Morgunblaðið - 23.06.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
FRÁBÆR
TILBOÐ
Verð frá
990 ISK
HAPPY HOUR
15 to 18.00
VEGAN- OG GRÆNMETISRET
TIR
Í B
OÐ
I
Hádegistilboð kr. 990 - 1.990
Kl. 11:00 - 14:30
Kvöldtilboð kr. 1.990 - 2.990
Kl. 18:00 - 21:00
B A N K A S T RÆ T I 7 A | 1 0 1 R E Y K J AV Í K | ( + 3 5 4 ) 5 6 2 - 3 2 3 2 | S O L O N . I S
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Fræðasetur um forystufé á Sval-
barði í Þistilfirði státar líklega af
minnsta listagalleríi landsins en vin-
sældir þess eru ótvíræðar því sýn-
ingarrými þar er uppbókað næstu
níu árin. Nýlega opnaði Gunnar
Karlsson sýningu þar, helgaða hrút-
um, með íslenska forystuféð sem fyr-
irmynd. Víða í Evrópu er sterk hefð
fyrir því að hrútar séu notaðir sem
táknmyndir á skjaldarmyndum
borga og ætta.
Fjórar gerðir hrúta lýsa mismun-
andi eiginleikum þeirra en það eru
harðsnúni hrúturinn, afslappaði
hrúturinn, guðslambið og fórnin,
eins og segir í kynningu sýning-
arinnar. Þetta eru skúlptúrar
brenndir í leir og fara saman húmor
og alvara í því að skoða kynvitund ís-
lenska hrútasamfélagsins.
Þetta er sjöunda listsýningin í
Fræðasetrinu og fellur hún vel inn í
aðra umgjörð setursins en þessi verk
Gunnars eru jafnframt til sölu á setr-
inu.
Daníel Hansen er forstöðumaður
setursins og hvatamaður að stofnun
þess. Hann hefur unnið ötullega að
uppbyggingu þessa sérstæða safns í
Þistilfirði og framtíðardraumur hans
er að safna öllu efni og fróðleik sem
finnst um íslenskt forystufé en það fé
á allt uppruna sinn í Norður-Þing-
eyjarsýslu. Íslenskt forystufé er ein-
stakt á heimsvísu og í Fræðasetrinu
er margt fróðlegt og fallegt að sjá.
Lítið kaffihús er í kjallara hússins
þar sem alltaf er brennheitt á könn-
unni, kaffið að sjálfsögðu sérblandað
og nefnist Ærblanda og meðlætið er
sérbakað. Í galleríi á jarðhæð er
hægt að kaupa handverk af ýmsu
tagi, sem flest tengist forystufé á ein-
hvern hátt, úr ull, horni, beinum og
einnig prjónaband en ullin af forystu-
fénu er einstaklega mjúk og hlý.
Opið er í Fræðasetrinu alla daga í
sumar frá klukkan 11-18.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Hrútasýning Gunnar Karlsson er með sýningu í Fræðasetri um forystufé á Svalbarða í Þistilfirði.
Harðsnúnir hrútar og
afslappaðir á sýningu
Hrútasamfélag í Fræðasetri um forystufé á Svalbarða
Sýnishorn Hrútar Gunnars Karls-
sonar eru af ýmsu tagi.
Listamaðurinn
» Gunnar Karlsson er listmál-
ari að mennt, hann stundaði
nám við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og var síðar
við Listaakademínuna í Stokk-
hólmi. Gunnar hefur unnið að
málaralist, myndskreytingum,
bókaskrifum og teiknimynda-
gerð.
» Teiknimyndir hans hafa ver-
ið verðlaunaðar á kvikmynda-
hátíðum víða um heim, t.d.
Litla lirfan ljóta, sem náði mikl-
um vinsældum en hún er fyrsta
íslenska tölvuteiknimyndin.
» Saga íslensks forystufjár
vakti athygli Gunnars sem
ákvað að útfæra hugmyndina
og afraksturinn má nú sjá í
Fræðasetrinu í sumar.
Rannsókn á ellefu Rúmenum sem
grunaðir voru um að hafa brotið
sóttvarnalög er lokið. Ásgeir Þór
Ásgeirsson yfir-
lögregluþjónn
segir að lögregl-
an á höfuð-
borgarsvæðinu
hafi aðeins lýst
eftir mönnunum
í tengslum við
brot á sóttkví og
að þeir hafi aldr-
ei verið tengdir
við þjófnað.
Einn þessara manna var Pioaru
Alexandru Ionut, sem sagðist í við-
tali við Morgunblaðið í gær hafa
verið ranglega bendlaður við þjófa-
gengi í rúmenskum fjölmiðlum.
Ásgeir segir að mennirnir ellefu
hafi verið sektaðir fyrir brot á sótt-
varnalögum og að sjö af þeim hafi
verið birtur úrskurður um frávísun
frá landamærum. „Við gerðum
aldrei mistök,“ segir Ásgeir. „Við
tengdum þá ekki við neitt annað þó
að einhverjir aðrir hafi kannski
gert það.“
Vinnuveitandi þriggja Rúmen-
anna er á öðru máli, en hann segir
að ákvörðunin að lýsa eftir mönn-
unum án myndbirtingar hafi verið
grundvallarmistök. Auk þess hafi
verið sagt að þeir hafi komið til
landsins mánudaginn 8. júní, en
mennirnir komu, að sögn vinnu-
veitandans, til landsins 5. júní.
Hann segir vinnubrögð lögregl-
unnar litast af útlendingahatri og
hroka.
Lokaðir inni án úrskurðar
„Mér finnst málið bara litast af
útlendingahatri og rasisma. Það
voru einhverjir tveir teknir og þá
voru bara allir Rúmenar sem komu
til landsins eftirlýstir. Svo komu
fimm Tékkar daginn eftir og ekk-
ert verið að spá í þá,“ segir vinnu-
veitandinn. „Það hefði verið fróð-
legt að sjá hvernig það hefði farið
ef það hefðu líka verið Rúmenar.“
Vinnuveitandinn segir einnig að
mennirnir hafi verið lokaðir inni í
þrjá sólarhringa án úrskurðar,
þrátt fyrir að hafa þegar lokið
sóttkví.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru mennirnir ósáttir við
sektir sem þeir fengu vegna brota
á sóttvarnalögum, þar sem þeir
höfðu þegar lokið sóttkví. Ekki er
komið í ljós hvort mennirnir muni
krefjast skaðabóta í kjölfar máls-
ins.
Sektaðir vegna
brota á sóttkví
LRH segist ekki hafa gert mistök
Ásgeir Þór
Ásgeirsson
Meirihluti starfsmanna meðferðar-
sviðs SÁÁ leggst gegn því að
Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi
forstjóri sjúkrahússins Vogs, gefi
kost á sér í embætti formanns SÁÁ.
Stjórnarfundur SÁÁ fer fram í næstu
viku þar sem ný 48 manna stjórn og
formaður samtakanna verða kjörin.
Alls skrifuðu 57 starfsmenn af
rúmlega 80 sem starfa á meðferðar-
sviði SÁÁ undir yfirlýsinguna þar
sem segir einfaldlega: „Við viljum
ekki Þórarinn [sic] Tyrfingsson
aftur!“ Nokkrir starfsmenn vildu
ekki láta nafns síns getið af ótta við
viðbrögð Þórarins Tyrfingssonar,
„sem sýnir kannski í einföldustu
myndinni þá ógnarstjórn sem var við
lýði þegar hann var við stjórn“, að því
er segir í yfirlýsingu sem finna má á
mbl.is. Deilur hafa ríkt innan SÁÁ á
milli starfsmanna Sjúkrahússins
Vogs og forystu stjórnar SÁÁ.
Starfsmennirnir sem undirrita yfir-
lýsinguna styðja framboð Einars
Hermannssonar, sem hefur setið í
stjórn SÁÁ í fjögur ár. Það gerir Val-
gerður Rúnarsdóttir, forstjóri
Sjúkrahússins Vogs og fram-
kvæmdastjóri lækninga, sömuleiðis,
en hún tilkynnti uppsögn sína í apríl
en dró hana síðar til baka.
Vilja ekki fara aftur í tímann
„Við erum fólkið sem vinnur á gólf-
inu og erum í þessari vinnu því við
berum virkilega hag skjólstæðinga
fyrir brjósti og höfum ástríðu fyrir
vinnunni. Mörg okkar hafa séð tím-
ana tvenna og við viljum ekki fara aft-
ur í tímann,“ segir Kristbjörg Halla
Magnúsdóttir, áfengis- og vímuefna-
ráðgjafi hjá SÁÁ.
Vilja ekki Þórarin aftur
Meirihluti starfsmanna skrifaði undir mótmælabréf
Morgunblaðið/Eggert
Bati Talsverðar deilur hafa verið
innan SÁÁ að undanförnu.