Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is T il stendur að færa báta, sem áður lágu í Suðurbugt, í Vesturbugtina. Suðurbugtin er fyrir framan grænu ver- búðirnar, þar sem mörg vinsæl veit- ingahús er að finna. „Þegar óveður gengu yfir í vetur kom í ljós að bátarnir voru ekki eins vel varðir í Suðurbugt og reiknað var með þannig að við erum að færa þá enn vestar,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Þessi nýja viðlega getur ekki ann- að öllum bátum og því verður áfram viðlega í Norðurbugt eins og verið hefur. Viðlegan er eins og nafnið gefur til kynna norðar í höfninni, milli Grandabryggju og Síldar- bryggju. „Fingur“ settir á flotbrýrnar Að sögn Gísla varð Vesturbugtin fyrir valinu eftir viðræður við eig- endur smábáta sem legið höfðu í Suðurbugt. Nýja legan verður útbúin með þeim hætti að settir verða svokall- aðir „fingur“ á flotbrýr sem fyrir eru á svæðinu. Gísli segir að fingurnir séu til nú þegar og reiknar með að byrjað verði að setja þá upp fljót- lega. Í fyrra voru settir upp nýir og miklu öruggari landgangar á flot- bryggjur hafnarinnar. Lloyds Reg- ister var fengið til að taka landgang- ana út og stóðust þeir prófið með sóma. Til stendur að endurbyggja svo- kallaða Óðinsbryggju, þar sem sam- nefnt varðskip liggur. Sú bryggja er orðin ansi döpur, segir Gísli. Önnur bryggjuverkefni á svæðinu eru ekki á dagskránni. Allmargir smábátar hafa landað reglulega í Reykjavíkurhöfn und- anfarnar vikur samkvæmt upplýs- ingum úr aflaskráningarkerfi Fiski- stofu. Þannig hafa 13 handfærabátar á strandveiðum landað afla og tveir netabátar. Handfærabátarnir eru Valþjófur ÍS, Valdi í Rúfeyjum HF, Toggi Mara RE, Svampur KÓ, Stefnir KÓ, Núpur HF, Nótt RE, Nafni RE, Már RE, Halla Daníels- dóttir RE, Bjargfugl RE, Ásþór RE og Ársæll RE. Netabátarnir eru Sigrún RE og Neisti HU. Líflegt hefur verið í Flóanum og mikið athafnalíf við Bótarbryggju þegar bátarnir eru að koma inn til löndunar. Þar eru tveir löndunar- kranar rétt við fiskmarkaðinn í Bakkaskemmu (Mathöll Granda). Veigamestu framkvæmdinni í vesturhöfninni lauk í júní 2018 þegar nýr hafnarbakki var tekinn í notkun á Norðurgarði. Hinn nýi bakki er fyrir framan frystihús Brims og með tilkomu hans batnaði aðstaða til löndunar á fiski verulega. Bakkinn er 120 metra langur stál- bakki með steyptri þekju og dýpið við hann er 7,2 metrar. Í steyptu þekjunni er snjóbræðslulögn sem nýtir affallsvatn frá fiskvinnslu Brims. Fyrir utan hefðbundnar lagnir eins og fyrir rafmagn og kalt vatn er einnig lögn fyrir heitt vatn til að kynda skipin í landlegum. Heildarkostnaður vegna bakka og bakkasvæðis var nálægt 560 millj- ónum króna. Aðalverktaki var Ístak hf. Danska verktakafyrirtækið Per Aarslef a/s var undirverktaki við niðurrekstur stálþils. Nýi hafnarbakkinn kom í stað tré- bryggju sem var orðin lúin. Hún var byggð árið 1966 en hafði verið end- urnýjuð að einhverju leyti. Brim er langstærsta útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið í Reykjavík. Brim gerir út fjóra ísfisktogara, Akurey, Viðey, Helgu Maríu og Ör- firisey, og sjá þeir botnfiskvinnslum félagsins fyrir afla til vinnslu. Þeir eru vel tækjum búnir og veiða að- allega karfa, ufsa og þorsk. Lögð er áhersla á góða meðhöndlun og kæl- ingu aflans, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Þá gerir Brim út tvo frystitogara, Höfrung lll ogVigra, sem veiða grá- lúðu, karfa, þorsk, ýsu, ufsa, gulllax og makríl auk ýmissa annarra fisk- tegunda. Aflinn er stærðarflokkaður og ýmist flakaður eða frystur heill um leið og hann kemur um borð. Í fiskvinnslu Brims við Norður- garð í Reykjavík er lögð áhersla á framleiðslu flaka og flakastykkja úr karfa, ufsa og þorski. Fiskiðjuverið framleiðir bæði frystar og ferskar afurðir allan ársins hring. Ferskar afurðir eru sendar samdægurs með flugi eða kæligámum á erlenda markaði en frystu afurðirnar eru fluttar út í frystigámum eða með brettaskipum. Endurnýjun hjá Brimi Í apríl sl. hófust miklar endurbætur á fiskiðjuverinu á Norðurgarði. Eldri búnaður var fjarlægður og verið er að koma fyrir nýjum og full- komnum búnaði, sem Marel fram- leiðir. Kerfið felur í sér ýmsar nýj- ungar, þar á meðal öflugt gæðaeftirlitskerfi og nýjustu róbóta- tækni sem mun sjálfvirknivæða og straumlínulaga vinnsluna til muna. Áætlað er að hefja vinnslu á Norð- urgarði að nýju í lok júní. Starfs- fólkið verður í sumarleyfi meðan á framkvæmdum stendur. Næststærsta útgerðarfyrirtækið er Fiskkaup, sem rekur fullkoma fiskvinnslu á Fiskislóð 34. Húsið er sérhannað fyrir starfsemina og er öll aðstaða fyrsta flokks. Fiskkaup er fjölskyldufyrirtæki sem byggir á langri hefð og hefur unnið að framleiðslu á gæðasaltfiski óslitið í áratugi. Fiskkaup á og gerir út beitningavélaskipið Kristrúnu RE og krókaaflamarksbátinn Jón Ásbjörnsson RE. Afli báta félagsins er áætlaður tæp 3.500 tonn á árs- grundvelli. Þá má nefna að smærri fyrirtæki á Granda vinna afla og selja meðal annars til fiskbúða á höfuðborgar- svæðinu. Morgunblaðið/sisi Fiskihöfn Reykvíkinga endurbætt Morgunblaðið/Eggert Afla landað á Bótarbryggju. Kolbeinn Ingi Gunnarsson og Rúdólf Jón Árnason landa grásleppu á vertíðinni í vetur af bát sín- um Höllu Daníelsdóttur. Á Bótarbryggju hafa Faxaflóahafnir útbúið löndunaraðstöðu fyrir smærri báta, t.d. strandveiðibáta. Tillaga að uppsetningu fi ngra á fl otbryggjur Vesturhöfnin í Reykjavík Fimm fi ngur 8 m langir Ægisgarður Gra nda gar ður Vesturhöfn Þrír fi ngur 8 m langir Lo ft m yn di r e hf . Vesturhöfn Gömlu hafn- arinnar er fiskihöfn Reykvíkinga. Þar hafa verið gerðar endurbæt- ur á allra síðustu árum og í sumar stendur til að bæta aðstöðu fyrir smábáta í Vesturbugt, vestan við Slippinn, ná- lægt Sjóminjasafninu. Með nýrri bryggju sem byggð var á Norðurgarði var aðstaða Brims, áður HB Granda, stórbætt. Aflanum er landað úr togurum félagsins og hann síðan fluttur með lyfturum stutta vegalengd inn í fiskvinnsluna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.