Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 GLEÐILEGAN SJÓMANNADAG KÆRU SJÓMENN OG STARFSFÓLK Í SJÁVARÚTVEGI Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M aður verður að hrósa sjó- mönnum fyrir það hvernig þeir tækluðu þetta Covid-dæmi. Það var ekkert sjálfgefið að skipin gætu verið á sjó ef það kæmu upp stórar sýkingar hér og þar. En menn fóru að fyrirmælum og meira en það, því sumstaðar þar sem menn voru í stuttum túrum og stoppað stutt milli veiðiferða, þá fóru menn ekkert í land og voru bara um borð á meðan var landað. Voru kannski 15 til 20 daga um borð. Þetta var bara til þess að menn myndu ekki bera sýkingar á milli og koma í veg fyrir sýkingar um borð í skipunum. Menn bara héldu vinnunni og það skiptir máli að hægt var að reka flotann með ágætis árangri. Það er meira að segja alveg ótrúlegt að ekki hafi komið upp fleiri sýkingar um borð í skipum,“ segir Valmundur Val- mundsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands. Hann segir enga hafa veigrað sér við að taka á sig auknar byrðar með því að vera lengur frá fjölskyldu og vin- um. „Íslenskir sjómenn stóðu sína plikt í þessu og vel það.“ En það eru ekki bara smitvarnir á vinnustaðnum sem hafa haft áhrif. Vegna aðgerða erlendra stjórnvalda til þess að hefta kórónuveirufaraldurinn hafa margir markaðir fyrir ýmsar ís- lenskar sjávarafurðir lokast og hefur það sett þrýsting á verð á mörkuðum. Valmundur segir fé- lagsmenn hafa haft áhyggjur af ástandinu enda hefur þetta haft áhrif á tækifæri þeirra til tekjuöfl- unar. Afkoma bundin gjaldmiðlinum „Fiskverð hefur lækkað mjög mik- ið á þessum tíma, líklega um 20% á fiskmörkuðunum. Við erum með tvöfalt kerfi, þeir sem kaupa fisk af sjálfum sér og eiga vinnslu, þeir borga 80% af markaðsverðinu og tekist hefur að halda því vegna þess að það eru tengingar við af- urðaverðið líka. Það hefur ekki fallið að ráði. Vonandi erum við að sjá botninn í verðlækkunum á mörkuðunum. Ef þetta hækkar í sumar verður þetta viðunandi. En auðvitað hafa menn áhyggjur,“ út- skýrir hann. Spurður hvort hann telji starf sjómannsins nægilega metið í ís- lensku samfélagi, segir Val- mundur svo ekki vera. „Nei. Því hefur hrakað svolítið eftir að ferðaþjónustan fór af stað eftir hrun. Þá hefur dregið úr vægi sjávarútvegsins, en nú kemur hann inn af fullu eins og eftir efnahagshrunið 2008. Þegar gengi krónunnar var lágt 2011 til 2014 eða 2015 voru tekjur útgerðarinnar og sjómanna nánast ævintýralegar. Sögulega er þetta líklega besta tímabil bæði útgerð- ar og sjómanna. En svo þegar krónan fór að styrkjast aftur, þá var það meðal annars ástæða fyrir verkfallinu 2017. Þá lækkuðu laun sjómanna um 30 til 40% á nánast einu ári. Þannig að það var ekkert skrýtið þó að menn væru tilbúnir í átök.“ Sett á ís vegna veirunnar Valmundur segir lítið um það hvort hann búist við átökum á ný vegna yfirstandandi kjara- viðræðna sjómanna, en bendir á að viðræðurnar voru settar á ís vegna kórónuveirufaraldursins. „Þá vorum við nýbúnir að und- irrita viðræðuáætlun með Sam- tökum fyrirtækja í sjávarútvegi og leggja fram okkar kröfur og þeir sínar. Undirbúningsvinnan var búin að standa yfir varðandi bókanir frá síðasta samningi, en kjaraviðræðurnar fóru aldrei af stað og málið er bara statt þar. Þessar bókanir vörðuðu ekki efnisatriði, en ýmislegt sem þyrfti að klára til þess að nýr samningur yrði gerður. Til dæmis voru skip áður fyrr mæld í brúttó- rúmlestum, það er ekki gert leng- ur. Þessi brúttórúmlesta-mæling, hún ákvarðaði það hvar menn lentu í sambandi við skiptapró- sentu sem var samið um. Fyrst skip eru ekki lengur mæld svona verðum við að breyta því og ákváðum að fara í skráningarlengd í metrum. Þá þarf að útbúa allar skráningartöflur upp á nýtt og sú vinna er komin mjög langt, eig- inlega búin.“ Þá hafi farið fram veruleg vinna við að samræma samninga þannig að aðildarfélög Sjómanna- sambandsins séu ekki með mis- munandi samninga, að sögn for- mannsins. „Þá getum við komið fram sem ein heild með einn samning.“ Deila áhættu með útgerðinni „Svo vorum við komnir aðeins áleiðis í vinnu við að byrja að skipta úr heildarverðmætum í staðinn fyrir að einhver kostn- aðarhluti yrði tekinn af, þá mynd- um við gera upp 100% aflaverð- mæti,“ segir Valmundur og útskýrir að þetta feli í sér að svo- kölluð kostnaðarhlutdeild falli út en skiptaprósentur í samningnum sjálfum lækki á móti. „Launahlut- fall í útgerð á Íslandi er frá 33% upp í rúm 40% eftir veiðigreinum. Þannig að launahlutfall í útgerð á Íslandi, miðað við aðrar atvinnu- greinar, er hátt. En á móti kemur að við erum að deila hlut með út- gerðinni, við erum að deila áhættu með útgerðinni. Við erum ekki á tímakaupi, við erum á hlut. Einnig er sjómennska hættulegt og krefj- andi starf. Og eftir því sem geng- ur betur hjá útgerðinni, gengur betur hjá sjómönnum og öfugt. Kauptryggingin okkar er ekki mjög há. Hún er ekki nema 320 þúsund, lágmarkskaupið verður aldrei minna en það. En við byggjum á því að menn geta gert verðmæti úr því sem kemur í land sem verður meira en kauptrygg- ingin.“ Spurður hvort launakerfi sjó- manna sé úr sér gengið, segir hann mikilvægan innbyggðan hvata í gildandi kerfi sem báðir aðilar hagnast á. „Það hefur verið talað um það að fara á föst laun, en þegar til kemur eru menn ekki tilbúnar að skipta. Hvorki útgerð- armenn né sjómenn. Útgerðar- manna megin held ég að hugsunin sé sú að við sjómenn höfum hag af því að við göngum sem best frá fiskinum og göngum vel um aflann svo við fáum sem mest fyr- ir hann. Það er gulrótin og það gæti orðið til þess að það yrði ekki eins vel gengið um aflann ef menn ættu ekki hlut í honum. Okkar skýring er sú að við sækj- umst eftir því að vera í góðum plássum sem fiska vel og borga vel. Eftir því sem fiskast meira og fæst hærra verð fá menn hærri laun.“ Hátíð fjölskyldna Valmundur kveðst vilja óska sjó- mönnum öllum til hamingju með daginn. „Það verða engir stórir viðburðir, en ég vona bara að menn grilli út í garði og njóti dagsins. Þetta eru þrír dagar, sjó- mannadagshelgin sem menn eiga að stoppa, sem er í raun orðin há- tíð fjölskyldna sjómanna. Þessi tími hefur kannski breyst frá því að vera baráttudagur sjómanna yfir í að allir koma saman og hafa gaman, sem er auðvitað gott líka.“ Ekki sjálfgefið að skipin yrðu á sjó Varla er til sú atvinnugrein á landinu sem ekki hefur orðið fyrir einhverjum áhrifum kórónuveirufarald- ursins og eru sjómenn þar engin undantekning. Morgunblaðið/Árni Sæberg Um tíma voru laun sjómanna í sögulegum hæðum, en þau lækkuðu skyndilega um 30 til 40%, að sögn formannsins. Morgunblaðið/Eggert Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasamband Íslands, segir kostinn við launakerfi sjómanna, sem felur í sér afla- hlutdeild, vera að báðir aðilar sjá hag sinn í að leita leiða til að hámarka ágóðan af aflanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.