Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
T
il stendur að færa báta, sem
áður lágu í Suðurbugt, í
Vesturbugtina. Suðurbugtin
er fyrir framan grænu ver-
búðirnar, þar sem mörg vinsæl veit-
ingahús er að finna.
„Þegar óveður gengu yfir í vetur
kom í ljós að bátarnir voru ekki eins
vel varðir í Suðurbugt og reiknað
var með þannig að við erum að færa
þá enn vestar,“ segir Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Þessi nýja viðlega getur ekki ann-
að öllum bátum og því verður áfram
viðlega í Norðurbugt eins og verið
hefur. Viðlegan er eins og nafnið
gefur til kynna norðar í höfninni,
milli Grandabryggju og Síldar-
bryggju.
„Fingur“ settir á flotbrýrnar
Að sögn Gísla varð Vesturbugtin
fyrir valinu eftir viðræður við eig-
endur smábáta sem legið höfðu í
Suðurbugt.
Nýja legan verður útbúin með
þeim hætti að settir verða svokall-
aðir „fingur“ á flotbrýr sem fyrir eru
á svæðinu. Gísli segir að fingurnir
séu til nú þegar og reiknar með að
byrjað verði að setja þá upp fljót-
lega. Í fyrra voru settir upp nýir og
miklu öruggari landgangar á flot-
bryggjur hafnarinnar. Lloyds Reg-
ister var fengið til að taka landgang-
ana út og stóðust þeir prófið með
sóma.
Til stendur að endurbyggja svo-
kallaða Óðinsbryggju, þar sem sam-
nefnt varðskip liggur. Sú bryggja er
orðin ansi döpur, segir Gísli. Önnur
bryggjuverkefni á svæðinu eru ekki
á dagskránni.
Allmargir smábátar hafa landað
reglulega í Reykjavíkurhöfn und-
anfarnar vikur samkvæmt upplýs-
ingum úr aflaskráningarkerfi Fiski-
stofu. Þannig hafa 13 handfærabátar
á strandveiðum landað afla og tveir
netabátar. Handfærabátarnir eru
Valþjófur ÍS, Valdi í Rúfeyjum HF,
Toggi Mara RE, Svampur KÓ,
Stefnir KÓ, Núpur HF, Nótt RE,
Nafni RE, Már RE, Halla Daníels-
dóttir RE, Bjargfugl RE, Ásþór RE
og Ársæll RE. Netabátarnir eru
Sigrún RE og Neisti HU.
Líflegt hefur verið í Flóanum og
mikið athafnalíf við Bótarbryggju
þegar bátarnir eru að koma inn til
löndunar. Þar eru tveir löndunar-
kranar rétt við fiskmarkaðinn í
Bakkaskemmu (Mathöll Granda).
Veigamestu framkvæmdinni í
vesturhöfninni lauk í júní 2018 þegar
nýr hafnarbakki var tekinn í notkun
á Norðurgarði. Hinn nýi bakki er
fyrir framan frystihús Brims og með
tilkomu hans batnaði aðstaða til
löndunar á fiski verulega.
Bakkinn er 120 metra langur stál-
bakki með steyptri þekju og dýpið
við hann er 7,2 metrar. Í steyptu
þekjunni er snjóbræðslulögn sem
nýtir affallsvatn frá fiskvinnslu
Brims.
Fyrir utan hefðbundnar lagnir
eins og fyrir rafmagn og kalt vatn er
einnig lögn fyrir heitt vatn til að
kynda skipin í landlegum.
Heildarkostnaður vegna bakka og
bakkasvæðis var nálægt 560 millj-
ónum króna. Aðalverktaki var Ístak
hf. Danska verktakafyrirtækið Per
Aarslef a/s var undirverktaki við
niðurrekstur stálþils.
Nýi hafnarbakkinn kom í stað tré-
bryggju sem var orðin lúin. Hún var
byggð árið 1966 en hafði verið end-
urnýjuð að einhverju leyti.
Brim er langstærsta útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækið í Reykjavík.
Brim gerir út fjóra ísfisktogara,
Akurey, Viðey, Helgu Maríu og Ör-
firisey, og sjá þeir botnfiskvinnslum
félagsins fyrir afla til vinnslu. Þeir
eru vel tækjum búnir og veiða að-
allega karfa, ufsa og þorsk. Lögð er
áhersla á góða meðhöndlun og kæl-
ingu aflans, að því er fram kemur á
heimasíðu fyrirtækisins.
Þá gerir Brim út tvo frystitogara,
Höfrung lll ogVigra, sem veiða grá-
lúðu, karfa, þorsk, ýsu, ufsa, gulllax
og makríl auk ýmissa annarra fisk-
tegunda. Aflinn er stærðarflokkaður
og ýmist flakaður eða frystur heill
um leið og hann kemur um borð.
Í fiskvinnslu Brims við Norður-
garð í Reykjavík er lögð áhersla á
framleiðslu flaka og flakastykkja úr
karfa, ufsa og þorski. Fiskiðjuverið
framleiðir bæði frystar og ferskar
afurðir allan ársins hring. Ferskar
afurðir eru sendar samdægurs með
flugi eða kæligámum á erlenda
markaði en frystu afurðirnar eru
fluttar út í frystigámum eða með
brettaskipum.
Endurnýjun hjá Brimi
Í apríl sl. hófust miklar endurbætur
á fiskiðjuverinu á Norðurgarði.
Eldri búnaður var fjarlægður og
verið er að koma fyrir nýjum og full-
komnum búnaði, sem Marel fram-
leiðir. Kerfið felur í sér ýmsar nýj-
ungar, þar á meðal öflugt
gæðaeftirlitskerfi og nýjustu róbóta-
tækni sem mun sjálfvirknivæða og
straumlínulaga vinnsluna til muna.
Áætlað er að hefja vinnslu á Norð-
urgarði að nýju í lok júní. Starfs-
fólkið verður í sumarleyfi meðan á
framkvæmdum stendur.
Næststærsta útgerðarfyrirtækið
er Fiskkaup, sem rekur fullkoma
fiskvinnslu á Fiskislóð 34. Húsið er
sérhannað fyrir starfsemina og er öll
aðstaða fyrsta flokks.
Fiskkaup er fjölskyldufyrirtæki
sem byggir á langri hefð og hefur
unnið að framleiðslu á gæðasaltfiski
óslitið í áratugi. Fiskkaup á og gerir
út beitningavélaskipið Kristrúnu
RE og krókaaflamarksbátinn Jón
Ásbjörnsson RE. Afli báta félagsins
er áætlaður tæp 3.500 tonn á árs-
grundvelli.
Þá má nefna að smærri fyrirtæki
á Granda vinna afla og selja meðal
annars til fiskbúða á höfuðborgar-
svæðinu.
Morgunblaðið/sisi
Fiskihöfn Reykvíkinga endurbætt
Morgunblaðið/Eggert
Afla landað á Bótarbryggju. Kolbeinn Ingi Gunnarsson og Rúdólf Jón Árnason landa grásleppu á vertíðinni í vetur af bát sín-
um Höllu Daníelsdóttur. Á Bótarbryggju hafa Faxaflóahafnir útbúið löndunaraðstöðu fyrir smærri báta, t.d. strandveiðibáta.
Tillaga að uppsetningu fi ngra á fl otbryggjur
Vesturhöfnin
í Reykjavík
Fimm fi ngur 8 m langir
Ægisgarður
Gra
nda
gar
ður
Vesturhöfn
Þrír fi ngur
8 m langir
Lo
ft
m
yn
di
r e
hf
.
Vesturhöfn Gömlu hafn-
arinnar er fiskihöfn
Reykvíkinga. Þar hafa
verið gerðar endurbæt-
ur á allra síðustu árum
og í sumar stendur til
að bæta aðstöðu fyrir
smábáta í Vesturbugt,
vestan við Slippinn, ná-
lægt Sjóminjasafninu.
Með nýrri bryggju sem byggð var á Norðurgarði var
aðstaða Brims, áður HB Granda, stórbætt. Aflanum
er landað úr togurum félagsins og hann síðan fluttur
með lyfturum stutta vegalengd inn í fiskvinnsluna.