Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 35
var fyrir pokana yfir lúgu á þilfarinu og þar
helltist aflinn niður á vinnsludekk. Þorskar í
þúsundavís rúlluðu niður á færibandið þar sem
fiskurinn var blóðgaður. Gert var að hverjum
og einum fiski, sem svo rúllaði með færibandi
niður í lest og þar í plastkör.
Drjúgt í voðinni
Á siglingu milli veiðislóða var hádegismatur,
sem Oddur Orri Brynjarsson matsveinn eldaði.
Bjúgu, kartöflur, grænmeti. Kaffi og kleinur á
eftir. Þú ert ekkert sjóveikur? Hvernig líst þér
á blikuna? Hefur þú verið áður á sjó? Spurning-
arnar buldu á blaðamanni sem hér var kominn
til að kynna sér framandi veröld sjómennsk-
unnar og miðla þeirra sögu til lesenda sinna,
eins og hér sést. Kaffi, kex – hífopp og höldum
af stað.
Skipstjórinn stefndi til norðausturs og tekið
var eins og eitt kast á Vetrarbrautinni; sem er
skammt undan Öndverðarnesi. Það fimmta og
síðasta var svo tekið nánast beint norður af ne-
soddanum og var drjúgt í voðinni þá. En það
voru vandræði með sigurnagla og eitthvað sem
small ekki saman. Skipstjórinn var í símanum
að leita ráða og pantaði svo nýtt stykki. Þegar
sýnt var orðið um aflabrögð var hringt í land og
markaðurinn látinn vita hver staðan væri. Afl-
inn var seldur og allt klappað og klárt áður en
kúrsinn var stilltur og stefnt í land. Komið var í
höfn í Ólafsvík um kl. 17.
Ævintýralegur afli
Venju samkvæmt hófu Brynjar og áhöfn hans á
Steinunni SH yfirstandandi fiskveiðiár í Bol-
ungarvík. Reru þaðan frá september og fram í
nóvember. Eftir nýár var gert út frá Ólafsvík.
Alls voru róðrarnir á fiskveiðiárinu 105 talsins,
aflinn samanlagt 1.295 tonn og verðmæti hans
454 milljónir króna. Besta dag vertíðarinnar
veiddi áhöfnin alls 84,2 tonn. Aflinn var að
megninu til þorskur, hver fiskur gjarnan 5-7
kíló.
„Þetta var ævintýralegt. Ég hef verið til sjós
frá 1966 og skipstjóri í um fjörutíu ár en aldrei
fiskað jafn mikið og þennan dag og það í brælu-
skít. Þegar komið er fram í mars er þó alltaf
mikil fiskigengd hér við Snæfellsnesið, svo hve
vel tókst til þennan dag var engin tilviljun,“
segir Brynjar sem frá september og fram í maí
fiskaði samanlagt 1.572 tonn.
Valinn maður í hverju rúmi
Níu manns eru í áhöfninni á Steinunni. Allir eru
úr sömu fjölskyldunni og fyrr eru nefndir
bræðurnir fimm: Brynjar, Ægir, Óðinn, Þór og
Halldór Kristmundssynir. Einnig eru á bátnum
synir tveggja fyrstnefndu bræðranna; þeir
Oddur Orri Brynjarsson og Ægir Ægisson. Þá
er í skipsrúmi Kristmundur, sonur Sumarliða
sem var sjötti bóðirinn og lést fyrir nokkrum
árum. Níundi maður í áhöfn er Vilhjálmur
Birgisson, tengdasonur Brynjars skipstjóra.
Valinn maður í hverju rúmi, farsælir og fiska
vel!
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Starfsfólk NAUTIC óskar sjómönnum
og fjölskyldum þeirra til hamingju með
SJÓMANNADAGINN
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tæmt úr pokanum þar sem siglt var í skínandi
fínu veðri rétt fyrir utan Svörtuloft.
Landað í Ólafsvíkurhöfn úr Steinunni,
sem gerð er út af samnefndu útgerð-
arfyrirtæki í fjölskyldueign.