Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is É g held að það stafi af því að fólk skilji ekki launakerfið og hvað það er að vera sjómaður,“ segir Bergur sem kveðst vona að sjómaðurinn muni við þessar aðstæður í hagkerfinu njóta aukinnar virðingar enda virðist það vera sjósókn sem ber þjóðfé- lagið uppi þegar öllu er á botninn hvolft að mati hans. „Maður hefði haldið að það myndi gerast eftir hrun þegar sjávarútvegurinn greip okkur þá.“ Hann segir kjarasamninga það sem er efst á döfinni hjá Sjómannafélagi Íslands um þessar mundir, en samningar hafa verið lausir frá því í desember. „Það þykir ekki langur tími miðað við fortíðina,“ svarar hann er hann er spurður hvort fari að draga til tíðinda. En félagið semur einnig við útgerðir far- skipa, ferja, hafrannsóknaskipa og varðskipa. Segir hann að félagið hafi vísað kjaraviðræðum vegna áhafnar Herjólfs til ríkissáttasemjara og honum sýnist að samningaviðræður vegna haf- rannsóknaskipa og varðskipa séu að fara sömu leið. Varðandi kaupskipin þá er aukin ásókn til að mynda Eimskipafélagsins í að manna skipin láglaunaáhöfnum. Segir hann að Eimskip hafi ekki staðið við gerða samninga um mönnun flota síns þar sem kveðið er á um lágmarks- fjölda sjómanna á íslenskum kjörum um borð í skipum Eimskipafélagsins. Segir hann að ef Eimskipafélagsmenn sjái ekki að sér og virði gerðan samning þurfi sjómannafélagið að beita Eimskipafélagið auknum þrýstingi. Staðan í samningaviðræðum er sú að samn- ingsaðilar hafa afhent hvorir öðrum sínar kröf- ur og segir formaðurinn kröfur sjómanna ekki margar. „Við erum með eina aðalkröfu og telj- um hana ekki íþyngjandi fyrir útgerðarmenn. Þær eru að mestu að þeir fari eftir núgildandi kjarasamningum sem kveða á um að útgerðar- menn leiti eftir hæsta verði fyrir aflann. Út- gerðarmenn hafa í höndum sér sölu aflans og eiga að tryggja hæsta gangverð fyrir fiskinn.“ Vísar hann meðal annars til ályktunar fé- lagsins þar sem krafist hefur verið að fram fari ítarleg rannsókn á verðmyndun makríls á ár- unum 2012 til 2018. Var sú krafa gerð í fram- haldi af athugun Verðlagsstofu skiptaverðs á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum útgerða sem reka landvinnslu og bræðslu. Telur félagið að athugun Verðlagsstofu skiptaverðs hafi leitt í ljós að verðlag sé „miklum mun hærra í Noregi þar sem það miðast við heimsmarkaðverð en á Íslandi. Hráefnisverð makríls á árun-um 2012- 2018 var að meðaltali 227% hærra í Noregi en á Íslandi,“ eins og það var orðað í ályktun frá því í janúar. Var hún samin í samstarfi við Sjó- manna- og vélstjórafélag Grindavíkur. Þrengt að verkfallsrétti sjómanna Spurður um skýringu þess að ekki hafi gengið að semja á styttri tíma en raun ber vitni, svarar Bergur: „Það sama og venjulega. Menn hafa ekki viljað skoða okkar kröfur. […] Það er heldur ekkert auðsótt fyrir okkur að sækja okkar kröfur frekar en fyrri daginn. Það er bú- ið að gengisfella verkfallsrétt sjómanna þegar undantekningarlaust eru sett lög á sjómenn þegar þeir fara í verkfall til þess að ná sínum kröfum í gegn.“ Formaðurinn telur eðlilegt í ljósi forsög- unnar að tilefni sé til þess að skoða leiðir til þess að vernda betur verkfallsrétt sjómanna í lögum. „Ég held að stjórnvöld verði að koma að með einhverjum hætti, frekar en að setja lög á sjómenn.“ Telur leynd yfir gögnum „Sjómenn eru á aflahlut og þetta er yfir hundr- að ára gamalt samkomulag um kjör fiskimanna að þeir eiga hlut í þeim afla sem þeir veiða. En í bókaflokknum Skútuöldin kemur fram að fyrir aldamótin 1900 var afla skipt í fjöru og þá fékk áhöfn fjórða hvern fisk. Að mínu viti var þetta nokkuð á hreinu þá, en í dag er það því miður þannig að þó að sjómenn séu á hlut af aflaverð- mæti þá heldur útgerðin að sér upplýsingum um sölu aflans þannig að það er ekkert gagnsæi um hvernig laun sjómanna eru fundin út. Þar sem er talað um fiskverð til sjómanna sem landa til skyldra aðila þá skuli vera gerður fiskverðssamningur milli útgerðar og áhafnar. Ég get ekki sé að sjómenn séu í nokkurri samn- ingsaðstöðu til þess að gera slíkan samning. Í framkvæmd er ekki gerður neinn samningur um fiskverð, í rauninni er sent blað um borð og sagt að þetta verði verðið sem þeir verða að þiggja fyrir aflann. Það er kveðið á í kjarasamningum að í slík- um fiskverðssamningi séu upplýsingar um fisk- verð til áhafnarinnar, en ég er með undir hönd- um samning sem sendur hefur verið Verðlagsnefnd skiptaverðs, þar sem sagt er að fiskverð sé samkvæmt gildandi verðtöflu. Það er sem sagt sent blað um borð og mönnum sagt að þetta sé verðið fyrir fiskinn. […] Eins og þetta er núna fá stéttarfélög ekki aðgang að sölunótum, það er bara trúnaðarmaður sem fær aðgang að þeim. Við hefðum viljað að stétt- arfélögin fengju aðgang að þessu, þetta á nátt- úrulega ekki að vera neitt leyndarmál hvernig fundið er út þetta aflaverðmæti,“ útskýrir for- maðurinn. „Ég tel það lítið mál að tengja lág- marksverð við afurðaverð eða markaðsverð ef vilji er fyrir hendi,“ bætir hann við. Beðið eftir skýrslu Spurður hvort hann telji verið að hlunnfara sjó- menn svarar hann: „Ég segi það ekki, en þetta er ekki uppi á borði. Þeir eru á aflahlut og af hverju er ekki meira gegnsæi í því svo þeir sjái hvernig verðið myndast? […] Það kom fram í desember í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Loga Ein- arssonar, formanns Samfylkingarinnar, að efnt yrði til sérstakrar vinnu í atvinnuvegaráðu- neytinu vegna verðmunar á afla í sjávarútvegi. Hann sagðist vænta þess að geta kynnt fljót- lega á þessu ári með hvaða hætti ætti að standa að verki og að miðað yrði við óháða rannsókn.“ Bergur kveðst ekki hafa einhverjar sér- stakar væntingar til þeirrar skýrslu sem verð- ur til við rannsókn á verðmun, en segir að gott yrði að sjá hana. Sjómennskan er spennandi og skemmtilegt starf að mati Bergs en hann telur að það fylgi henni mikið erfiði er tengist mikilli fjarveru frá fjölskyldu og vinum. Þá séu það fyrst og fremst tekjur sem ráði því hvort fólk sæki í sjó- mennsku. „Fyrir hrun 2008 var íslenska krón- an í sögulegu hámarki og þá var ekki svo auð- velt að manna öll skip. Menn leita á sjó vegna tekna og ef tekjur eru ekki nægar sækjast menn ekki jafn mikið eftir því að fara á sjó.“ Krefjast þess að leitað verði hæsta verðs Á sama tíma og Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, óskar sjómönnum og landsmönnum öllum til hamingju með sjómannadaginn, telur hann ljóst að á tímum efnahags- samdráttar séu það sjómenn sem nú tryggi þjóðinni gjaldeyris- tekjur og að framlag þeirra njóti ekki nægilegrar viðurkenningar. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir aukið gagnsæi um verð hagsmunamál. Morgunblaðið/Eggert „Það er heldur ekkert auðsótt fyrir okkur að sækja okkar kröfur frekar en fyrri daginn. Það er búið að gengisfella verkfallsrétt sjómanna þegar undantekningarlaust eru sett lög á þá.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.