Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 10

Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is S unneva Ósk Guðmunds- dóttir þarf að halda mörg- um boltum á lofti í vinnunni. Hún er gæða- stjóri landvinnslu hjá Sam- herja og ÚA og því fátt í daglegri starfsemi fyrirtækjanna sem er henni óviðkomandi. „Starfið snýst í grunninn um það að tryggja að þau matvæli sem við framleiðum uppfylli bæði kröfur viðskiptavina og full- nægi þeim stöðlum sem við vinnum eftir. Þetta gerum við m.a. með gæðaeftirliti inni í vinnslusal, með reglubundnum sýnatökum og próf- unum, inntökueftirliti og gæðaskoð- unum á afurðum á leið út úr húsi. Fylgjast þarf með hverju skrefi og bregðast strax við ef eitthvað er ekki eins og það á að vera.“ Sunneva hefur starfað hjá Sam- herja og ÚA um nokkurt skeið og fengið gott tækifæri til að sanna sig. Hún útskrifaðist með gráðu í sjáv- arútvegsfræði frá Háskólanum á Ak- ureyri árið 2017 og var ráðin til starfa á öryggissviði en gekk síðan til liðs við gæðadeildina þar sem hún starfaði í hálft þriðja ár áður en staða gæðastjóra losnaði. Vildi gera eitthvað öðruvísi Sunneva fór áhugaverða leið á þenn- an stað í lífinu en hún bjó í Hafn- arfirði til 12 ára aldurs þegar fjöl- skylda hennar flutti norður í land. „Pabbi minn var sjómaður þegar ég var yngri og við fluttum til Akureyr- ar þegar hann fór í nám við í sjávar- útvegsfræði við Háskólann á Akur- eyri,“ segir Sunneva og bætir við að með því hafi hún fengið ákveðna inn- sýn í sjávarútveginn. „Ég hafði samt aldrei starfað í greininni þegar kom að því að velja háskólanám að lokn- um menntaskóla. Þegar styttist í stúdentinn vissi ég ekki alveg hvert ég vildi stefna og bókaði viðtal hjá námsráðgjafa sem benti mér á að nám í sjávarútvegsfræði opnaði margar dyr, en valið litaðist líka af því að ég hafði bitið það í mig að gera eitthvað öðruvísi en allir hinir.“ Sunneva telur að mörg ungmenni hafi mótað með sér ákveðnar hug- myndir um sjávarútveginn: „Ég hugsa að mörg þeirra telji að vinna í sjávarútvegi þýði það að vera í slori og vondri lykt alla daga, en greinin er full af alls konar áhugaverðum og eftirsóknarverðum störfum,“ segir Sunneva sem hefur lagt sig fram við að vekja athygli ungs fólks á tæki- færunum sem bíða í sjávarútvegi. „Undanfarin tvö ár hef ég og sam- starfsfólk mitt verið með kynningar á starfamessu fyrir grunnskólanem- endur þar sem við fáum að fræða ungmennin um þá möguleika sem standa þeim til boða, og eins hvað störfin í sjávarútvegi eru að breytast hratt. Tækniframfarirnar eru örar og æ stærri hluti þeirra starfa sem vinna þarf á sjó og landi er eftirlits- störf sem ganga út á að tryggja að allur búnaður sé í lagi.“ Meðvituð um gildi hreinlætis Eins og gefur að skilja var mikil áskorun að halda starfsemi fyrir- tækisins gangandi í gegnum kór- ónuveirufaraldurinn og segir Sunn- eva að mikil samstaða hafi ríkt hjá starfsfólki Samherja og ÚA. „Vita- skuld var lögð enn meiri áhersla á hreinlæti. Bæði á Akureyri og Dalvík var starfsmannahópnum skipt í tvennt og unnið á aðskildum vöktum með fjöldatakmörkunum,“ segir Sunneva og segir að sig gruni að far- aldurinn og viðbrögðin við honum hafi vakið marga til vitundar um mikilvægi góðs hreinlætis. „Smám saman er dagleg starfsemi að kom- ast aftur í eðlilegt horf, en áfram unnið eftir ströngum reglum og t.d. brýnt fyrir starfsfólki að virða tveggja metra regluna og sett upp skilrúm á þeim vinnusvæðum þar sem ekki er gerlegt að halda tveggja metra fjarlægð frá öðrum.“ Faraldurinn flækti störf Sunnevu líka að því leyti að áfram þurfti að halda góðu sambandi við erlenda við- skiptavini sem margir eiga í tíðum samskiptum við fiskvinnslurnar og heimsækja þær reglulega til að gera úttektir. „Margir okkar stærstu kaupendur eru með sínar eigin gæðakröfur og vakta framleiðsluna mjög vel. Í faraldrinum hafa þeir ekki getað heimsótt okkur og skoðað vinnsluna með eigin augum og var því gripið til þess ráðs að bæði senda reglubundin gögn og ljósmyndir eft- ir óskum hvers og eins.“ Gögnin leiða gæðin Segir Sunneva að það kæmi ekki á óvart að þegar ástand heimsins kemst aftur í eðlilegt horf muni það geta hjálpað íslenskum sjávar- afurðum hve vel Íslendingum tókst að hafa hemil á faraldrinum, og eins hve framarlega íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki standa í gæðamálum. „Allt gæti þetta stutt við markaðsímynd íslensks sjávarfangs til lengri tíma litið,“ segir hún og bætir við að tækniframfarir leiði þróunina og með æ fullkomnari fiskvinnslum sé hægt að tryggja enn meiri gæði og öryggi. Nýtt frystihús Samherja á Dalvík er gott dæmi um þá þróun sem er fram undan en þegar frystihúsið verður opnað í ágúst verður það sennilega það fullkomnasta og sjálf- virknivæddasta í heimi. „Kosturinn við alla þessa tækni er ekki síst það mikla magn gagna sem við fáum frá öllum búnaði og getum nýtt til að rekja okkur hratt og vel að hvers kyns vandamálum sem kunna að rýra gæði vörunnar.“ Sunneva nefnir sem dæmi að flak sem ferðast eftir vinnslulínu nýja frystihússins er sneiðmyndað á nokkrum stöðum og gervigreind not- uð til að finna galla í flakinu. „Starfs- fólk á snyrtilínu mun hafa fyrir fram- an sig skjá sem sýnir á hitakorti hvar galla er að finna í þeim flökum sem starfsmaðurinn hefur sent frá sér og veitir kerfið þannig endurgjöf í raun- tíma til að hjálpa starfsfólki að bæta frammistöðu sína.“ Tæknivæðing auðveldar gæðaeftirlit Í nýju hátæknifrystihúsi Samherja á Dalvík safna tækin alls kyns gögnum jafnharðan og hægt að vakta gæðin í rauntíma. Ljósmynd/Margrét Þóra Þórs Fimur róboti í fiskvinnslu ÚA staflar kössum af nákvæmni. Í tæknivæddum fisk- vinnslum má vakta hvert skref enn betur og koma fyrr auga á vandamálin. Ljósmynd/Margrét Þóra Þórs „Smám saman er dagleg starfsemi að komast aftur í eðlilegt horf, en áfram unnið eftir ströngum reglum,“ segir Sunneva Ósk um reksturinn hjá ÚA og Samherja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.