Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 16

Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M amma og pabbi vildu að ég færi að kaupa mér íbúð. Ég var að læra smíðar og launin voru ekki nógu góð þar, þannig að pabbi fékk mig með í nokkra túra á Venus í Hafnarfirði til þess að ég gæti safnað fyrir íbúð. Sautján árum seinna er ég enn á sjó,“ svarar Þröst- ur, háseti á Helgu Maríu RE, spurður hvað hafi fengið hann til þess að fara á sjó. Hann kveðst hafa strax hafa orðinn hrif- inn af sjómennsku. „Ég byrjaði 23. mars 2003 og þetta var geggjað veður, var bræla allan tímann, þannig að maður fékk strax besta veðrið. En um sumarið fórum við á úthafið á karfaveiðar. Þá var alveg spegilsléttur sjór og 20 stiga hiti, mað- ur var nánast bara í sól- baði í frívaktinni. Þetta var stórkostlegt.“ Kannski eru ekki allir hrifnir af því að upp- lifa brælu í langan tíma, en hugsanlega hef- ur Þröstur erft einhver sjósóknar-gen þar sem langafi hans, afi og pabbi hafa verið sjó- menn. „Ég held að blóðið sé mjög salt í þessari ætt. […] Þegar ég byrjaði tók ég átta mánuði samfellt til þess að eiga fyrir íbúðinni.“ Fékk ljósmyndadellu Það leið þó nokkur tími þar til Þröstur hóf árið 2011 að ljósmynda lífið um borð. „Þá var ég að byrja að læra að kafa og mér fannst það svo magnað sem var neðansjávar að mig langaði að taka myndir svo ég gæti sýnt fólki það. Þar byrjaði þessi ljós- myndadella.“ Árið 2013 hóf Þröstur störf á Ásbirni og byrjaði að taka myndir til þess að eiga og kveðst hann hafa haldið óslitið áfram að sinna áhugamálinu. Hann segir Friðleif Ólafsson skipstjóra hafa bent Mar- port á sig þegar þeir voru að leita að mynd- um af búnaði þeirra til birtingar og upp úr því hafi margoft verið birtar myndir eftir sig. Þröstur segir vinnufélagana ekki kippa sér upp við það að hann sé að ljósmynda um borð enda löngu orðnir vanir að sjá hann með myndavél á lofti. „Þeim finnst þetta bara gaman, held ég.“ Hann kveðst aðallega leita eftir viðfangsefnum sem tengist stemn- ingunni og mannlífinu á sjó. „Ég er í port- rettmyndum af fólki sem eru svona 20-30% og svo umhverfið til þess að sýna hvað sjór- inn og skipið er stórt miðað við manneskj- una. Ég vil sýna hvernig er á sjó í alvör- unni.“ Hann stefnir nú, ásamt Pétri Axel Birg- issyni á Tómasi Þorvaldssyni, að útgáfu bókar með ljósmyndum af sjónum. „Við stefnum að því að hún komi út vonandi fyrir jól.“ Varð strax heillaður af sjómennskunni Þröstur Njálsson er ekki bara sjómaður; hann er líka mikill áhugamaður um ljósmyndun og hafa 200 mílur fengið að birta myndir sem hann hefur tekið af lífinu á sjónum. Þröstur Njálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.