Morgunblaðið - 23.06.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.06.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Snorri Másson „Ég er bara mjög ánægð. Það var mjög góð mæting og virk umræða og skoðanaskipti, eins og alltaf,“ sagði Guðbjörg Pálsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í samtali við mbl.is í gærkvöldi, en þá var lokið kynningarfundi félagsins á miðl- unartillögu ríkissáttasemjara. „Hjúkrunarfræðingar hafa miklar og góðar skoðanir á kjaramálum sínum,“ sagði Guðbjörg. Bætti hún við að félagsmenn hefðu verið með margar spurningar um efni tillög- unnar, en fundurinn stóð yfir í tæpa tvo klukkutíma. Verkfalli hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu, sem skella átti á í gærmorgun, var afstýrt í fyrradag þegar Aðalsteinn Leifs- son ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu og vísaði afmörk- uðum þáttum í launalið deilunnar um leið til gerðardóms þriggja að- ila, sem sáttasemjari mun skipa. Annar fundur í dag Vegna samkomutakmarkana verður annar kynningarfundur haldinn í dag, auk þess sem hon- um verður streymt á lokuðum vef hjúkrunarfræðinga fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta. At- kvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkissáttasemjara hefst svo á morgun, miðvikudag, og stendur fram á laugardag. Samþykki hjúkrunarfræðingar tillöguna munu önnur atriði samn- ingsins, sem þegar hefur náðst sátt um, taka þegar gildi. Guðbjörg sagði í samtali við mbl.is fyrir kynningarfundinn að menn hefðu áttað sig á því hversu illa verkfallið hefði bitið og þess vegna hefði þessi niðurstaða fengist. „Þegar allir sáu að það stefndi í verkfall voru málin klár- uð af ábyrgð, bæði af okkar hálfu og ríkisins, en einnig ríkissátta- semjara, sem setti fram þessa óvenjulegu tillögu,“ sagði Guð- björg. „Það var algerlega ljóst hve mikilvægir hjúkrunarfræðingar eru í þessu kerfi og hvaða alvar- legu afleiðingar það hefði haft ef til verkfalls kæmi.“ Sýna af sér ábyrga afstöðu Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar ríkisins, sagðist í gær binda vonir við að allir að- ilar myndu samþykkja miðl- unartillögu ríkissáttasemjara um kjarasamning ríkisins við hjúkr- unarfræðinga. „Með þessari leið sýna hjúkrunarfræðingar ábyrga afstöðu og afstýra verkfalli en fyrirgera ekki kröfu sinni,“ sagði Sverrir í samtali við mbl.is. „Krafa hjúkrunarfræðinga nýtur vafans og ríkið er reiðubúið að leggja þetta svona upp til að afstýra verkfallinu og þar með fer þetta í slíkan farveg að þriðji aðili tekur ákvörðun um málið.“ Að sögn Sverris voru umræddir afmarkaðir þættir launaliðar, sem vísa á til gerðardóms, aðeins einn hluti af stóra samhengi samnings- ins. „Allt annað, sem er meira en minna, er orðið samkomulagsatriði á milli samningsaðila. Báðir aðilar eru sáttir við meirihluta samn- ingsins og ég held að við séum sammála um að þær breytingar sem við höfum þegar náð saman um skipti miklu máli fyrir heil- brigðiskerfið og séu góðar breyt- ingar fyrir hjúkrunarfræðinga,“ segir hann. Sverrir segir þau atriði sem náðst hafi sátt um vera „tíma- mótabreytingar“ um vinnutíma og mikilvæg atriði varðandi starfsum- hverfi hjúkrunarfræðinga. Trún- aður ríkti hins vegar um tillög- urnar og það væri því félags hjúkrunarfræðinga að kynna þær. Virk umræða um tillögu sáttasemjara  Atkvæðagreiðsla hjúkrunarfræðinga hefst á morgun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verkfalli afstýrt Kynningarfundur hjúkrunarfræðinga var vel sóttur og höfðu fundargestir mikinn áhuga á efni miðlunartillögu sáttasemjara. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við eigum eftir að sjá betur hvern- ig samningarnir þeirra líta út. Það verður skoðað núna í framhaldinu,“ segir Frímann Birgir Baldursson, varaformaður Landssambands lög- reglumanna. Vísar hann í máli sínu til miðlunartillögu í kjaradeilu Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið. Lítið hefur gengið í viðræðum lögreglumanna við ríkið, en stéttin hefur nú verið samningslaus í rétt um 15 mánuði. Segist Frímann eiga von á fundarboði frá ríkissáttasemj- ara. „Við erum að bíða eftir að heyra frá honum og að boðaður verði fundur. Ég geri ráð fyrir að það verði gert fljótlega fyrst þetta er frá í bili,“ segir Frímann og bæt- ir við að staðan í viðræðunum sé óbreytt. Ekkert hafi gerst síðustu vikur. „Það ber enn á milli og stað- an er í raun óbreytt. Það er spurn- ing hvort viðhorf ríkisins sé breytt eftir samninga hjúkrunarfræðinga. Við höfum komið með ýmsar til- lögur en öllu hefur verið hafnað af ríkinu,“ segir Frímann. Eins og áður hefur komið fram féllst Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga á að vísa afmörkuðum þáttum í launaliðnum til gerðar- dóms. Að sögn Frímanns myndi slík lausn ekki hugnast Landssam- bandi lögreglumanna. „Við horfum ekkert sérstaklega jákvæðum aug- um til hans. Við höfum ekki riðið feitum hesti frá honum síðustu ár. Við munum reyna að ná lendingu eftir fremsta megni,“ segir Frí- mann, sem ítrekar mikilvægi þess að semja við lögreglumenn. „Okkar framlína er ekki síður í hættu en hjúkrunarfræðinga. Stéttin er ósátt og reið yfir að hafa verið svona lengi án samnings.“ Óbreytt staða hjá lögreglumönnum  Gera ráð fyrir að boðað verði til fund- ar á næstu dögum Morgunblaðið/Eggert Lögreglan Stéttin hefur verið samningslaus í rétt um 15 mánuði. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Til skoðunar er að hætta landamæra- skimun fyrir kórónuveirunni meðal farþega frá ákveðnum ríkjum. Frá þessu greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi almannavarna á Höfðatorgi í gær. Sagði Þórólfur lítinn fjölda smita renna stoðum undir þá áætlun að endurskoða skimunarferlið þannig að hægt sé að undanskilja ákveðin lönd og einbeita sér að þeim þar sem smit eru mörg. Þannig mætti einnig fjölga ferðum til landsins, en ekki er hægt að skima nema 2.000 manns á Kefla- víkurflugvelli á degi hverjum og hefur fjöldi farþega um völlinn slagað upp í það síðustu daga. Aðspurður sagði Þórólfur þó að mögulegt væri að fjölga skimunum á vellinum, en þá þyrfti fleiri starfs- menn til, sem væri vandkvæðum bundið einkum nú þegar sumarleyfis- tíminn væri að hefjast. Von á upplýsingum eftir viku Metfjöldi kórónuveirusmita hefur greinst í heiminum síðustu daga, þótt faraldurinn hafi verið á hraðri niður- leið í Evrópu. Spurður hvaða löndum þyrfti sérstaklega að fylgjast með nefndi Þórólfur Bandaríkin, Brasilíu, Indland og Rússland. Hann sagðist þó ekki vilja nefna að svo stöddu hvaða ríki yrðu mögulega undanskilin skimun þegar fram líða stundir. Sagði hann tilgang skimunarinnar ekki síst að fá upplýsingar um dreif- ingu smita hjá ferðamönnum, en af því mætti draga upplýsingar um út- breiðslu milli ólíkra ríkja og hætta skimun frá ákveðnum svæðum. „Við teljum að með núverandi fyrirkomu- lagi munum við fá mjög verðmætar upplýsingar út úr skimuninni og get- um hagað starfinu eftir því,“ sagði Þórólfur. Von er á skýrslu um niður- stöður sýnatökunnar á landamærum, en hún verður birt að viku liðinni, þegar tvær vikur eru frá því farið var að skima á landamærum Íslands. Morgunblaðið/Eggert Faraldurinn Í skoðun er að hætta að skima ferðalanga frá sumum ríkjum. Skoða að skilja viss lönd undan Skimun » Núverandi fyrirkomulag um landamæraskimanir tóku gildi fyrir viku og hafa á þeim tíma um sjö þúsund manns komið til landsins. » Af þeim hafa 5.500 farið í sýnatöku. » Ellefu hafa greinst með veir- una, en aðeins tvö þeirra eru virk smit. » Ekkert smit hefur greinst innanlands frá 15. júní.  Mögulegt að fjölga skimunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.