Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
É
g held að það stafi af því að fólk skilji
ekki launakerfið og hvað það er að vera
sjómaður,“ segir Bergur sem kveðst
vona að sjómaðurinn muni við þessar
aðstæður í hagkerfinu njóta aukinnar virðingar
enda virðist það vera sjósókn sem ber þjóðfé-
lagið uppi þegar öllu er á botninn hvolft að mati
hans. „Maður hefði haldið að það myndi gerast
eftir hrun þegar sjávarútvegurinn greip okkur
þá.“
Hann segir kjarasamninga það sem er efst á
döfinni hjá Sjómannafélagi Íslands um þessar
mundir, en samningar hafa verið lausir frá því í
desember. „Það þykir ekki langur tími miðað
við fortíðina,“ svarar hann er hann er spurður
hvort fari að draga til tíðinda.
En félagið semur einnig við útgerðir far-
skipa, ferja, hafrannsóknaskipa og varðskipa.
Segir hann að félagið hafi vísað kjaraviðræðum
vegna áhafnar Herjólfs til ríkissáttasemjara og
honum sýnist að samningaviðræður vegna haf-
rannsóknaskipa og varðskipa séu að fara sömu
leið. Varðandi kaupskipin þá er aukin ásókn til
að mynda Eimskipafélagsins í að manna skipin
láglaunaáhöfnum. Segir hann að Eimskip hafi
ekki staðið við gerða samninga um mönnun
flota síns þar sem kveðið er á um lágmarks-
fjölda sjómanna á íslenskum kjörum um borð í
skipum Eimskipafélagsins. Segir hann að ef
Eimskipafélagsmenn sjái ekki að sér og virði
gerðan samning þurfi sjómannafélagið að beita
Eimskipafélagið auknum þrýstingi.
Staðan í samningaviðræðum er sú að samn-
ingsaðilar hafa afhent hvorir öðrum sínar kröf-
ur og segir formaðurinn kröfur sjómanna ekki
margar. „Við erum með eina aðalkröfu og telj-
um hana ekki íþyngjandi fyrir útgerðarmenn.
Þær eru að mestu að þeir fari eftir núgildandi
kjarasamningum sem kveða á um að útgerðar-
menn leiti eftir hæsta verði fyrir aflann. Út-
gerðarmenn hafa í höndum sér sölu aflans og
eiga að tryggja hæsta gangverð fyrir fiskinn.“
Vísar hann meðal annars til ályktunar fé-
lagsins þar sem krafist hefur verið að fram fari
ítarleg rannsókn á verðmyndun makríls á ár-
unum 2012 til 2018. Var sú krafa gerð í fram-
haldi af athugun Verðlagsstofu skiptaverðs á
vigtar- og ráðstöfunarskýrslum útgerða sem
reka landvinnslu og bræðslu. Telur félagið að
athugun Verðlagsstofu skiptaverðs hafi leitt í
ljós að verðlag sé „miklum mun hærra í Noregi
þar sem það miðast við heimsmarkaðverð en á
Íslandi. Hráefnisverð makríls á árun-um 2012-
2018 var að meðaltali 227% hærra í Noregi en á
Íslandi,“ eins og það var orðað í ályktun frá því
í janúar. Var hún samin í samstarfi við Sjó-
manna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
Þrengt að verkfallsrétti sjómanna
Spurður um skýringu þess að ekki hafi gengið
að semja á styttri tíma en raun ber vitni, svarar
Bergur: „Það sama og venjulega. Menn hafa
ekki viljað skoða okkar kröfur. […] Það er
heldur ekkert auðsótt fyrir okkur að sækja
okkar kröfur frekar en fyrri daginn. Það er bú-
ið að gengisfella verkfallsrétt sjómanna þegar
undantekningarlaust eru sett lög á sjómenn
þegar þeir fara í verkfall til þess að ná sínum
kröfum í gegn.“
Formaðurinn telur eðlilegt í ljósi forsög-
unnar að tilefni sé til þess að skoða leiðir til
þess að vernda betur verkfallsrétt sjómanna í
lögum. „Ég held að stjórnvöld verði að koma að
með einhverjum hætti, frekar en að setja lög á
sjómenn.“
Telur leynd yfir gögnum
„Sjómenn eru á aflahlut og þetta er yfir hundr-
að ára gamalt samkomulag um kjör fiskimanna
að þeir eiga hlut í þeim afla sem þeir veiða. En í
bókaflokknum Skútuöldin kemur fram að fyrir
aldamótin 1900 var afla skipt í fjöru og þá fékk
áhöfn fjórða hvern fisk. Að mínu viti var þetta
nokkuð á hreinu þá, en í dag er það því miður
þannig að þó að sjómenn séu á hlut af aflaverð-
mæti þá heldur útgerðin að sér upplýsingum
um sölu aflans þannig að það er ekkert
gagnsæi um hvernig laun sjómanna eru fundin
út.
Þar sem er talað um fiskverð til sjómanna
sem landa til skyldra aðila þá skuli vera gerður
fiskverðssamningur milli útgerðar og áhafnar.
Ég get ekki sé að sjómenn séu í nokkurri samn-
ingsaðstöðu til þess að gera slíkan samning. Í
framkvæmd er ekki gerður neinn samningur
um fiskverð, í rauninni er sent blað um borð og
sagt að þetta verði verðið sem þeir verða að
þiggja fyrir aflann.
Það er kveðið á í kjarasamningum að í slík-
um fiskverðssamningi séu upplýsingar um fisk-
verð til áhafnarinnar, en ég er með undir hönd-
um samning sem sendur hefur verið
Verðlagsnefnd skiptaverðs, þar sem sagt er að
fiskverð sé samkvæmt gildandi verðtöflu. Það
er sem sagt sent blað um borð og mönnum sagt
að þetta sé verðið fyrir fiskinn. […] Eins og
þetta er núna fá stéttarfélög ekki aðgang að
sölunótum, það er bara trúnaðarmaður sem
fær aðgang að þeim. Við hefðum viljað að stétt-
arfélögin fengju aðgang að þessu, þetta á nátt-
úrulega ekki að vera neitt leyndarmál hvernig
fundið er út þetta aflaverðmæti,“ útskýrir for-
maðurinn. „Ég tel það lítið mál að tengja lág-
marksverð við afurðaverð eða markaðsverð ef
vilji er fyrir hendi,“ bætir hann við.
Beðið eftir skýrslu
Spurður hvort hann telji verið að hlunnfara sjó-
menn svarar hann: „Ég segi það ekki, en þetta
er ekki uppi á borði. Þeir eru á aflahlut og af
hverju er ekki meira gegnsæi í því svo þeir sjái
hvernig verðið myndast? […] Það kom fram í
desember í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Loga Ein-
arssonar, formanns Samfylkingarinnar, að efnt
yrði til sérstakrar vinnu í atvinnuvegaráðu-
neytinu vegna verðmunar á afla í sjávarútvegi.
Hann sagðist vænta þess að geta kynnt fljót-
lega á þessu ári með hvaða hætti ætti að standa
að verki og að miðað yrði við óháða rannsókn.“
Bergur kveðst ekki hafa einhverjar sér-
stakar væntingar til þeirrar skýrslu sem verð-
ur til við rannsókn á verðmun, en segir að gott
yrði að sjá hana.
Sjómennskan er spennandi og skemmtilegt
starf að mati Bergs en hann telur að það fylgi
henni mikið erfiði er tengist mikilli fjarveru frá
fjölskyldu og vinum. Þá séu það fyrst og fremst
tekjur sem ráði því hvort fólk sæki í sjó-
mennsku. „Fyrir hrun 2008 var íslenska krón-
an í sögulegu hámarki og þá var ekki svo auð-
velt að manna öll skip. Menn leita á sjó vegna
tekna og ef tekjur eru ekki nægar sækjast
menn ekki jafn mikið eftir því að fara á sjó.“
Krefjast þess
að leitað verði
hæsta verðs
Á sama tíma og Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags
Íslands, óskar sjómönnum og landsmönnum öllum til hamingju
með sjómannadaginn, telur hann ljóst að á tímum efnahags-
samdráttar séu það sjómenn sem nú tryggi þjóðinni gjaldeyris-
tekjur og að framlag þeirra njóti ekki nægilegrar viðurkenningar.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir aukið gagnsæi um verð hagsmunamál.
Morgunblaðið/Eggert
„Það er heldur ekkert auðsótt fyrir okkur að
sækja okkar kröfur frekar en fyrri daginn. Það er
búið að gengisfella verkfallsrétt sjómanna þegar
undantekningarlaust eru sett lög á þá.“