Morgunblaðið - 23.06.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
www.flugger.is
Hjá Flügger færðu
allt í málningarverkið
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu tilkynntu í
gær að pílagrímsferðum til Mekka
yrði haldið í „miklu lágmarki“ í ár
vegna kórónuveirufaraldursins.
Gert var ráð fyrir að Hajj, hin ár-
lega pílagrímsferð múslima,myndi
standa yfir dagana 28. júlí til 2.
ágúst í sumar en vegna faraldurs-
ins munu einungis þeir pílagrímar
sem þegar eru komnir til Sádi-
Arabíu fá að ferðast til hinnar
helgu borgar. Ákvörðunin er tekin í
kjölfar þess að tilfellum kórónu-
veirunnar hefur fjölgað mjög á
undanförnum dögum, en rúmlega
160.000 manns hafa nú smitast í
landinu og meira en 1.300 hafa lát-
ist af völdum hennar.
Erlendir pílagrímar
fá ekki að koma
Hajj Oft er fjölmennt í pílagrímsferðum.
SÁDI-ARABÍA
AFP
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Reiknað er með að breski forsætis-
ráðherrann Boris Johnson tilkynni í
dag á breska þinginu um þær til-
slakanir sem ráðgerðar eru í sótt-
varnamálum landsins 4. júlí, svo
sem hvort barir og veitingastaðir fái
þá að opna dyr sínar fyrir gestum á
ný og hvort unnt verði að falla frá
því að fólk haldi tveggja metra bili
sín á milli.
Matt Hancock heilbrigðis-
ráðherra lét þau orð nýlega falla að
Bretar væru „klárlega á leiðinni“ til
móts við frekari tilslakanir á um-
gengnisreglum sínum vegna kór-
ónuveirunnar sem krafist hefur hátt
í 43.000 mannslífa í Bretlandi. Frá
Downing-stræti 10 berast þó, að
sögn breska ríkisútvarpsins BBC,
skýr skilaboð um að ekki verði hik-
að við að grípa til harðra aðgerða á
ný rjúki smittölur upp í kjölfar frek-
ari opnunar samfélagsins.
Ræddu tveggja metra reglu
Forsætisráðherra fundaði í gær
með Covid-19-nefnd breska ríkisins
þar sem ráðgert var að tveggja
metra reglan yrði til umfjöllunar og
hvort óhætt teldist að leggja hana
niður samhliða næstu skrefum í
byrjun júlí og stytta þá leyfilegt bil
milli fólks í einn metra. Skugga-
ráðherra heilbrigðismála, Jon Ash-
worth, sagði á sunnudag að stuðn-
ingur minnihlutans við nýjar reglur
ylti á því að þær tækju einnig til
notkunar andlitsgríma, veirupróf-
ana og smitrakningar.
James Brokenshire, fyrrverandi
ráðherra öryggismála, sagði í
fréttaþættinum BBC Breakfast að
þekking á smitleiðum veirunnar
hefði aukist hröðum skrefum und-
anfarið. Niðurfelling tveggja metra
reglunnar yrði að styðjast við vís-
indaleg rök auk þess að líta bæri til
þess hvaða leiðir aðrar þjóðir færu.
Hancock heilbrigðisráðherra lét
þá hafa eftir sér að ein leið í
tengslum við opnun öldurhúsa væri
að allir gestir þar skráðu sig við
inngöngu svo ná mætti sambandi
við þá kæmi upp smit meðal fólks
sem verið hefði á ákveðnum stöðum.
Eins útilokaði hann ekki að fólki
yrði gert að panta drykki gegnum
smáforrit í símtækjum sínum. „Við
höfum ekki tekið slíka ákvörðun enn
sem komið er, en í öðrum löndum
hefur sú nálgun komið til tals,“
sagði Hancock.
Þrýstingur veitingamanna
Bresk stjórnvöld hafa sætt þrýst-
ingi úr veitingageiranum um að
slaka á tveggja metra reglunni með
þeim rökum að útilokað væri að
reka staðina með slíku bili milli
gesta. Johnson forsætisráðherra
svaraði því til að ríkisstjórnin hygð-
ist „fastlíma sig“ við þá áætlun sem
lögð var fram í maí. Talið er að
Johnson tilkynni í dag að áfram
verði ætlast til að fólk haldi fjar-
lægð sín á milli.
Næstu skref Breta kynnt í dag
Veitingamenn bíða eftir grænu ljósi Boris Johnson kynnir nýjar reglur á
þinginu Tveggja metra reglan til umræðu Veitingahúsagestir skráðir?
AFP
Opið Starfsfólk Greggs-bakarísins í Lundúnum var með tilheyrandi hlífðarbúnað eftir að bakaríið opnaði 800 af
útibúum sínum víða um Bretland á nýjan leik á fimmtudaginn. Næstu skref breskra stjórnvalda verða kynnt í dag.
Rúmlega níu milljón manns hafa nú
smitast af kórónuveirunni og meira
en 469.000 hafa látist af völdum henn-
ar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO segir faraldurinn enn á upp-
leið.
Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að búið
sé að ná tökum á faraldrinum í Evr-
ópu, sem sést meðal annars á því að
milljónir franskra skólabarna fengu
loks að snúa aftur í skólastofurnar í
gær, er hann á blússandi siglingu víð-
ast hvar annars staðar í heiminum.
Þannig náði fjöldi dauðsfalla af
völdum kórónuveirunnar 50.000 í
Brasilíu í gær, auk þess sem
hundraðþúsundasta smitið var stað-
fest í Suður-Afríku.
Þá hefur fjöldi nýrra tilfella í borg-
unum Lissabon, höfuðborg Portú-
gals, og Melbourne í Ástralíu einnig
valdið áhyggjum um að faraldurinn
nái þar aftur útbreiðslu.
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, segir að
stærsta ógnin sem heimurinn standi
frammi fyrir í dag sé ekki kórónu-
veiran, sem hefur orðið 465 þúsund
manns að bana, heldur skortur á
samstöðu og sameiginlegri forystu.
„Við getum ekki sigrast á faraldr-
inum í sundruðum heimi,“ sagði
Tedros og bætti við að pólitískar
þrætur um viðbrögð við faraldurinn
hefði gert hann verri.
AFP
Kennslustund Frönsk skólabörn fengu aftur að snúa til náms í gær.
Faraldurinn enn á
uppleið að mati WHO
Jarðneskar leifar
19 fórnarlamba
innrásar Banda-
ríkjamanna í Pa-
nama árið 1989
hafa verið grafn-
ar upp í Jardín
de Paz-kirkju-
garðinum í Pan-
ama City vegna
opinberrar rann-
sóknar á innrás-
inni og afleiðingum hennar. Talið
er að um 500 Panamabúar hafi látið
lífið í innrásinni, sem gerð var til
höfuðs leiðtoganum og hershöfð-
ingjanum Manuel Antonio Noriega
20. desember 1989 eftir að kast-
aðist í kekki milli hans og Banda-
ríkjastjórnar. Var Noriega hand-
tekinn og dæmdur fyrir fíkniefna-
smygl og peningaþvætti. Hann sat
inni til æviloka árið 2017.
Grafa upp fórnar-
lömb innrásar
Manuel Antonio
Noriega
PANAMA
Evrópuríkin stíga nú varlega til móts við eðlilegra líf eftir undangengna
mánuði. Í Þýskalandi nær núgildandi regla um fjarlægð milli fólks fram til
29. júní og fjölmennar samkomur þar verða engar fyrr en í fyrsta lagi í
haust. Ítalir boða opnun næturklúbba 14. júlí og skóla í byrjun september.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti lýsti því yfir fyrir viku að Frakkar
hefðu unnið sinn fyrsta sigur andspænis veirunni.
Í dag er gert ráð fyrir að frönsk kvikmyndahús hefji starfsemi á ný auk
þess sem heimsóknir á elliheimili voru leyfðar á mánudag í síðustu viku.
Baðstrendur hafa sumar hverjar opnað á ný með ströngum reglum um
samskipti fólks. Belgar mega nú koma saman í tíu manna hópum og opn-
uðu þeir kaffihús og veitingastaði snemma í mánuðinum auk þess sem
stefnt er að því að þar verði hægt að sækja kvikmyndahús, spilavíti og
tónleika frá 1. júlí. Þann sama dag reikna Hollendingar með að opna tjald-
stæði auk þess sem 100 manns í einu verður leyfilegt að heimsækja leik-
hús, kvikmyndahús og veitingastaði. Stærri samkomur bíða þó haustsins.
Margar dyr opnast í júlí
DAGLEGT LÍF ÞOKAST NÆR