Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 14
ValuePump-dælan fer vel með fiskinn og hjálpar famleiðendum að gera verðmætari vöru. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is U ppgangur Skagans 3X undanfarin ár ætti ekki að hafa farið framhjá les- endum. Fyrirtækið bygg- ir á traustum grunni og er með sterkar rætur sem liggja til Akraness og Ísafjarðar en með hug- viti og eljusemi hefur fyrirtækið náð að skipa sér, á skömmum tíma, í fremstu röð í lausnum tengdum matvælaframleiðslu. Ragnar A. Guðmundsson er sölu- stjóri Skagans 3X fyrir Evrópu og Skandinavíu. Hann er stoltur af því hve víða lausnir fyrirtækisins eru í notkun: „Við höfum afhent lausnir til fyrirtækja í öllum heimsálfum, að undanskildu Suðurskautslandinu. Leiða má líkur að því að á hverri stundu sé vél frá okkur að vinna matvæli, einhvers staðar í heim- inum!“ Einn af lykil- mörkuðum Skag- ans 3X er í Nor- egi, en þar var stofnað dóttur- félag árið 2017 og segir Ragnar að síðan hafi verið þar stöðugur vöxtur í sölu. Mestur hefur vöxturinn verið í búnaði tengdum laxa-, uppsjávar- og hvítfiskvinnslu. „Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel hefur gengið á þessum markaði og hversu opnir Norðmenn hafa verið fyrir nýrri tækni fyrir laxaiðnaðinn. Ávinningurinn blasir enda við og getum við með því að of- urkæla laxinn lengt líftíma vör- unnar um allt að sjö daga og erum á sama tíma að beita aðferðum sem gera holdið á laxinum sterkara. Síð- ast en ekki síst þýðir ofurkælingin að sleppa má öllum ís í flutningum á milli landa og heimsálfa, sem gerir flutningana hagkvæmari og umfram allt umhverfisvænni.“ Ekkert óviðkomandi Það kemur hugsanlega einhverjum á óvart hve fjölbreytt vörulína Skagans 3X er en fyrirtækið smíðar RoteX flæði-, kæli- og uppþíðing- arkerfi, sjálfvirka plötufrysta, laus- frysta, sjálfvirk brettakerfi, þvotta- vélar fyrir kör og sjálfvirka kerja-róbota fyrir skipslestir, auk fjölmargra smærri lausna af ýmsu tag. Á meðan fyrirtæki erlendis eru yfirleitt með mun takmarkaðra og sérhæfðara vöruframboð er Skag- anum 3X fátt óviðkomandi þegar kemur að þörfum sjávarútvegsins. Ragnar segir þetta til komið þar sem starfsmenn Skagans 3X hafi það fyrir reglu að vinna með við- skiptavinum að því að greina þarfir þeirra og leita sameiginlegra lausna. Gott dæmi um það er nýhönnuð spíraldæla fyrir afurðir sem fengið hefur nafnið ValuePump. „Um er að ræða svokallaða Arkímedesardælu sem flytur afurð ákveðna vegalengd og lyftir allt að 10 metra hátt upp án þess að pressa of mikið á hráefnið. Kerfið má líka nota til að dæla afla inn í vinnslu og fer dælan mun bet- ur með hráefnið og dregur úr líkum á því að innyfli fisksins springi og smitist út í fiskholdið. Þá notar ValuePump um það bil einn sjötta af þeirri orku sem hefðbundnar dælur þurfa en afköstin eru engu að síður mikil. Sem dæmi þá höfum við smíð- að ValuePump-dælu fyrir fisk- vinnslu í Peterhead í Skotlandi sem getur á hverri klukkustund dælt um 60 til 70 tonnum af uppsjávarafla upp úr skipi og inn í verksmiðju. Áætlað var að hefja uppsetningu á þessum búnaði í júlí en það hefur því miður tafist fram á haustið vegna kórónuveirufaraldursins.“ Það ætti ekki að koma á óvart að kórónuveirufaraldurinn hefur valdið nokkurri truflun á starfsemi Skag- ans 3X. Ekki hefur verið hægt að senda teymi starfsmanna til við- skiptavina til uppsetningar á nýjum vélum og tækjum. Ragnar segir að þó ekki hafi verið hægt að hitta við- skiptavini augliti til auglitis þá hafi söluteymið leyst málin með fjar- fundarbúnaði. „Starf okkar á sölu- sviðinu gengur ekki síst út á það að sýna væntanlegum viðskiptavinum fram á þann ávinning sem þeir geta vænst með okkar kerfum. Oft eru samningarnir stórir, margt sem þarf að huga að, og því getur ferlið stundum tekið langan tíma“, segir Ragnar. Stórir samningar í Bretlandi og Noregi Af nýlegum stórum verkefnum má nefna heildarlausn sem Skaginn 3X er með í smíðum fyrir bresku mat- vöruverslunarkeðjuna Morrisons. „Ólíkt öðrum matvöruverslunum þar í landi starfrækir Morrisons sín- ar eigin fiskvinnslur og kaupir mestmegnis frosið hráefni, en þar komum við sterkt inn. Við smíð- uðum handa þeim heildarkerfi sem þíðir upp frosið hráefni og skilar því ofurkældu í neytendaumbúðir, auk lausnar sem vinnur hliðarafurðir. Áhugaverðast er að við höldum utan um hráefnið í öllum þrepum þannig að við náum að hámarka gæðin og geymsluþolið með okkar lausn. Þetta verður líka spennandi þar sem Morrisons verður fyrsta fyrir- tækið til að innleiða ofurkælingu á Bretlandseyjum,“ segir Ragnar. „Þá hafa samningar tekist við norska laxeldisfyrirtækið Mowi sem er það stærsta í heiminum í þeim geira. Til að gera sér grein fyrir stærð kerf- isins þá mun það auka geymsluþol og minnka ís í flutningi á tæpum 70 þúsund tonnum af laxi árlega.“ Blessunarlega hafa kaupendur sýnt áhrifum kórónuveirufaraldurs- ins mikinn skilning og segir Ragnar að starfsmenn Skagans 3X séu í við- bragðsstöðu að tengja og gangsetja nýjan búnað um leið og aftur verður hægt að ferðast á milli landa með eðlilegum hætti. „Við tökum reglu- lega stöðufundi með viðskiptavinum okkar og leysum úr vandanum í góðri samvinnu.“ Tölvuteikning af RoteX-ofurkælingarvél. Ofurkæling hefur opnað nýja möguleika. Ragnar við eina af fullkomnum vélum Skagans 3X, að meta ástand aflans. Hann stundar enn sjómennsku samhliða sölustörfunum, þegar tækifæri gefst. Þróa lausnir í samræmi við þarfir Skaginn 3X hefur þróað nýja vöru, ValuePump, sem dælir fiski á milli staða hratt og örugglega, notar minni orku og fer töluvert betur með aflann. 14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ragnar bendir á að þótt mörg störf innan hátæknifyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi, eins og hjá Skaganum 3X, kalli á verulega sérhæfingu og sterk- an bakgrunn ýmist á sviði tæknigreina eða iðngreina, þá bíði þar líka marg- vísleg spennandi störf fyrir fólk með annan bakgrunn. Starfsferill Ragnars sjálfs sýnir vel hvert leiðin getur legið innan sjávar- útvegsins og tengdra greina. Ragnar byrjaði snemma að sækja sjóinn, lauk stúdentsprófi á Ísafirði, stundaði síðan nám við Vélskólann þar vestra, fór þá í tæknifræðinám við HR, lauk fiskeldisgráðu frá Háskólanum á Hólum og vinnur nú lokaverkefni í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. „Öll mín fjölskylda hefur sterk tengsl við sjómennskuna. Ég fór fyrst á sjóinn átta ára gamall og keypti minn fyrsta bát 25 ára,“ segir Ragnar en hann gekk til liðs við Skagann 3X fyrir rösklega sjö árum. „Það varð strax ljóst hvað það var mikill kostur fyrir mann í söluhlutverki að hafa verið lengi til sjós og stundað nám í greinum tengdum sjávarútvegi.“ Sjómennskan hjálpar honum við sölustörfin Ragnar A. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.