Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
G
U
N
N
A
R
JÚ
L
A
R
T
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að markaði mikilvæg tímamót í ís-
lenskum sjávarútvegi þegar plastker-
in ruddu sér til rúms. Kerin breyttu
vinnubrögðum um borð í skipum, ein-
földuðu flutninga á fiski og léku stórt hlutverk
í að stórauka gæði íslenskra sjávarafurða með
bættri meðhöndlun og betri kælingu aflans.
Hjá Sæplasti hefur rík áhersla verið lögð á
vöruþróun og fyrirtækið unnið náið með
greininni að því að hanna og framleiða enn
betri plastker. Augljósasta breytingin sem
orðið hefur frá því að fyrstu kerin komu á
markað er að í dag notar greinin mun grynnri
ker svo að minni þyngd hvílir á þeim fiski sem
liggur neðst í hverju keri. Sæplast er í útrás,
með verksmiðjur á Dalvík, í Kanada og á
Spáni og meirihlutaeigandi í félagi sem leigir
plastker á Íslandi, í Noregi, Danmörku, Bret-
landi, Frakklandi og víðar, en finna má um-
boðsmenn og dreifiaðila Sæplasts um allan
heim og viðskiptavinirnir bæði fyrirtæki í
sjávarútvegi sem og kjötframleiðendur. Til
viðbótar við kerin framleiðir Sæplast einnig
rotþrær, tanka, brunna og þess háttar bygg-
ingarvöru en þær vörur selur fyrirtækið ein-
vörðungu á heimamarkaði, í öllum helstu
byggingarvöruverslunum landsins.
Þola 20 tonn
Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri Sæ-
plasts, segir vöruþróun undanfarinna ára
einkum hafa miðað að því að gera kerin sterk-
byggðari og öruggari en á sama tíma um-
hverfisvænni og auðveldari í flutningum.
„Þegar kerum hefur verið staflað í þrjár eða
fjórar hæðir er mikið álag komið á neðsta
kerið og höfum við unnið að því að breyta
hönnuninni þannig að stöflunarflöturinn sé
sem breiðastur og þyngdardreifingin sem
jöfnust. Nýlega eignuðumst við okkar eigin
tæki til að gera álagsprófanir á kerum og hafa
tilraunir leitt í ljós að kerin okkar þola nú allt
að 20 tonna stöflunarálag í skamman tíma.“
Til að auðvelda flutninga og hjálpa sjávar-
útvegsfyrirtækjum að minnka kolefnisfótspor
sitt hefur Sæplast einnig þróað sk. tvíburaker
sem félagið er með einkaleyfi á. Þegar þessi
ker eru tóm má stafla þeim hverju ofan í ann-
að og þannig rúma 50-60% fleiri ker í hverjum
flutningabíl. Tvíburakerin hafa líka þann kost
að þegar þau eru full af afla og staflað upp er
snertiflöturinn á milli kera stærri en á hefð-
bundnum kerum og þyngdardreifingin betri
fyrir vikið.
Daði segir að þótt tvíburaker hafi ótvíræða
kosti sýni reynslan að það taki nýjar plast-
keralausnir um það bil tíu ár að ná almennri
útbreiðslu í sjávarútveginum. „Við gætum
ekki ákveðið það einhliða að bjóða eingöngu
upp á tvíburaker því víða myndi það kalla á
breytingar, s.s. í lestum skipa og í þvottakerf-
um, að skipta alfarið yfir í tvíburaker. Ekki er
um miklar breytingar að ræða, en breytingar
engu að síður, og skemmst að minnast þess að
það tók t.d. um áratug fyrir sjávarútveginn að
fara úr því að geyma fisk í kössum yfir í að
nota ker.“
Áskorun í umhverfismálum
Síðast en ekki síst hefur Sæplast lagt áherslu
á að þróa ker sem auðveldara er að endur-
Í framtíðinni kunna fiskiker að vera í stöðugu sambandi
við miðlæga gagnagrunna sem vakta t.d. hvar kerið er
niðurkomið og hitastig fisksins sem það geymir.
„Þegar kerum hefur verið staflað í þrjár eða
fjórar hæðir er mikið álag komið á neðsta
kerið og höfum við unnið að því að breyta
hönnuninni þannig að stöflunarflöturinn sé
sem breiðastur og þyngdardreifingin sem
jöfnust,“ segir Daði Valdimarsson.
Kerin verða
snjallari, um-
hverfisvænni
og öruggari