Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 27
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 27
vinna. Að gera umhverfisvænni ker er hæg-
ara sagt en gert og þarf að finna rétta jafn-
vægið á milli þess annars vegar að kerin þjóni
hlutverki sínu vel, séu sterkbyggð og hafi
góða hitaeinangrun, og hins vegar að þau séu
gerð úr efnum sem ekki er erfitt að endur-
vinna: „Við bjóðum upp á tvenns konar gerðir
af kerum. Eldri gerðin er gerð úr pólýetýlen-
skel með pólýúretanfyllingu en vandinn er sá
að með því að nota tvö ólík efni verður endur-
vinnsla flóknari og að auki ekki hægt að end-
urvinna pólýúretan svo að ýmist þarf að urða
efnið eða brenna. Rétt fyrir aldamótin settum
við síðan á markað ker sem nota eingöngu
pólýetýlen bæði í skel og fyllingu. Við búum
til nk. pólýetýlenfroðu sem veitir ágæta ein-
angrun, og þar sem aðeins er notað eitt efni í
allt kerið hentar það vel til endurvinnslu en
hefur á móti ögn minni hitaeinangrunargetu.
Pólýetýlenkerin eru líka þyngri, en á móti
kemur að þau eru alla jafna sterkari og end-
ingarbetri.“
Næsta áskorun er fólgin í því að nota end-
urunnið plast í kerin sjálf en þær reglur gilda
um umbúðir matvæla að endurunnið efni má
ekki komast í snertingu við matvælin. Gæti
endurunnið pólýetýlen þá verið notað í froð-
una í hverju keri en nýtt pólýetilín í skelina
sem fer þar utan um.
Snjallker bæta rekjanleika
Í framtíðinni má svo reikna með að plastker
muni leika enn stærra hlutverk í tæknivæð-
ingu sjávarútvegsins og þeirri miklu áherslu
sem lögð er á rekjanleika sjávarafurða. Daði
upplýsir að þróun nk. snjallkerja hafi verið í
gangi um nokkurt skeið. „Við getum nú þegar
boðið upp á ker með strikamerki og örmerki á
einum og sama miðanum sem steyptur er inn
í kerið,“ segir Daði en skynjarar um borð í
skipum, fiskvinnslum og á mörkuðum geta
greint örmerkin þráðlaust og þannig rakið
ferðalag fisksins í hverju kari. „Það er ekki
spurning um hvort heldur hvenær kerin okk-
ar geta verið í beinu og stöðugu sambandi við
gagnagrunn sem heldur utan um þætti á borð
við staðsetningu kersins, hitastig og annað
slíkt.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvíburakerin hafa gefið góða raun og taka mun minna pláss í flutningum. Við hönnun kera þarf m.a. að tryggja öryggi og styrkleika og góða meðferð á fiskinum.