Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 37
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 37
FRAMÚRSKARANDI LAUSNIR
FYRIR FROSNAR AFURÐIR
Valka hefur frá upphafi lagt áherslu á að
hanna vörur sem auka virði fyrir viðskiptavini
í formi aukinna afkasta, bættrar nýtingar og
hámörkunar á skilvirkni og verðmætum.
Með náinni samvinnu við framsækin sjáv-
arútvegsfyrirtæki verða til hátæknilausnir í
fremstu röð í greininni.
Þessir nýju flokkarar fyrir frystar afurðir eru
gott dæmi um það.
valka.is
Aukin afköst á hvern fermetra
Betri meðhöndlun á vörunum
Lágmörkun á yfirvigt í kassa
Sjálfvirk innmötun
Flokkun eftir þyngd og stærð
Róbótapökkun í kassa
Hraðvirkur flokkari fyrir frosna bita, sjálfvirk innmötun
Samvals- og pökkunarróbóti
Ný nálgun í flokkun, samvali og
pökkun á lausfrystum afurðum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
tofnvísitala þorsks er um 6% lægri en síðastliðin
þrjú ár, en hún hefur verið há frá árinu 2011 eftir
að hafa verið í lágmarki árin 2002-2006. Rekja
má lækkun stofnvísitölunnar til að árgangur
2013 (sjö ára) er lítill og minna fékkst af átta ára fiski,“
segir í niðurstöðum úr netaralli Hafrannsóknastofnunar
sem birtar voru í gær.
Fram kemur að stofnvísitala þorsks lækkar á milli ára
á flestum svæðum. Stofnvísitalan í Fjörunni við Suðvest-
urland var óvenju lág í fyrra og hækkar talsvert milli
ára, en er lægri en árin þar á undan. „Kanturinn fyrir
austan Eyjar sker sig áfram úr og lítið fæst nú af þorski
þar. Síðastliðinn áratug hefur vægi hrygningarsvæðanna
í Faxaflóa og Breiðafirði í stofnvísitölu hrygningar-
þorsks aukist, en hækkun hennar frá 2011 má að stórum
hluta rekja til þessara svæða.“
Vaxtarhraði eykst
Ástand þorsks er um eða undir meðaltali, samkvæmt
niðurstöðunum. Tekið er fram að talsverður breytileiki
er á ástandi á milli svæða, aldurs og lengdarflokka.
„Verulegar breytingar hafa orðið á vaxtarhraða þorsks á
rannsóknartímanum. Vaxtarhraði hefur aukist við vest-
anvert landið og við Norðurland, en dregið hefur aftur úr
honum síðustu ár.“ Þá var vaxtarhraði þorsks við Suð-
austurland hár í byrjun, fór síðan lækkandi en hefur auk-
ist lítillega aftur.
„Kynþroskahlutfall eftir aldri breytist ekki mikið hjá
algengustu aldurshópum milli ára,“ segir í niðurstöð-
unum og hefur „hlutfall þorskhrygna á kynþroskastigi 2
verið í hærra lagi síðastliðin tvö ár á flestum svæðum
sem gæti bent til þess að hrygning hafi verið heldur
seinna á ferðinni“.
Skötuselur nánast horfinn úr Breiðafirði
Þá mældist stofnvísitala ufsa há og hefur það verið til-
fellið frá árinu 2016. En hún var samt lægri en í fyrra.
„Þá var hún sú hæsta frá árinu 2002 þegar byrjað var að
mæla ufsa. Hækkun stofnvísitölu 2019 var vegna mikillar
aukningar á ufsa í Fjörunni og á Bankanum, en minni
breytingar voru á öðrum svæðum.“ Fram kemur að mest
hafi mælst af 7-11 ára ufsa.
Mikil breyting varð á stofnvísitölu lúðu í Faxaflóa og
Breiðafirði og hefur hún hækkað ört síðustu ár. Jafn-
framt mældust vísitölur hrognkelsis og skarkola með
þeim hærri frá 1996, „einkum vegna mikils afla í Breiða-
firði. Hins vegar hefur skötuselur nánast horfið úr
Breiðafirði og Faxaflóa en þar var hann algengur á tíma-
bilinu 1999-2012“.
Birtu niðurstöður úr netaralli
Morgunblaðið/Hari
Stofnvísitala þorsks
lækkar á milli ára á
flestum svæðum.
vinnslu, nema kannski söguna og
menninguna.“
Nýtt námsumhverfi
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðu Sjávarklasans, www.sjav-
arklasinn.is, en þar geta áhuga-
samir jafnframt skráð sig á sum-
arnámskeið Sjávarakademíunnar.
Menntamálaráðuneytið styður
sumarstarfið en námið í vetur er
styrkt af samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytinu. Kostar 3.000
kr. að taka þátt í sumarnámskeið-
inu en gjaldskrá fyrir vetrarnámið
er sú sama og annað nám á fram-
haldsskólastigi. „Námið fer fram í
húsi Sjávarklasans auk þess sem
nemendur heimsækja fjölda fyrir-
tækja. Fjöldi öflugra gestakennara
og fyrirlesara tekur þátt og fær
nemendahópurinn að kynnast alls
konar sjónarmiðum um nýsköpun
og stofnun fyritækja, allt annars
konar námsumhverfi en þau eiga
að venjast.“
Morgunblaðið/Eggert
„Við þurfum að
breikka sýn nýrra kyn-
slóða á þetta svið og
efla vitneskju um alla
þá nýsköpun sem á sér
stað innan bláa hag-
kerfisins,“ segir Þór.