Morgunblaðið - 23.06.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
Guðmundur Björgvin Magnússon
og Björn Áki Jósteinsson, sem út-
skrifuðust með BS-gráðu í eðlis-
fræði og efnafræði við Háskóla Ís-
lands háskólaárið 2019-2020 hlutu
verðlaun úr Verðlaunasjóði Guð-
mundar P. Bjarnasonar frá Sýrup-
arti á Akranesi í ár og var verð-
launaféð, sem nemur samtals
tveimur milljónum króna, afhent
við hátíðlega athöfn 18. júní.
Björn Áki Jósteinsson fékk eina
milljón króna fyrir námsárangur í
verkfræðilegri eðlisfræði með
ágætiseinkunn. Hann mun hefja
framhaldsnám í skammtaverkfræði
við ETH í Sviss í haust.
Guðmundur Björgvin Magnússon
hlaut eina milljón króna fyrir náms-
árangur í lífefnafræði með ágætis-
einkunn. Hann ráðgerir framhalds-
nám í líffræðilegri eðlisfræði eða
hugsanlega lífupplýsingafræði á
næsta ári.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Úthlutun verðlaunanna Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla
Íslands, Björn Áki Jósteinsson, Guðmundur Björgvin Magnússon, Guð-
mundur G. Haraldsson, prófessor og formaður stjórnar sjóðsins, og Sig-
urður Magnús Garðarson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.
Fengu tvær millj-
ónir til skiptanna
Tveir útskriftarnemar verðlaunaðir
Verklokum við endursmíði Krýsu-
víkurkirkju var fagnað í Tækniskól-
anum í Hafnarfirði í gær, áður Iðn-
skólanum í Hafnarfirði. Auk skólans
hafa Vinafélag Krýsuvíkurkirkju og
Þjóðminjasafn Íslands staðið að
verkefninu.
Við endursmíði Krýsuvíkurkirkju
hafa nemar skólans í húsasmíði
fengið innsýn í og þjálfun við að
beita þeim vinnuaðferðum sem tíðk-
uðust við smíði timburhúsa um
miðja 19. öld.
Sem kunnugt er brann kirkjan í
Krýsuvík, nánar tiltekið 2. janúar
árið 2010. Ungmenni játuðu að hafa
kveikt í kirkjunni en fljótlega eftir
brunann var ákveðið að ráðast í
endursmíðina. Nú hillir undir að
kirkjan komist á grunn sinn seinna í
sumar, en hleðslan varðveittist að
hluta þrátt fyrir brunann. Hafa
nemendur skólans einnig unnið að
endursmíði sökklanna.
Krýsuvíkurkirkja var fyrst reist
fyrst árið 1857 og var síðan endur-
byggð og endurvígð árið 1964. Síðan
þá var hún í vörslu þjóðminjavarðar.
Grunnur að varðveislu eldri bygg-
inga felst ekki síst í þekkingu á
gömlu handverki og hafa kennarar
skólans miðlað þekkingu sinni til
nemenda og leiðbeint þeim í sam-
ræmi við uppdrætti og verklýsingar
Þjóðminjasafns Íslands. Eftir brun-
ann kom sér vel sú vinna sem
starfsmenn safnsins höfðu unnið ár-
ið 2003, þegar kirkjan var tekin út
og mæld hátt og lágt og myndir
teknar.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Verklok Aðstandendur verkefnisins söfnuðust saman í gær fyrir framan endursmíðaða Krýsuvíkurkirkju.
Ný Krýsuvíkurkirkja afhent
og flutt á grunn sinn í sumar
Endursmíðinni fagnað í Tækniskólanum í Hafnarfirði
Morgunblaðið/RAX
Krýsuvík Eldri kirkja sem brann til
kaldra kola í ársbyrjun 2010.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Smíði Nemendur Tækniskólans
hafa vandað til allra verka.
Ákvörðun um lífskjarasamninga
verður sjálfstæð ákvörðun sem á eftir
að ræða. Þetta sagði Drífa Snædal,
forseti ASÍ, við mbl.is í gær, en þá fór
fram formannafundur ASÍ.
Í ávarpi sínu á fundinum sagðist
Drífa ekki telja ráðlegt að lýsa yfir að
ASÍ myndi segja lífskjarasamningum
upp í haust, en að mikilvægt væri að
ASÍ beitti sér fyrir því að knýja fram
loforð stjórnvalda og verja það sem
hefði þegar áunnist.
Áður höfðu bæði Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður VR, og Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, lýst því yfir opinberlega,
m.a. við Morgunblaðið, að þeir teldu
allar forsendur lífskjarasamninganna
brostnar og þeim ætti að segja upp í
haust.
Formannafundurinn var fjölmenn-
ur, að því er segir á vefsíðu ASÍ.
Fyrirferðamest hafi verið umræða
um yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum
við lífskjarasamninginn. Þar vanti
ýmislegt upp á og var þungt hljóð í
mörgum fundarmönnum vegna seina-
gangs stjórnvalda í að uppfylla atriði
sem sett voru fram í yfirlýsingunni,
að því er segir á vef ASÍ.
Einnig var rætt um erfiða stöðu
ferðaþjónustunnar, ótrygg ráðninga-
sambönd og þá stöðu sem skapast að
líkindum í haust þegar fjölmargir ein-
staklingar, sem misstu vinnuna í kór-
ónuveirufaraldrinum, fara á strípaðar
atvinnuleysisbætur
Engin ákvörðun tekin
„Þetta var fyrst og fremst
samráðsfundur. Við vorum að undir-
búa okkur fyrir haustið, gera upp
veturinn og tókum inn nokkur ný mál
á dagskrá. Ræddum lífskjarasamn-
ingana og áherslur í haust,“ segir
Drífa um fundinn.
Hún segir enga ákvörðun um lífs-
kjarasamningana hafa verið tekna.
„Við vorum bara að hefja það ferli í
dag. Hvernig það muni koma út, hvað
hefur verið efnt og hvað stendur út af.
Síðan kemur að ákvörðun um það
hvort forsendur standist og eins
hvort þeim verði sagt upp, það verður
bara sjálfstæð ákvörðun. Við eigum
bara eftir að ræða þetta.“
Drífa segist gera ráð fyrir því að
formenn komi saman að nýju í haust.
Í ræðu sinni á formannafundinum
taldi Drífa verkefni ASÍ vera skýrt;
að verja það sem hefði áunnist og
knýja fram það sem út af stæði í lof-
orðum stjórnvalda.
„Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er
uppi er þó jafnvel enn brýnna að
hækka atvinnuleysisbætur, lengja
tekjutengda tímabil bótanna og draga
úr skerðingum í almannatrygginga-
kerfinu. Að öðrum kosti getur staðan
orðið grafalvarleg með haustinu og
leitt til langvarandi afkomu- og
skuldavanda fjölda fólks. Enn fremur
er risavaxið verkefni að tryggja að
reikningurinn vegna björgunarað-
gerða undanfarinna vikna verði ekki
sendur almenningi í formi niður-
skurðar, gjaldtöku, kaupmáttarrýrn-
unar eða sölu á opinberum eigum.
Þetta er meðal þess sem ég tel einna
mest áríðandi fyrir haustið,“ sagði
Drífa m.a. í ræðu sinni.
ASÍ beiti sér
til að verja það
sem hafi áunnist
Ekkert ákveðið á formannafundi ASÍ
um að segja upp lífskjarasamningum
Morgunblaðið/Eggert
ASÍ Vilhjálmur Birgisson og Drífa
Snædal við upphaf fundar í gær.
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Sumartilboð
2.998
Verð áður 9.995
Leðursandalar
KÍKTU
ÁVERÐ
IÐ!