Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 4

Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is K atrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir sjómannadaginn hafa sérstaka merkingu í sínum huga. „Ekki af því að ég sé alin upp við sjómennsku, heldur miklar umræður um sjávar- útveg. Í mínum huga tengist sjómannadagurinn sögu þessarar starfsstéttar og aðbúnaði hennar. Þar ber auðvitað hæst, að mínu viti, hve mikið hefur breyst í björgunarmálum og aðbúnaði sjó- manna, til dæmis með tilkomu Slysavarnaskól- ans. Sú breyting sem orðið hefur á því öllu er það sem stendur hjarta manns næst en um leið er það alltaf sorglegt þegar við missum menn í sjóinn, eins og raunar gerðist í Vopnafirði þar sem skipverji fór í sjóinn núna í maí.“ Bendir hún á Ölduna, verkið í Fossvogskirkjugarði, þar sem skráð eru nöfn þeirra sjómanna sem hafa farist. „Það eru allir sem tengjast einhverjum sem sjórinn hefur tekið.“ Rifjar Katrín upp sögu björgunarafreks sem unnið var 1933 þegar Skúli fógeti strandaði fyrir utan Grindavík. „Þá tókst að bjarga 24, en með- al þeirra sem ekki tókst að bjarga voru langafi minn og afabróðir. Ég held að allar fjölskyldur eigi einhverjar slíkar sögur en það er stórkost- legt hvernig tekist hefur að fækka slysum á sjó og búa betur að sjómönnum. Þannig að á sjó- mannadegi hugsar maður um þessar erfiðu starfsaðstæður. Auðvitað sóttu Íslendingar sjó- inn framan af í opnum bátum og vélvæðingin hefst ekki fyrr en á 20. öld. Í framhaldinu eru framfarirnar mjög stórstígar, sérstaklega um miðja 20. öldina.“ Hún segir björgun og öryggi á sjó vera við- varandi viðfangsefni stjórnvalda á hverjum tíma og að mörg tækifæri felist í hagnýtingu nýrra tæknilausna. „Eitt af því sem tæknin er að gera okkur mögulegt er að veita fjarheilbrigðisþjón- ustu úti á sjó. Þar höfum við verið að sjá mikla framþróun á undanförnum árum sem gæti gert það að verkum að hægt verði að sinna sjómönn- um betur þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Svo er tæknin að breyta öllu fyrir sjómenn. Þessi nýju skip sem ég hef verið að heimsækja minna mig frekar á hátæknifyrirtæki en nokkuð annað.“ Áfram undirstaða Eins og flestum landsmönnum er kunnugt verð- ur fátt um hátíðarhöld á sjómannadaginn að þessu sinni. Spurð hvort hún telji að þessar að- stæður sem skapast hafa vegna kórónuveiru- faraldursins séu til þess fallnar að fólk kunni í auknum mæli að meta sameiginleg hátíðarhöld, svarar Katrín því játandi. „Alveg tvímælalaust. Þetta eru alveg ótrúlegir tímar. Nú er þjóð- hátíðardagurinn framundan og þó að verið sé að aflétta samkomutakmörkunum og hækka fjöldaviðmið, þá hefur þetta mikil áhrif á allar okkar áætlanir um slíkt. En ég held einmitt að þetta sýni okkur hvað þetta skiptir miklu máli og hvað faraldurinn hefur haft mikil áhrif á allt okkar daglega líf. Mér finnst ég skynja þjóðina þannig að faraldurinn hafi að einhverju leyti dregið það upp skýrum litum hvað okkur finnst mikilvægt í lífinu og samfélaginu og hvað okkur finnst skipta máli.“ Efnahagsleg áhrif faraldursins hafa einnig haft veruleg áhrif en sjávarútveginum hefur tekist að halda áfram útflutningi. Spurð hvort það sé óhjákvæmilegt að sjávarútvegurinn verði til frambúðar sú grein sem Íslendingar muni reiða sig á, svarar hún: „Við þekkjum aflabrest úr sögunni, þannig að saga sjávarútvegsins er ekki eingöngu saga stöðugleika. Hins vegar hef- ur sjávarútvegurinn verið undirstöðu- atvinnugrein frá því að ég byrjaði að fylgjast með stjórnmálum og sjávarútvegi, sem var allt of snemmt því að á mínu heimili var alltaf talað um sjávarútveg í hverju einasta fjölskylduboði! Og þó að stoðunum hafi fjölgað hefur sjávar- útvegurinn haldið áfram að vera þessi undir- stöðuatvinnugrein.“ Kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því í desember og segir forsætisráðherra ekki líklegt að stjórnvöld hafi afskipti af gangi þeirra viðræðna umfram viðræður annarra stétta. „Ég hef sagt það um þær kjaraviðræður sem eru í gangi núna að það sé mjög mikilvægt að allir leggi mikið á sig til að ná samningum. Það á ekki bara við um verkalýðshreyfinguna, held- ur líka atvinnurekendur. Við komum að samningum á almenn- um markaði með yfirlýsingu okkar um lífskjarasamninginn, sem við höfum unnið að því að fylgja eftir síðan. Við höfum síð- an lagt okkur fram, ríkið sem at- vinnurekandi, að vera innan ramma þeirra samninga. Það hefur verið okkar leiðarljós. Að öðru leyti höfum við ekki stigið inn í samninga- viðræður á almennum markaði.“ Sjómenn mikilvægir bandamenn Þá telur Katrín sjávarútveginn skipta gríðar- legu máli sem samstarfsaðili til þess að ná markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum. „Það hefur verið unnið mikið í því að draga úr losun í sjávarútvegi á undanförnum árum. Það hefur skipt verulegu máli í losunarbókhaldi Íslands og mikilvægt að haldið verði áfram að vinna með nýja orkugjafa og gera hlutina með öðrum hætti. Það er eitthvað sem ég held að muni skipta verulega máli til framtíðar að sjávar- útvegurinn komi sterkur inn í það að draga úr losun og leggja sitt af mörkum í kolefnis- bókhaldi þjóðarinnar. Ein af höfuðáherslum okkar í markáætlun um vísindi og nýsköpun eru loftslagsbreytingar, meðal annars áhrif þeirra á hafið. Eitt af því sem ég heyri frá sjómönnum sjálfum er að þeir sjá með eigin augum breytingar á vistkerfi hafs- ins, áhrif á fiskgengd og fleira. Ég held að sjó- menn geti verið mikilvægir bandamenn gegn loftslagsbreytingum sem hafa skaðleg áhrif á lífríki hafsins og ég lendi iðulega í því að þeir vilja ræða við mig, sérstaklega um umhverf- Sjómenn vilji iðulega ræða umhverfismál Forsætisráðherra kveðst á sjómannadegi hugsa til þess hversu mikil afrek hafa unnist í björgunarstörfum og hvernig tekist hef- ur að fækka dauðsföllum á sjó. Hún segir sjómenn mikilvæga bandamenn í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Morgunblaðið/Eggert „Ég held að allar fjölskyldur eigi einhverjar slíkar sögur en það er stórkostlegt hvernig tekist hefur að fækka slysum á sjó og búa betur að sjómönnum.“ Jakob Bjarnason vélstjóri, langafi Katrínar, og Gunnar Jakobsson kyndari voru með- al þrettán sem fórust þegar Skúli fógeti strandaði fyrir utan Grindavík árið 1933.  SJÁ SÍÐU 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.