Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ að verður nú að segjast eins og er að það að hafa náð þeim árangri 2008, að ekki urðu nein banaslys á sjó, er gríðarlegur árangur. Síðan var þetta endurtekið 2011, 2014, 2017, 2018 og 2019. Það er ekki hægt að segja ann- að en sjómenn hafi sannarlega tekið öryggismálin föstum tökum þegar maður horfir til þess, þeir fá auðvit- að þekkingu hjá okkur en verða að vinna úr því, og það er þá árangur sem við sjáum hjá sjómönnum,“ seg- ir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Hann hefur gegnt starfinu í 29 ár en var skipstjóri á flutningaskipi þar áður. „Það er auðvitað margt sem kem- ur til. Menn eru að fá nýrri skip og þá er björgunarhlutinn líka öflugur, björgunarskip, varðskip og þyrlur. Þannig að viðbragðið er fljótara ef menn lenda í vandræðum. Veður- fréttir betri, þannig að menn eru kannski ekki að leggja út í tvísýn veður. Þeir vita hverju þeir mega búast við. Svo má ekki gleyma því að tryggingafélögin hafa einnig lagt áherslu á aukið öryggi hjá sínum við- skiptavinum og ekki síður hjá út- gerðum en öðrum. Það er margt sem hjálpast að, en árangurinn hefur sannarlega skilað sér,“ útskýrir hann. Rætt um feimnismál „Það var ákveðið að 29. maí yrði stofndagur skólans þó svo hann hafi byrjað nokkrum dögum fyrr. Sjálfur myndi ég segja að hann hefði byrjað 26. maí, en það er bara af því að ég á afmæli þann dag,“ segir Hilmar og hlær. „Á þessum degi hafði verið kynningarnámskeið í Grindavík og daginn áður höfðu þeir [fulltrúar Slysavarnaskólans] verið um borð í skipi sem ég var stýrimaður á. Þeir komu um borð til okkar til þess að sjá hvernig viðbrögðin voru hjá okk- ur og ég var með áhöfn sem ég var mikið búinn að vera að þjálfa, þannig að ég var rosalega montinn af því að þeir skyldu byrja á að koma um borð í skip sem ég var stýrimaður á. Við stóðum okkur virkilega vel, segi ég. Þetta byrjar ’85 og þá voru nám- skeiðin styttri og lögð áhersla á að menn væru að gera hluti sem þeir höfðu aldrei gert áður, sem var að taka fram björgunar- og öryggis- búnað skipa sinna. Þetta var feimn- ismál. Umræður um öryggismálin urðu aldrei miklar um borð í skip- unum, því þá fengu menn gjarnan á sig að þeir væru sjóhræddir og spurt hvort þeir gætu ekki komið sér eitt- hvað annað. Með tilkomu Slysa- varnaskólans er byrjað að reyna að fá menn til þess að tala um hluti og draga þá fram, vera óhræddir við að kíkja á búnaðinn. Hægt og bítandi fara menn að sjá að þeir kunna ekki til verka eins og þeir vildu meina,“ svarar Hilmar spurður hvernig það var þegar skólinn hóf starfsemi sína. Hilmar segir að í upphafi hafi skólinn þurft að berjast fyrir tilveru sinni þar sem sjómenn voru á þeim tíma ekki sérlega meðtækilegir og erfitt að fá þá til að sækja námskeið. Þá hafi verið mikill styrkur að Slysa- varnafélagið hafi staðið þétt að baki skólanum. „Það voru kvennadeildar félagsins í þessum sjávarplássum, eiginkonur sjómannanna, sem sögðu bara: Þið farið á námskeið. Þannig fer þetta hægt og bítandi að koma skrið á að menn mæti á námskeið,“ útskýrir hann. Námskeiðin voru styttri í byrjun, að sögn skólastjórans sem bendir á að námskeiðsdögum hafði fjölgað í fjóra þegar hann hóf störf við skól- ann 1991. „Menn voru að vakna til lífsins um að þetta væri eitthvað sem við þyrftum að beina athygli okkar að.“ Keyptu varðskip fyrir þúsund krónur „Skólinn byrjar fyrst í húsnæði Slysavarnafélagsins og var síðan færður í varðskipið Þór, við keypt- um hann fyrir þúsundkall ’86. Skipið var keypt af skólanum og hefur skól- inn starfað um borð í því allar götur síðan. Árið 1998, þegar Hvalfjarð- argöngin voru opnuð, fengum við Akraborgina gefins af ríkinu og breyttum henni í skóla og höfum ver- ið þar síðan. Skipið hefur nú borið nafnið Sæbjörg lengur en það hét Akraborg, sem segir hversu vel þetta skip hefur þjónað, ekki bara sem ferja heldur ekki síður sem skólaskip – gríðarlegur fjöldi sjó- manna hefur farið hér í gegn.“ Spurður hvort miklar breytingar hafi orðið á námsefni skólans á þess- um 35 árum frá stofnun segir hann svo vera. „Það eru auðvitað ákveðnar breytingar sem verða á öllum nám- skeiðum, það verður breyting í bún- aði, menn eru komnir á nýrri skip og allt önnur tækni notuð. En það má segja að upp úr ’91 eða um ’92 fórum við að leggja áherslu á forvarnir og það hefur alltaf verið mikilvægur þáttur í öryggismálum sjómanna að sinna forvörnum; að menn leggi af mörkum vinnu um borð í skipunum til þess að koma í veg fyrir slys eða óhöpp og koma heilir heim. Við höfum unnið að þessu með tryggingafélögunum með mjög góð- um árangri, þar sem við höfum heimsótt skip og útgerðir. Þar leggj- um við áherslu á að gert sé áhættu- mat og atvikaskráningu sé viðhaldið þannig að við vitum raunverulega hvað er að gerast um borð í skip- unum. Stjórnvöld mikilvæg Það var auðvitað stórt skref sem stjórnvöld tóku þegar þau ákváðu að lögfesta öryggisfræðslu áhafna ís- lenskra skipa,“ segir Hilmar, en lög- festingin tók nokkurn tíma. Í lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, sem samþykkt voru á Alþingi 1991, var kveðið á um í bráðabirgðaákvæði að ráðherra yrði falið að leita leiða til að skylda sjómenn í öryggisfræðslu. Frumvarp þess efnis var lagt fyrir Alþingi 1992 en fékk ekki afgreiðslu og var lagt fram á ný 1993, en var loks samþykkt 1994. Var talið að lagasetningin kynni að vera nokkuð íþyngjandi þar sem heilli stétt myndi allt í einu vera óheimilt að starfa án þess að hafa sótt umrædda fræðslu og því gefinn aðlögunarfrestur fyrir skipstjórn- armenn til 31. desember 1995 og til 31. desember 1996 fyrir aðra skip- verja. Ekki nóg með það heldur bendir Hilmar á að efnið hafi verið umdeilt og send inn kvörtun til um- borðsmanns Alþingis vegna málsins. Alþingi tók síðan ákvörðun 1995 um að framlengja frestinn til ársloka 1996, en það ár var ákveðið að fram- lengja frestinn á ný. Þá til ársloka 1997. „Það tók nokkur ár að komast yfir þann hjall, það voru auðvitað margir sjómenn, fleiri en í dag. Og það var mál að koma þeim öllum í gegn,“ segir Hilmar. „Þetta viðhorf; ég kann þetta allt, var dálítið ríkjandi. Ég man alltaf eftir því að það kom einn alveg draugfúll inn á námskeið og ég hugsaði með mér að það yrði gaman að heyra í honum eftir nám- skeiðið hvernig honum fyndist. Hann sat svona fýldur allt nám- Morgunblaðið/Eggert Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómannaLjósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna Mikilvægt er að kunna að bregðast við er slysin gerast, enda geta rétt viðbrögð bjargað mannslífum. Í skólanum fá sjómenn tækifæri til að æfa sig. Hinn 29. maí varð Slysa- varnaskóli sjómanna 35 ára og er ekki hægt að segja annað en gríð- arleg framför hafi orðið í öryggismálum sjó- manna frá þeim tíma. Erfitt var að ná til sjó- manna í upphafi að sögn skólastjórans. Verkefni Slysavarnaskólans aldrei Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysa- varnaskólans, segir sjómenn hafa verið trega til að sækja nám skólans í upphafi, en nú sé tíðin önnur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.