Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 48

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingjumeð Sjómannadaginn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að flækir kjarabaráttu sjó- manna að nokkur aðskilin stéttarfélög gæta hagsmuna þeirra sem starfa um borð í íslenskum skipum. „Það hefur vant- að upp á að þessi stéttarfélög væru samtaka í kjarabaráttu sinni og sást það t.d. vel í síðustu kjarasamninga- viðræðum þar sem skipstjórnar- menn og stýrimenn samþykktu gerðan samning en hásetar og vél- stjórar felldu hann. Í framhaldi af því boðuðu hásetarnir verkfall sem um leið fól í sér verkbann á aðra áhafnarmeðlimi og af hlaust eitt lengsta verkfall sem sjómannastétt- in hefur farið í sem varði frá seinni parti desember 2016 fram til miðs febrúar 2017,“ segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM – Félags vélstjóra og málmtækni- manna. Spurður að því hvers vegna sjó- menn sameinast ekki einfaldlega í einu stéttarfélagi segir Guðmundur að starfsferill áhafnarmeðlima geti verið mjög breytilegur, menntunar- kröfur ólíkar og ábyrgð mismikil eft- ir því hvaða stöðu sjómenn gegna. Sum störfin eru jafnframt þess eðlis að þeir sem þeim gegna geta líka gengið í sambærileg störf í landi. „Þar er m.a. komin skýringin á því af hverju vélstjórar og málmtækni- menn eiga sameiginlegt stéttarfélag enda ekki óalgengt að þegar vél- stjórar á sjó hugsa sér til hreyfings og leita sér að starfi í landi þá gangi þeir í svipuð störf og málmtækni- menn og vélstjórar í landi, t.d. hjá virkjunum og orkuveitum, álverum og framleiðendum vinnslubúnaðar, og vilja þá hafa ákveðna samfellu í því hvaða stéttarfélag vaktar þeirra hagsmuni,“ útskýrir Guðmundur en af tæplega fjögur þúsund virkum fé- lagsmönnum í VM starfar um fimmtungur á sjó. Traustið vantar Að því sögðu þá virðist Guðmundi ekki vera neinn afgerandi munur á áherslum stéttarfélaga sjómanna og almenn samstaða um grundvallar- atriði hlutaskiptakerfisins. „Við fengum einu sinni í gegn örlitla breytingu fyrir okkar fólk þar sem hlutur vélstjóra var aukinn til að endurspegla meiri menntunarkröfur til vélstjóra og meira umfang á störf- um þeirra um borð í takt við vaxandi tæknivæðingu skipa,“ segir Guð- mundur og minnir á að starfsemi alls skipsins velti á því að vélstjórinn sé starfi sínu vaxinn. „Oft er sagt í gríni að þegar skip halda til veiða þá sjái skipstjóri og fyrsti stýrimaður um að stjórna veiðunum, hásetarnir komi aflanum um borð og geri að honum, en vélstjórarnir geri ekki rassgat. En starf vélstjórans felst einmitt í því að tryggja að allur vél- búnaður um borð virki hnökralaust. Tækin og vélarnar eru hjarta skips- ins og þegar það bilar er allt farið.“ Kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því um áramót og miðar viðræðum hægt. Guðmundur segir árangurinn m.a. hvíla á sam- eiginlegum slagkrafti stéttarfélaga sjómanna, og því að það takist að skapa traust á milli áhafna og út- gerða. „Vandinn er sá að stéttin treystir útgerðarmönnum sáralítið því dæmin sanna að þar sem öll virð- iskeðjan er á sömu hendi – veiðar, vinnsla og sala – er ekki hægt að stóla á að rétt verð sé notað til við- miðunar þegar laun áhafna eru reiknuð. Þurfa sjómenn að standa saman ef einhver von á að vera til þess að ná almennilegu gegnsæi í verðlagningu á fiski.“ Verðið hækkar á leiðinni til útlanda Guðmundur á auðvelt með að nefna fjöldamörg dæmi um undarlega verðlagningu afla úr íslenskum skip- um. „Skip sem landa makríl til bræðslu í Noregi hafa fengið um 40% hærra verð en skip sem lönduðu sams konar afla á Íslandi. Svipaða sögu er að segja af kolmunna sem landað er á Írlandi, að þar fæst 40% hæra verð en íslenskar útgerðir greiða eigin skipum fyrir sama afla á sama tíma. Jafnvel höfum við dæmi Vantar upp á gagnsæi í verðlagningu Guðmundur Helgi Þórarinsson segir stéttarfélög sjómanna þurfa að standa saman gegn milliverð- lagningu á fiski. Þá sé öll starfsemi skips háð því að vélstjórinn sé starfi sínu vaxinn. „Vandinn er sá að stéttin treystir útgerðarmönnum sáralítið því dæmin sanna að þar sem öll virðiskeðjan er á sömu hendi – veiðar, vinnsla og sala – er ekki hægt að stóla á að rétt verð sé notað til viðmiðunar þegar laun áhafna eru reiknuð,“segir Guðmundur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Ómar Vélstjórar bera ábyrgð á að allur búnaður um borð virki eins og til er ætlast. þar sem íslenskt skip og norskt skip lönduðu kolmunna á sama deginum, í sömu verksmiðjuna á Íslandi en Norðmennirnir fengu engu að síður 40% hærra verð,“ segir Guðmundur. „Þennan sama vanda hafa opinberar stofnanir bent á, og í skýrslu sem gerð var af ríkisskattstjóra fyrir fjármálaráðuneytið, Seðlabankann og fleiri var sagt að grunur væri um að á leið sinni frá Íslandi til Evrópu hækkaði uppgefið verð á botnfiski um 8,3% vegna milliverðlagningar, og er talið að aflandsfélög komi þar við sögu. Árið 2018 þýddu þessir við- skiptahættir að vantaði um 20 millj- arða króna upp á virði þess afla sem seldur var úr landi, sem þýðir lægri hafnargjöld sem því nemur og minna í hlut sjómanna, lægra útsvar, lægri tekjuskatt og lægri auðlindagjöld og samfélagið í heild sinni er því að tapa.“ En hvernig má tryggja aukið gagnsæi og eðlilegri viðskiptahætti í greininni? Að gera t.d. kröfu um að veiðar og vinnsla væru aldrei á sömu hendi myndi skapa alls kyns vanda- mál og skerða getu greinarinnar til að hagræða í rekstri og hámarka gæði. Guðmundur telur lausnina mögulega fólgna í því að þróa nýjar formúlur sem taka mið af lokaverði sjávarafurða. „Og það þarf að vera alveg skýrt hvernig lokaverðið Vélstjóri að störfum um borð í varð- skipinu Óðni. Tæknivæðing flotans hefur gert starfið flóknara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.