Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is E kki er ósennilegt að kór- ónuveirufaraldurinn hafi valdið hugarfarsbreytingu hjá bæði neytendum og fram- leiðendum sjávarafurða. Vitundar- vakning hefur átt sér stað um mik- ilvægi góðs hreinlætis og almenningur líka verið minntur rækilega á hve brýnt það er að hugsa vel um heilsuna með heilnæmu mat- aræði og heilbrigðum lifnaðarhátt- um. Þetta skapar tækifæri fyrir ís- lenska fyrirtækið D-Tech sem býður upp á sjálfvirkar sótthreinsilausnir sem þykja með þeim öflugustu og skilvirkustu á márkaðinum. Ragnar Ólafsson, tæknistjóri D-Tech, segir nálgun fyrirtækisins byggjast á svo- kölluðu þokukerfi sem á augabragði fyllir rými af fíngerðri sótthreinsandi móðu sem kemst í allar glufur og göt, undir og yfir alla yfirborðsfleti, og sótthreinsar jafnt gólf, veggi og loft við snertingu. „Sótthreinsunin tekur mjög skamman tíma og notar um 10% af því vatni og 15% af því sótt- hreinsiefni sem þyrfti ef þrifið væri með hefðbundnum aðferðum. Sem dæmi um hve hratt má sótthreinsa með búnaði D-Tech má nefna að hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað er okkar lausn notuð til að sótthreinsa 3.000 fermetra vinnsluhúsnæði á 35 mínútum.“ Úðinn finnur allar glufur Kveikt er á þokukerfi D-Tech eftir venjuleg þrif og því búið að spúla og skrúbba burt stærri agnir. Ragnar segir ekki þurfa að loftþétta rýmið sem þokan fyllir en æskilegt að lítil sem engin hreyfing sé á loftinu þar inni á meðan sótthreinsun stendur yfir. Þokan er mjög þétt, og skyggni aðeins um tveir metrar á meðan bún- aðurinn er í gangi, en úðinn svo fín- gerður að ekki fellur á gler eða fatn- að, og hvergi hætta á að vökvi safnist upp. „Gott er að opna hlífar á vélbún- aði svo að þokan komist betur inn í öll skúmaskot, en jafnvel ef það er ekki gert leitar þokan um allt rýmið og drepur þær örverur sem þar þrífast. Hreinsiefnið drepur líka myglu svo að jafnvel ef einhverjir yfirborðs- fletir draga í sig raka mun engin mygla myndast í kjölfarið.“ Eftir hreinsun dugar að einfald- lega opna glugga eða kveikja á loft- ræstikerfi og er þokan strax á bak og burt. „Þessi hraða sótthreinsun er mjög mikilvæg þegar mikið er að gera og starfsemi í gangi allan sólar- hringinn því stöðva þarf vinnslu á meðan þrifið er og brýnt að geta gangsett vélarnar og byrjað fram- leiðslu á ný eins fljótt og kostur er.“ D-Tech er ungt fyrirtæki, stofnað 2014, og byggist hreinsikerfið á ís- lensku hugviti sem upphaflega var þróað í nánu samstafi við Samey. Búnaðinn má nota í fiskvinnslum á landi, um borð í skipum, og alls stað- ar þar sem matvæli eru framleidd. Ragnar segir fleiri notkunarmögu- leika í skoðun og hefur D-Tech stofn- að dótturfyrirtæki með það fyrir aug- um að nýta sótthreinsibúnaðinn t.d. í heilbrigðisgeira, á umönnunar- og öldrunarheimilum og í íþróttamann- virkjum. „Við höfum notað þokukerf- ið á okkar eigin skrifstofu án nokk- urra vandkvæða, og það þrátt fyrir að á skrifstofunni séu allar okkar vinnutölvur, skjáir og ýmsir papp- írar,“ útskýrir Ragnar og bætir við að þokukerfið gæti líka nýst til að m.a. sótthreinsa gesti við komuna á viðkvæma staði eins og spítala og öldrunarheimili og myndi þá stutt stopp í klefa með þokukerfi þýða að utanaðkomandi bæru ekki óvart með sér hættulegar örverur. Orðsporið er það dýrmætasta Dæmin sanna að nálgun D-Tech get- ur bundið enda á þrálát smitvanda- mál. Er hægt að koma kerfinu fyrir innan í matvælavinnslutækjum til að hreinsa þau enn betur og nefnir Ragnar árangur norsks laxeldis- fyrirtækis sem glímdi við þrálátt listeríusmit. „Fyrir fimm árum vor- um við fengin til að setja búnað okkar upp í gamalli verksmiðju sem laxeld- isfélagið notaði, og reyndist helsti vandræðastaðurinn vera flokkari þar sem örverur gátu safnast upp og erf- itt var að þrífa. Við settum upp úða- kerfi í allri verksmiðjunni og við sjálfan flokkarann en strax á öðrum eða þriðja degi var ekki neina listeríu lengur að finna í húsinu.“ Þokan hreinsar fullkomlega Sú tækni sem D-Tech hefur þróað dregur stór- lega úr hættunni á örverusmiti við mat- vælaframleiðslu og hjálpar til að lengja hillulíf vörunnar. Búnaður D-Tech prufukeyrður eftir uppsetningu í Harðbak EA. Morgunblaði/Arnþór Birkisson „Í rækjuframleiðslu höfum við séð að talning á örverum á lausfrystri rækju fór úr 2.700 á gramm niður fyrir 400 á gramm, sem jafngildir því að varan getur verið einn til tvo daga til viðbótar í kæli verslunar,“ segir Ragnar. Að halda örverum í skefjum getur skilað framleiðendum hærra verði og verndað dýrmætt orðspor þeirra. Hús Sjávarklasans Grandagarði 16 101 Reykjavík sími: 544 2450 navis@navis.is www.navis.is Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.