Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 14
ValuePump-dælan fer vel með fiskinn og hjálpar famleiðendum að gera verðmætari vöru.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
U
ppgangur Skagans 3X
undanfarin ár ætti ekki
að hafa farið framhjá les-
endum. Fyrirtækið bygg-
ir á traustum grunni og
er með sterkar rætur sem liggja til
Akraness og Ísafjarðar en með hug-
viti og eljusemi hefur fyrirtækið náð
að skipa sér, á skömmum tíma, í
fremstu röð í lausnum tengdum
matvælaframleiðslu.
Ragnar A. Guðmundsson er sölu-
stjóri Skagans 3X fyrir Evrópu og
Skandinavíu. Hann er stoltur af því
hve víða lausnir fyrirtækisins eru í
notkun: „Við höfum afhent lausnir
til fyrirtækja í öllum heimsálfum, að
undanskildu Suðurskautslandinu.
Leiða má líkur að
því að á hverri
stundu sé vél frá
okkur að vinna
matvæli, einhvers
staðar í heim-
inum!“
Einn af lykil-
mörkuðum Skag-
ans 3X er í Nor-
egi, en þar var
stofnað dóttur-
félag árið 2017 og
segir Ragnar að síðan hafi verið þar
stöðugur vöxtur í sölu. Mestur hefur
vöxturinn verið í búnaði tengdum
laxa-, uppsjávar- og hvítfiskvinnslu.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að
sjá hve vel hefur gengið á þessum
markaði og hversu opnir Norðmenn
hafa verið fyrir nýrri tækni fyrir
laxaiðnaðinn. Ávinningurinn blasir
enda við og getum við með því að of-
urkæla laxinn lengt líftíma vör-
unnar um allt að sjö daga og erum á
sama tíma að beita aðferðum sem
gera holdið á laxinum sterkara. Síð-
ast en ekki síst þýðir ofurkælingin
að sleppa má öllum ís í flutningum á
milli landa og heimsálfa, sem gerir
flutningana hagkvæmari og umfram
allt umhverfisvænni.“
Ekkert óviðkomandi
Það kemur hugsanlega einhverjum
á óvart hve fjölbreytt vörulína
Skagans 3X er en fyrirtækið smíðar
RoteX flæði-, kæli- og uppþíðing-
arkerfi, sjálfvirka plötufrysta, laus-
frysta, sjálfvirk brettakerfi, þvotta-
vélar fyrir kör og sjálfvirka
kerja-róbota fyrir skipslestir, auk
fjölmargra smærri lausna af ýmsu
tag. Á meðan fyrirtæki erlendis eru
yfirleitt með mun takmarkaðra og
sérhæfðara vöruframboð er Skag-
anum 3X fátt óviðkomandi þegar
kemur að þörfum sjávarútvegsins.
Ragnar segir þetta til komið þar
sem starfsmenn Skagans 3X hafi
það fyrir reglu að vinna með við-
skiptavinum að því að greina þarfir
þeirra og leita sameiginlegra
lausna.
Gott dæmi um það er nýhönnuð
spíraldæla fyrir afurðir sem fengið
hefur nafnið ValuePump. „Um er að
ræða svokallaða Arkímedesardælu
sem flytur afurð ákveðna vegalengd
og lyftir allt að 10 metra hátt upp án
þess að pressa of mikið á hráefnið.
Kerfið má líka nota til að dæla afla
inn í vinnslu og fer dælan mun bet-
ur með hráefnið og dregur úr líkum
á því að innyfli fisksins springi og
smitist út í fiskholdið. Þá notar
ValuePump um það bil einn sjötta af
þeirri orku sem hefðbundnar dælur
þurfa en afköstin eru engu að síður
mikil. Sem dæmi þá höfum við smíð-
að ValuePump-dælu fyrir fisk-
vinnslu í Peterhead í Skotlandi sem
getur á hverri klukkustund dælt um
60 til 70 tonnum af uppsjávarafla
upp úr skipi og inn í verksmiðju.
Áætlað var að hefja uppsetningu á
þessum búnaði í júlí en það hefur
því miður tafist fram á haustið
vegna kórónuveirufaraldursins.“
Það ætti ekki að koma á óvart að
kórónuveirufaraldurinn hefur valdið
nokkurri truflun á starfsemi Skag-
ans 3X. Ekki hefur verið hægt að
senda teymi starfsmanna til við-
skiptavina til uppsetningar á nýjum
vélum og tækjum. Ragnar segir að
þó ekki hafi verið hægt að hitta við-
skiptavini augliti til auglitis þá hafi
söluteymið leyst málin með fjar-
fundarbúnaði. „Starf okkar á sölu-
sviðinu gengur ekki síst út á það að
sýna væntanlegum viðskiptavinum
fram á þann ávinning sem þeir geta
vænst með okkar kerfum. Oft eru
samningarnir stórir, margt sem
þarf að huga að, og því getur ferlið
stundum tekið langan tíma“, segir
Ragnar.
Stórir samningar í
Bretlandi og Noregi
Af nýlegum stórum verkefnum má
nefna heildarlausn sem Skaginn 3X
er með í smíðum fyrir bresku mat-
vöruverslunarkeðjuna Morrisons.
„Ólíkt öðrum matvöruverslunum
þar í landi starfrækir Morrisons sín-
ar eigin fiskvinnslur og kaupir
mestmegnis frosið hráefni, en þar
komum við sterkt inn. Við smíð-
uðum handa þeim heildarkerfi sem
þíðir upp frosið hráefni og skilar því
ofurkældu í neytendaumbúðir, auk
lausnar sem vinnur hliðarafurðir.
Áhugaverðast er að við höldum utan
um hráefnið í öllum þrepum þannig
að við náum að hámarka gæðin og
geymsluþolið með okkar lausn.
Þetta verður líka spennandi þar
sem Morrisons verður fyrsta fyrir-
tækið til að innleiða ofurkælingu á
Bretlandseyjum,“ segir Ragnar. „Þá
hafa samningar tekist við norska
laxeldisfyrirtækið Mowi sem er það
stærsta í heiminum í þeim geira. Til
að gera sér grein fyrir stærð kerf-
isins þá mun það auka geymsluþol
og minnka ís í flutningi á tæpum 70
þúsund tonnum af laxi árlega.“
Blessunarlega hafa kaupendur
sýnt áhrifum kórónuveirufaraldurs-
ins mikinn skilning og segir Ragnar
að starfsmenn Skagans 3X séu í við-
bragðsstöðu að tengja og gangsetja
nýjan búnað um leið og aftur verður
hægt að ferðast á milli landa með
eðlilegum hætti. „Við tökum reglu-
lega stöðufundi með viðskiptavinum
okkar og leysum úr vandanum í
góðri samvinnu.“
Tölvuteikning af RoteX-ofurkælingarvél. Ofurkæling hefur opnað nýja möguleika.
Ragnar við eina af fullkomnum vélum Skagans 3X, að meta ástand aflans.
Hann stundar enn sjómennsku samhliða sölustörfunum, þegar tækifæri gefst.
Þróa lausnir
í samræmi
við þarfir
Skaginn 3X hefur þróað nýja vöru, ValuePump, sem
dælir fiski á milli staða hratt og örugglega, notar
minni orku og fer töluvert betur með aflann.
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ragnar bendir á að þótt mörg störf innan hátæknifyrirtækja sem tengjast
sjávarútvegi, eins og hjá Skaganum 3X, kalli á verulega sérhæfingu og sterk-
an bakgrunn ýmist á sviði tæknigreina eða iðngreina, þá bíði þar líka marg-
vísleg spennandi störf fyrir fólk með annan bakgrunn.
Starfsferill Ragnars sjálfs sýnir vel hvert leiðin getur legið innan sjávar-
útvegsins og tengdra greina. Ragnar byrjaði snemma að sækja sjóinn, lauk
stúdentsprófi á Ísafirði, stundaði síðan nám við Vélskólann þar vestra, fór þá
í tæknifræðinám við HR, lauk fiskeldisgráðu frá Háskólanum á Hólum og
vinnur nú lokaverkefni í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. „Öll mín
fjölskylda hefur sterk tengsl við sjómennskuna. Ég fór fyrst á sjóinn átta ára
gamall og keypti minn fyrsta bát 25 ára,“ segir Ragnar en hann gekk til liðs
við Skagann 3X fyrir rösklega sjö árum. „Það varð strax ljóst hvað það var
mikill kostur fyrir mann í söluhlutverki að hafa verið lengi til sjós og stundað
nám í greinum tengdum sjávarútvegi.“
Sjómennskan hjálpar
honum við sölustörfin
Ragnar A.
Guðmundsson