Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
unneva Ósk Guðmunds-
dóttir þarf að halda mörg-
um boltum á lofti í
vinnunni. Hún er gæða-
stjóri landvinnslu hjá Sam-
herja og ÚA og því fátt í daglegri
starfsemi fyrirtækjanna sem er
henni óviðkomandi. „Starfið snýst í
grunninn um það að tryggja að þau
matvæli sem við framleiðum uppfylli
bæði kröfur viðskiptavina og full-
nægi þeim stöðlum sem við vinnum
eftir. Þetta gerum við m.a. með
gæðaeftirliti inni í vinnslusal, með
reglubundnum sýnatökum og próf-
unum, inntökueftirliti og gæðaskoð-
unum á afurðum á leið út úr húsi.
Fylgjast þarf með hverju skrefi og
bregðast strax við ef eitthvað er ekki
eins og það á að vera.“
Sunneva hefur starfað hjá Sam-
herja og ÚA um nokkurt skeið og
fengið gott tækifæri til að sanna sig.
Hún útskrifaðist með gráðu í sjáv-
arútvegsfræði frá Háskólanum á Ak-
ureyri árið 2017 og var ráðin til
starfa á öryggissviði en gekk síðan til
liðs við gæðadeildina þar sem hún
starfaði í hálft þriðja ár áður en staða
gæðastjóra losnaði.
Vildi gera eitthvað öðruvísi
Sunneva fór áhugaverða leið á þenn-
an stað í lífinu en hún bjó í Hafn-
arfirði til 12 ára aldurs þegar fjöl-
skylda hennar flutti norður í land.
„Pabbi minn var sjómaður þegar ég
var yngri og við fluttum til Akureyr-
ar þegar hann fór í nám við í sjávar-
útvegsfræði við Háskólann á Akur-
eyri,“ segir Sunneva og bætir við að
með því hafi hún fengið ákveðna inn-
sýn í sjávarútveginn. „Ég hafði samt
aldrei starfað í greininni þegar kom
að því að velja háskólanám að lokn-
um menntaskóla. Þegar styttist í
stúdentinn vissi ég ekki alveg hvert
ég vildi stefna og bókaði viðtal hjá
námsráðgjafa sem benti mér á að
nám í sjávarútvegsfræði opnaði
margar dyr, en valið litaðist líka af
því að ég hafði bitið það í mig að gera
eitthvað öðruvísi en allir hinir.“
Sunneva telur að mörg ungmenni
hafi mótað með sér ákveðnar hug-
myndir um sjávarútveginn: „Ég
hugsa að mörg þeirra telji að vinna í
sjávarútvegi þýði það að vera í slori
og vondri lykt alla daga, en greinin
er full af alls konar áhugaverðum og
eftirsóknarverðum störfum,“ segir
Sunneva sem hefur lagt sig fram við
að vekja athygli ungs fólks á tæki-
færunum sem bíða í sjávarútvegi.
„Undanfarin tvö ár hef ég og sam-
starfsfólk mitt verið með kynningar
á starfamessu fyrir grunnskólanem-
endur þar sem við fáum að fræða
ungmennin um þá möguleika sem
standa þeim til boða, og eins hvað
störfin í sjávarútvegi eru að breytast
hratt. Tækniframfarirnar eru örar
og æ stærri hluti þeirra starfa sem
vinna þarf á sjó og landi er eftirlits-
störf sem ganga út á að tryggja að
allur búnaður sé í lagi.“
Meðvituð um gildi hreinlætis
Eins og gefur að skilja var mikil
áskorun að halda starfsemi fyrir-
tækisins gangandi í gegnum kór-
ónuveirufaraldurinn og segir Sunn-
eva að mikil samstaða hafi ríkt hjá
starfsfólki Samherja og ÚA. „Vita-
skuld var lögð enn meiri áhersla á
hreinlæti. Bæði á Akureyri og Dalvík
var starfsmannahópnum skipt í
tvennt og unnið á aðskildum vöktum
með fjöldatakmörkunum,“ segir
Sunneva og segir að sig gruni að far-
aldurinn og viðbrögðin við honum
hafi vakið marga til vitundar um
mikilvægi góðs hreinlætis. „Smám
saman er dagleg starfsemi að kom-
ast aftur í eðlilegt horf, en áfram
unnið eftir ströngum reglum og t.d.
brýnt fyrir starfsfólki að virða
tveggja metra regluna og sett upp
skilrúm á þeim vinnusvæðum þar
sem ekki er gerlegt að halda tveggja
metra fjarlægð frá öðrum.“
Faraldurinn flækti störf Sunnevu
líka að því leyti að áfram þurfti að
halda góðu sambandi við erlenda við-
skiptavini sem margir eiga í tíðum
samskiptum við fiskvinnslurnar og
heimsækja þær reglulega til að gera
úttektir. „Margir okkar stærstu
kaupendur eru með sínar eigin
gæðakröfur og vakta framleiðsluna
mjög vel. Í faraldrinum hafa þeir
ekki getað heimsótt okkur og skoðað
vinnsluna með eigin augum og var
því gripið til þess ráðs að bæði senda
reglubundin gögn og ljósmyndir eft-
ir óskum hvers og eins.“
Gögnin leiða gæðin
Segir Sunneva að það kæmi ekki á
óvart að þegar ástand heimsins
kemst aftur í eðlilegt horf muni það
geta hjálpað íslenskum sjávar-
afurðum hve vel Íslendingum tókst
að hafa hemil á faraldrinum, og eins
hve framarlega íslensk sjávarútvegs-
fyrirtæki standa í gæðamálum. „Allt
gæti þetta stutt við markaðsímynd
íslensks sjávarfangs til lengri tíma
litið,“ segir hún og bætir við að
tækniframfarir leiði þróunina og
með æ fullkomnari fiskvinnslum sé
hægt að tryggja enn meiri gæði og
öryggi.
Nýtt frystihús Samherja á Dalvík
er gott dæmi um þá þróun sem er
fram undan en þegar frystihúsið
verður opnað í ágúst verður það
sennilega það fullkomnasta og sjálf-
virknivæddasta í heimi. „Kosturinn
við alla þessa tækni er ekki síst það
mikla magn gagna sem við fáum frá
öllum búnaði og getum nýtt til að
rekja okkur hratt og vel að hvers
kyns vandamálum sem kunna að
rýra gæði vörunnar.“
Sunneva nefnir sem dæmi að flak
sem ferðast eftir vinnslulínu nýja
frystihússins er sneiðmyndað á
nokkrum stöðum og gervigreind not-
uð til að finna galla í flakinu. „Starfs-
fólk á snyrtilínu mun hafa fyrir fram-
an sig skjá sem sýnir á hitakorti hvar
galla er að finna í þeim flökum sem
starfsmaðurinn hefur sent frá sér og
veitir kerfið þannig endurgjöf í raun-
tíma til að hjálpa starfsfólki að bæta
frammistöðu sína.“
Tæknivæðing auðveldar gæðaeftirlit
Í nýju hátæknifrystihúsi
Samherja á Dalvík safna
tækin alls kyns gögnum
jafnharðan og hægt að
vakta gæðin í rauntíma.
Ljósmynd/Margrét Þóra Þórs
Fimur róboti í fiskvinnslu ÚA staflar kössum af nákvæmni. Í tæknivæddum fisk-
vinnslum má vakta hvert skref enn betur og koma fyrr auga á vandamálin.
Ljósmynd/Margrét Þóra Þórs
„Smám saman er dagleg starfsemi að komast aftur í eðlilegt horf, en áfram unnið eftir ströngum reglum,“ segir Sunneva Ósk um reksturinn hjá ÚA og Samherja.