Morgunblaðið - 23.06.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla og
Grunnskóla Raufarhafnar í Norðurþingi.
Öxarfjarðarskóli er heildstæður samrekinn leik- og grunnskóli með um alls 48 nemendur.
Við leitum eftir umsækjendum í eftirfarandi stöður:
• Íslenskukennari í 50% stöðu á unglingastigi sem er tilbúinn að taka þátt í þróun skólastarfs með öðrum starfsmönnum
skólans. Meðal kennslugreina eru: íslenska og almenn bekkjarkennsla.
• Íþróttakennari í 50% stöðu.
• Leikskólakennari við aðra leikskóladeild skólans. Þarf að hafa gott vald á íslensku.
Við leggjum áherslu á fjölbreytta, skapandi og sveigjanlega kennsluhætti, samvinnu og vellíðan starfsfólks og nemenda.
Öxarfjarðarskóli er að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæður agi.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún S. Kristjánsdóttir skólastjóri.
Sími 465 2246 / 892 5226, tölvupóstur: gudrunsk@oxarfjardarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2020
Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli með alls 16 nemendur á leik- og grunnskólastigi og nýtur
mikils stuðnings frá samfélaginu. Áhersla er lögð á samvinnu, virðingu, sveigjanleika og jákvæðni. Skólinn er í samstarfi við
Öxarfjarðar skóla þar sem nemendur sækja kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum og sundi auk tónmenntar og tónlistar-
kennslu. Skólinn starfar í anda uppeldisstefnu Jákvæðs aga.
Óskað er eftir umsjónarkennara á miðstig í almenna kennslu. Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf á grunnskólastigi og
sýna faglegan metnað, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi sem er áreiðanlegur og
samvisku samur til að takast á við fjölbreytt verkefni í samstarfi við nágrannaskóla. Um er að ræða 100% stöðu.
Einnig vantar tvo leikskólakennara til starfa á Krílabæ. Viðkomandi þurfa að vera áreiðanlegir, samviskusamir og sýna lipurð
og jákvæðni í samskiptum. Faglegur metnaður, skipulögð vinnubrögð og gott vald á íslensku nauðsynlegt.
Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 616-6011.
Umsóknir sendist á netfangið: hrund@raufarhafnarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2020
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.
Tilkynningar
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt lýsing fyrir endurskoðun Aðalskipulags Mýrdalshrepps
2019-2032.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur hafið vinnu við endur-
skoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Haldinn hefur verið
kynningarfundur um verkefnið þann 14. janúar 2020 að
Leikskálum í Vík. Nú er kynnt lýsing skipulagsverkefnisins þar
sem gerð er grein fyrir helstu viðfangsefnum aðalskipulags-
ins, áherslum sveitarstjórnar auk upplýsinga um fyrirhugað
skipulagsferli. Gert er ráð fyrir að vinna við aðalskipulagið
verði í gangi fram eftir árinu 2021 og munu gefast nokkur
tækifæri til að koma upplýsingum og sjónarmiðum á framfæri.
Lýsing skipulagsverkefnis verður til sýnis á skrifstofu
Mýrdalshrepps, Austurvegi 17 frá og með mánudeginum 22.
júní til 15. júlí 2020 og lýsing skipulagsverkefnis verður eining
hjá Skipulagsstofnun í Borgartún 7b í Reykjavík. Lýsing er
einnig til sýnis á heimasíðu Mýrdalshrepps http://www.vik.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við lýsinguna til 15. júlí 2020.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austur-
vegi 17, 870 Vík eða senda í tölvupóst á bygg@vik.is.
George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshreppur
Auglýsing um skipulagsmál
í Mýrdalshreppi
Skipulags og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðb. kl. 9-16.
Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Kaffi-
sala kl. 14:45 – 15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið sími: 411-2600
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50.
Púttvöllurinn og Hæðarvellir opnir öllum allan daginn. Hádegismatur
kl. 11:30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við
vinnum eftir Samfélagssáttmálanum, og þannig tryggjum góðan
árangur áfram. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma
411-2790
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13:45 -15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer
frá Jónshúsi kl. 14:45. Qi-Gong Sjál. kl. 9:00.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Þriðjudagur kl. 08:30-16:00 Opin handavin-
nustofa. kl 10:00- Leikfimi gönguhóps kl 10:30 Ganga um hverfið kl.
13:00 Bíó
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl 08.00 Billjard kl 08.00 Dansleikfimi
kl 09.00 Qi-gong á Klambratúni kl 11.00 Bridge kl 13.00
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Púttæfing kl. 10:30. Gönguferð kl. 13:30.
Korpúlfar Helgistund kl. 10:30 í dag, sundleikfimi kl. 13:30 í Grafar-
vogssundlaug og verður í allt sumar. Upplestur í Borgum kl. 13 í dag
kynnt bók Pétur Jósefssonar Ekki skýjahnoðri á himni sem er
smásagnasafn. Lesarar Pétur og Ellen Sveinsdóttir. Allir velkomnir,
fyrirspurnir í lokin. Boccia í Borgum kl. 14:00
Seltjarnarnes Dagskráin í dag 23. júní er svona. Kl. 07:15 er vatns-
leikfimi í sundlaug Seltj. Kl. 10:30 er kaffispjall í króknum. Kl 11:00 er
tækninámskeið í salnum á Skólabraut. Því miður fellur niður pútt
vegna veðurs eftir hádegi. Það verður spilað í salnum á
Skólabrautinni í staðinn kl 13:30. Hlökkum til að sjá ykkur.
Atvinnuauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Smá- og raðauglýsingar
með
morgun-
✝ Hörður BjarnarÁrnason fædd-
ist í Mógili á Sval-
barðsströnd 17.
ágúst 1941. Hann
lést 10. júní 2020.
Foreldrar hans
voru hjónin Gerður
Sigmarsdóttir og
Árni Bjarnarson
bókaútgefandi.
Systkini Harðar eru
Ásdís, f. 1940,
Helga, f. 1944, og Haraldur, f.
1949.
Hörður giftist 31. desember
1964 Erlu Sigurdísi Jónsdóttur
frá Hafnarfirði. Þau skildu 1998.
Börn Harðar og Erlu eru: 1) Helgi
Jón, f. 1963, maki Freyja Margrét
Sigurðardóttir, 2) Kolbrún Sig-
urlaug, f. 1964, 3) Svandís Birna,
f. 1968, maki Ragnar Darri Hall,
4) Hrafnhildur, f. 1970, 5) Gerður,
f. 1972, maki Hall-
mar Halldórs og 6)
Linda, f. 1973.
Barnabörn þeirra
eru 13 og barna-
barnabarn eitt.
Hörður ólst upp á
Akureyri en dvaldi
oft í Mógili hjá
ömmu sinni og afa.
Hann fluttist um tví-
tugt suður til Hafn-
arfjarðar þar sem
hann starfaði við fiskvinnslu og
sjómennsku þar til hann hóf nám í
húsasmíði í Iðnskólanum. Hörður
starfaði sem húsasmiður og var
lengst af sjálfstæður atvinnurek-
andi. Hann sérhæfði sig í gler-
ísetningum þar sem hann var m.a.
í góðu samstarfi við Glerborg.
Útför Harðar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 23.
júní 2020, og hefst athöfnin kl. 13.
Við kveðjum elsku pabba okkar
með söknuð í hjarta og minnumst
góðra tíma með honum. Pabbi
hafði gaman af ferðalögum og voru
þær ófáar útilegurnar í Þjórsár-
dalinn með honum og mömmu,
ásamt mörgum ættingjum og vin-
um þeirra. Pabbi var ávallt hrókur
alls fagnaðar, grínari mikill og
brölluðu þeir vinirnir, Siggi, Þórir
og Nonni, ýmislegt saman okkur
krökkunum til mikillar kátínu og
ófá voru þau prakkarastrik vin-
anna. Við minnumst einnig allra
sundferðanna með pabba ásamt
ferða í Nauthólsvík, norður á Ak-
ureyri til ömmu og afa og óteljandi
sunnudagsrúnta þar sem oftar en
ekki var stoppað í fleiri en einni
sjoppu okkur til mikillar ánægju.
Pabbi hafði gaman af að segja okk-
ur sögur og brandara og var oft
mikið hlegið við kvöldverðarborð-
ið. Pabbi var fróður mjög og hann
las mikið. Hann hafði sérstakan
áhuga á seinni heimsstyrjöldinni
og vissi mikið um flest þau stríðs-
átök sem geisað hafa í heiminum.
Einnig var hann mikill bíladellu-
kall enda leituðum við oft til hans
með bílakaup. Pabbi var áhuga-
maður um bæði handbolta og fót-
bolta og ræddum við oft leikina í
þaula og höfðum gaman af. Hafn-
arfjarðarfélögin FH og Haukar
voru auðvitað í uppáhaldi hjá hon-
um enda við börnin og barnabörn
gallharðir Hafnfirðingar en æsku-
félagið Þór á Akureyri þótti hon-
um sérstaklega vænt um þótt hann
hefði ekki hátt um það við okkur.
Mamma og pabbi héldu vináttu
sinni þrátt fyrir að leiðir þeirra
skildi og það þótti okkur vænt um.
Þau voru ávallt samstiga varðandi
okkur, sýndu okkur umhyggju og
ást og sáu til þess að okkur skorti
aldrei neitt.
Elsku pabbi, nú er komið að
leiðarlokum eftir erfið veikindi
undanfarin ár. Þú barðist hetju-
lega við slæman hjartasjúkdóm
allt fram á síðustu stundu til að fá
meiri tíma með okkur og erum við
svo þakklát fyrir allar stundirnar
með þér. Hvíldu í friði, elsku
pabbi.
Þín
Helgi, Kolbrún, Svandís,
Hrafnhildur, Gerður og Linda.
Elsku afi, svo góðhjartaður og
skemmtilegur. Alltaf í góðu skapi
og gaf alltaf bestu knúsin. Ég mun
sakna þess að koma í heimsókn til
afa og það var alltaf svo gaman að
fá hann í heimsókn til okkar.
Afa fannst gaman að keyra fína
bílinn sinn og stundum sá ég hann
á rúntinum. Þá stoppaði hann og
heilsaði, alltaf glaður og kátur, og
gaukaði jafnvel að mér smá pen-
ing. Afi var góður kokkur og einu
sinni þegar hann passaði okkur
systur tók hann sig til og eldaði
fyrir okkur þessa fínu máltíð. Við
afi gátum spjallað um allt á milli
himins og jarðar enda vissi hann
svo mikið um svo margt.
Nú er afi kominn á góðan stað
og líður örugglega miklu betur en
hann var orðinn mjög veikur undir
það síðasta.
Ég á eftir að sakna þín, afi
minn.
Þín
Jóhanna Erla.
Elsku afi minn, ég kveð þig með
söknuð í hjarta og það er erfitt að
hugsa til þess að stundirnar okkar
verði ekki fleiri.
En á sama tíma er ég þakklátur
fyrir það dýrmæta samband sem
við áttum og mun alltaf halda fast í
minningarnar okkar saman.
Hafið það bíður þín djúpt og blátt,
því lífsins ferðalagi lýkur nú brátt.
Um hafið þú flýtur í góðri sátt,
þar sem selurinn fylgir í norðurátt.
En þó þú syndir í aðra átt,
þá þig kveðjum ævinlega þakklát,
því styrkur þinn veitir okkur mátt.
Góða ferð Stjáni hinn blái,
við elskum þig öll, ó svo dátt.
Sjáumst seinna, elsku afi minn.
Sindri Bjarnar og Sesselja.
Við eigum minningar um brosið bjarta,
lífsgleði og marga góða stund,
um mann sem átti gott og göfugt hjarta
sem gengið hefur á guðs síns fund.
Hann afi lifa mun um eilífð alla
til æðri heima stíga þetta spor.
Og eins og blómin fljótt að frosti falla
þau fögur lifna aftur næsta vor.
(Guðrún Vagnsdóttir)
Við elskum þig elsku afi, höfum
þig í hjartanu og geymum.
Þín
Hörður Bjarnar og Erla Írena.
Í reisulegu húsi við Eiðsvöllinn
á Akureyri ólumst við systkinin
upp ásamt frændsystkinum okk-
ar. Þar var mikið líf og fjör alla
daga og mörg prakkarastrik gerð
og ekki öll til fyrirmyndar. Einn
úr þessum hópi, Hörður Bjarnar
Arnason, hefur nú kvatt. Eftir
stöndum við eftirlifandi systkinin
og rifjum upp litríkar og skemmti-
legar æskuminningar. Árin liðu og
við fórum hvert í sína áttina og
stofnuðum okkar fjölskyldur, en
alltaf var sterkur þráður á milli
okkar. Heimahagarnir voru bróð-
ur okkar afar kærir og átti hann
ófáar ferðirnar a æskuslóðirnar.
Nú þegar hann er allur verður
hljótt í ættarreit fjölskyldunnar í
Árnagarði, því ævilega var hann
þar hrókur alls fagnaðar í systk-
inahópnum þegar rifjaðar voru
upp minningar frá liðinni tíð og
hláturinn bergmálaði um sveitina.
Hann var skemmtilegur sögu-
maður og úr hans munni urðu
bernskubrekin ljóslifandi. Elsku
bróðir við söknum þín af heilum
hug. Fjölskyldu þinni sendum við
hugheilar samúðarkveðjur.
Ásdís, Helga og Haraldur.
Hörður Bjarnar
Árnason