Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 34

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is S tafirnir á klukkunni stóðu lóðrétt þegar lagt var frá byggju í Ólafsvík. End- anum var kippt inn fyrir borðstokkinn af hressum körlum sem stóðu á dekk- inu og gerðu sjóklárt. Hvert handtak var unnið af öryggi enda vanir menn. Báturinn skreið lip- urlega út höfnina og fyrir sjóvarnargarðinn og svo var stefnt í vestur. Klukkan var 06:04; dag- urinn 13. maí 2020. Fengsæll vetur en leiðinlegt í sjónn Öldurnar voru mjúkar og vaggandi; strákarnir voru í koju á útstíminu en blaðamaður var uppi í brú og fylgdist með. Tveir dragnótabátar voru í augnsýn framundan. Virtust í fínu fiskiríi á góðum slóðum út af Öndverðarnesi. Við Rif var strandveiðibátur og á skaki var sjómaður sem galt kveðjuna í líku þegar til hans var veifað. Liðinn vetur var fengsæll og góður hjá áhöfninni á Steinunni SH-167. Báturinn er 236 búttótonn, smíðaður árið 1970 og var fyrstu ár- in gerður út frá Grindavík undir allt öðru nafni. Síðan um 1990 hefur Steinunn SH svo verið gerð út frá Ólafsvík af útgerð sem er samnefnd bátnum. Steinunn ehf. er fjölskyldufyrirtæki í eigu bræðranna Óðins, Ægis, Brynjar og Þórs Kristmundssona sem allir eru í áhöfn. Þeir eru sömuleiðis af hinni svonefndu Stakkholts- fjölskyldu sem lengi hefur verið umsvifamikil í sjávarútvegi í þeirri miklu verstöð sem Ólafsvík er. „Ég býst við fiskiríi, við höfum fiskað vel að undanförnu,“ sagði Brynjar skipstjóri á stíminu út af Hellissandi. Morgunfréttirnar mölluðu í Ríkisútvarpinu; kórónuveiran í algleymingi og tóm vandræði. „Reyndar hefur þessi vetur ver- ið alveg ágætur, þrátt fyrir að oft hafi verið frekar leiðinlegt í sjóinn. Samt hefur oftast ver- ið hægt að róa; dagarnir sem fallið hafa úr hafa ekki verið margir. Við erum alveg sáttir við ver- tíðina.“ Á fullum snúning Steinunn SH hefur lengi verið gerð út á drag- nót og jafnan er fiskað á sömu slóðum. Þar er átt við að góðir skipstjórnarmenn halda sig gjarnan og helst á miðum sem þeir þekkja vel og vita að fiskjar er jafnan von. Stefnan var því sett vestur og suður fyrir Öndverðarnes, en bátar úr höfnum á Snæfellsnesi eru þar mikið. Brynjar skipstjóri sagði strákunum að gera allt klárt og kasta voðinni sem þeir og gerðu. Mannskapurinn stóð aftur í skut; hver karl á sínum stað. Kaðlar og vírar rúlluðu á fullum snúningi. Nótin var svo dregin eftir bátnum svo sem í 15 til 20 mínútur en eftirtekjan var lítil. Rennslið var tekið þrívegis og í því síðasta voru um 15 tonn í voðinni. Húrra! Pokarnir úr dragnótinni voru hífðir um borð hver af öðrum; allir sneisafullir af rígvænum þorski og með slæddust ýsur og ufsar. Opnað Í fínu fiskiríi á góðum slóðum Skipverjar á Ólafsvíkurbátnum Steinunni SH fiskuðu alls 1.295 tonn í vetur og verðmæti aflans er 454 milljónir króna. Þorskar í þúsundavís við Önd- verðarnes og á Vetrarbrautinni. Fimm bræður um borð og skip- verjar allir úr sömu fjölskyldu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Áhöfnin á Steinunni. F.v.: Oddur Orri Brynjarsson, matsveinn og sonur skipstjórans, þá bræðurnir Halldór, Óðinn, Brynjar skipstjóri, Ægir og Þór Kristmunds- synir og því næst bróðursonur þeirra, Kristmundur Sumarliðason. Loks Vilhjálmur Birgsson, tengdasonur Brynjars, og Ægir Ægisson er lengst til hægri. Sjósókn. Strandveiðibáturinn Bessa og Saxhamar, dragnótabátur frá Rifi. Gert að aflanum. Þór Kristmundsson næst og Kristmundur Sumarliðason. Brynjar gefur skipun og Halldór og Óðinn fylgjast vel með hvað gera skuli. Sendum sjómönnum og starfsfólki í sjávarútvegi heillaóskir í tilefni Sjómanna- dagsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.