Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
rangur 66°Norður er lýsandi
dæmi um hvenig íslenskur
sjávarútvegur hefur stutt
við uppbyggingu í öðrum
greinum. Fyrirtækið var stofnað ár-
ið 1926 með áherslu á framleiðslu
vandaðra sjóklæða en er í dag orðið
að alþjóðlegu merki á útivistar-
vörumarkaði og um allan heim
klæðast kröfuharðir neytendur
skjólgóðum flíkum skreyttum með
sama merki og eru á vinnufatnaði
íslenskra sjómanna.
Elín Tinna Logadóttir er sölu-
stjóri fyrirtækjasviðs 66°Norður og
þekkir sögu félagsins vel. „Hans
Kristjánsson frá Suðureyri stofnaði
fyrirtækið á sínum tíma, eftir að
hafa farið til Noregs á styrk frá
Fiskifélagi Íslands til að læra sjó-
klæðagerð. Á þessum tíma var ís-
lenskur sjávarútvegur að taka mikl-
um breytingum og vélbátavæðingin
að hefjast; árabátar og þilskip að
víkja fyrir vélbátum og togurum.
Hans sá tækifæri þar og vildi
tryggja að íslenskir sjómenn væru
ekki upp á erlenda framleiðendur
komnir við kaup á góðum vinnu-
fatnaði og stofnaði því Sjó-
klæðagerðina. Hans sótti sjóinn á
uppvaxtarárum sínum, rétt eins og
aðrir ungir menn á svæðinu. Hann
þekkti vel hve hættulegt starf sjó-
mennskan gat verið og vildi leggja
sitt af mörkum til að vernda sjó-
menn við vinnu sína,“ útskýrir Elín
en sagan segir að Hans hafi verið
skírður í höfuðið á norskum skip-
stjóra sem fórst í Súgandafirði.
Skipstjórinn birtist móður hans í
draumi meðan hún var ólétt og vitj-
aði nafns.
Saga 66°Norður endurspeglar á
margan hátt þróun íslensks sam-
félags og sést það m.a. á því að
Hans flutti starfsemina fljótlega frá
Vestfjörðum til Reykjavíkur sem þá
var tekin að vaxa mjög hratt. Vöru-
framboð Sjóklæðagerðarinnar
breikkaði í takt við þarfir nútíma-
legra atvinnulífs og árið 1933 fram-
leiddi fyrirtækið bæði sjófatnað,
frakka, kápur, úlpur og vinnufatnað
í samstarfi við Vinnufatagerð Ís-
lands.
Samverkandi þættir
Smám saman bötnuðu lífskjör
landsmanna, lífsstíll Íslendinga
„Það skiptir okkur miklu máli að sjó-
menn treysta fatnaðinum frá okkur“
Saga 66°Norður speglar
þróun íslensks atvinnu-
lífs undanfarna öld, þar
sem framleiðsla á sjó-
klæðum þróaðist út í
framleiðslu á ýmiss
konar vinnufatnaði og
loks útivistarvörum.
Saumastofurnar eru í Evrópu en hönn-
un og vöruþróun fer fram á Íslandi.
Olíuborinn strigi var áður notaður til að
verja sjómenn gegn veðri og vindum.
„Við viljum reyna að gera
klassíska gallann enn betri
með efni sem er vatnsþétt en
gefur betur eftir,“ segir Elín
Tinna Logadóttir um þróunina.
Gömul auglýsingamynd 66°Norður.
Sjóbuxurnar eru löngu orðnar klassík.