekið
saman fyrir Morgunblaðið sýna að
neysla Íslendinga á veitingahúsum
og skyndibitastöðum virðist vera að
ná sér vel á strik eftir að hafa tekið
mjög skarpa dýfu meðan kórónu-
veiran gekk yfir landið. Enn virðast
færri viðskipti eiga sér stað en á
sama tímabili í fyrra en hver og einn
neytandi virðist kaupa mat og drykk
fyrir hærri fjárhæð í hvert sinn. Sér-
fræðingur hjá Meniga segir veður-
far virðast spila talsvert inn í þegar
neysluhegðunin sé skoðuð. »12
Veitingamarkaður-
inn að taka við sér