Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
KÆRU SJÓMENN OG
STARFSFÓLK Í SJÁVARÚTVEGI
Sjómannadag
Gleðilegan
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
H
aukur, sem er myndlist-
armaður og teiknari, er
höfundur að útliti spilsins.
Hann ræddi við blaða-
mann um útgáfu upprunalega spils-
ins og væntanlega endurútgáfu.
„Það er bara helvíti gaman,“
svarar Haukur og hlær er blaða-
maður spyr hvernig það sé að upp-
lifa að spilið verði gefið út á ný.
„Hönnunin á þessu spili byrjaði í
þorskastríðinu. Ég og vinur minn
Tómas Tómasson, sonur Reykja-
víkurskáldsins Tómasar Guð-
mundssonar, vorum saman á
teiknistofu og það var þá sem
Tommi fékk þá hugmynd að búa til
eitthvað sem við gætum grætt pen-
inga á, nánar tiltekið borðspil sem
snerist um landhelgi Íslands. Þeg-
ar ég spurði hann út á hvað spilið
ætti að ganga svaraði hann því til
að við ættum að veiða bresku
togarana og helst sökkva breskum
herskipum. Ég sagði Tomma að
það gengi nú ekki upp en að við
skyldum í staðinn búa til fisk-
veiðispil, það gengi upp. Þannig
varð hugmyndin til,“ útskýrir
hann.
Haukur segir mikið fjör og gam-
an hafa verið í kringum gerð spils-
ins á sínum tíma, en það var einnig
mikil erfiðisvinna. Sem betur fer
kom til góðs samstarf við Kassa-
gerðina við útgáfuna, en þar var
Haukur með teiknistofu. „Ég
teiknaði mikið af þessum umbúðum
þeirra. Mest var þetta fiskur, alltaf
fiskur. Öll útgerðin á Íslandi þurfti
síldarkassa, þorskkassa, lifrarkassa
og Guð veit hvað. Þannig að ég
gerði samning við Kassagerðina,
var með vinnustofu þar inni og
náði góðu samkomulagi við Agnar
Kristjánsson, forstjóra Kassagerð-
arinnar. Það er eftir á að hyggja
fáránlegt hvað við vorum að leggja
út í með þetta blessaða spil. Það
hefði aldrei orðið til ef Kassagerðin
hefði ekki samþykkt að prenta
þetta. Eiginlega upp á von og óvon
hvort þeir fengju þetta nokkurn
tímann greitt. En það gekk upp,
heldur betur,“ segir hann og hlær.
Upphaf kvótakerfisins?
Haukur kvaðst sannfærður um að
rekja megi uppruna kvótakerfisins
til Útvegsspilsins. „Á sínum tíma,
má eiginlega segja að við höfum í
þessu Útvegsspilsævintýri í Spila-
borg fundið upp kvótakerfið. Það
er af því að í spilinu gekk ekki upp
gegndarlaus veiði,“ útskýrir hann
og skellir upp úr. „Þannig að við
urðum að takmarka getuna svolítið,
en ekki um of. Einhver þurfti að
vinna þetta í lokin og það gerðist,
sem er fínt því þá gekk spilið upp.
En við vildum hafa einhverja
stjórn á því hve miklu var ausið
upp af fiski.“
Spurður hvort þetta hafi lagt lín-
urnar fyrir þá sjávarútvegs-
ráðherra sem sátu í ráðherrastól í
kjölfar útgáfunnar 1977, segir hann
svo vera. „Það er nefnilega það
sem mig grunar allavega. Þetta var
svo sjálfsagt í spilinu, að það hlaut
að vera sjálfsagt í lífinu. Þú tæmir
ekki sjóinn af fiski eins og villidýr.
Þú verður að hafa smá stjórn á
þessu. Er það ekki komið núna eða
hvað? Ef svo er, þá erum við sæmi-
lega rólegir, ef það eru ekki alltof
margir sjóræningjar.“
Þá rifjar Haukur upp að við út-
gáfu spilsins hafi verið spilað við
Matthías Bjarnason, sjávarútvegs-
ráðherra 1974 til 1978. „Við spil-
uðum við Matthías og honum
fannst þetta voða gaman. Við spil-
uðum einnig við forstjóra Land-
helgisgæslunnar um borð í varð-
skipi.“
Hann segir meira þurfa til að
vinna Útvegsspilið en að vera bara
heppinn með teningana. „Yfirleitt í
þeim spilum sem ég hef verið að
hanna þá nota ég þessa aðferð, að
gefa mönnum tækifæri til þess að
vafra svolítið milli reita. Það hleyp-
ir svolítilli spennu í þetta og þá
verður þetta gaman.“
Í þjóðarsálinni
Haukur kveðst gáttaður á því
hversu mikla athygli endurútgáfa
spilsins fær. „Ég vissi að það var
áhugi fyrir þessu, það var búið að
tala við mig svona af og til hvort
ég ætlaði ekki að ráðast í þetta. Ég
treysti mér bara ekki til þess því
þetta er heljarinnar vinna. Þú get-
ur rétt ímyndað þér vinnuna sem
fer í að hanna svona bölvað rugl,“
segir hann og kímir við. „Það er
meiriháttar djobb að teikna þetta
upp og hugsa hvernig eigi að gera
þetta og hanna reglur. Það tók
fleiri mánuði bara að teikna þetta.“
Hann viðurkennir þó að vinnan
hafi verið skemmtileg enda hafi
hann áhuga á gerð spila. „Já, það
var helvíti gaman. Það er skemmti-
legt að eiga við spil.“
Spurður hvort hann telji spilið
falla í kramið hjá spilurum í dag,
segist Haukur telja að svo sé.
„Mér heyrist það á strákunum,
sem eru núna aftur í þessu, að við-
brögðin séu hreint út sagt ótrúleg.
Það er svo mikill áhugi fyrir þessu
blessaða spili. Þetta er eitthvað í
þjóðarsálinni, held ég,“ bætir
Haukur við. Ef marka má eft-
irspurnina eftir Útvegsspilinu sem
hefur verið viðvarandi undanfarin
ár og það verð sem fengist hefur
fyrir heillegt eintak af spilinu þá
sjaldan það ratar í Kolaportið, þá á
hann kollgátuna. Eftirvæntingin
sem ríkir fyrir endurútgáfunni er
sömuleiðis til marks um að Útvegs-
spilið á stað í hjarta þjóðarinnar.
Gáttaður á viðtökum Útvegsspilsins
Það hefur væntanlega
ekki farið framhjá
áhugamönnum um
borðspil að til stendur
að gefa Útvegsspilið sí-
gilda út á nýjan leik.
Spilið kom fyrst út árið
1977 og stóðu þeir
Haukur Halldórsson,
Tómas Tómasson og Jón
Jónsson að útgáfunni.
Það þótti sjálfsagt að takmarka hversu mikið hægt var að fiska í spilinu.
Það vakti talsverða athygli þegar
Útvegsspilið var gefið út árið 1977.
Haukur Halldórsson ásamt syni sínum Krist-
jáni Má, sem er einn þeirra sem nú standa
að endurútgáfu Útvegsspilsins.
Að þessu sinni eru það þeir Stefán
Sigurjónsson, Lárus Óskarsson,
Kristján Már Hauksson (sonur
Hauks) og Haukur sem standa að út-
gáfu spilsins.
„Við hjá Spilaborg sáum mikið
tækifæri í Útvegsspilinu og höfðum
samband við Hauk og ræddum
möguleikann á endurútgáfu,“ segir
Stefán.
„Við fundum strax gífurlegan
áhuga og meðbyr svo við ákváðum
að láta slag standa og gefa gamla
góða Útvegsspilið út á ný, óbreytt og
í sömu mynd og fyrsta útgáfan. Hún
var með einhvern ódrepandi sjarma
sem við viljum ekki stugga við enda
upplifum við að við séum að fara
með þjóðargersemi í framleiðslu og
því rétt að sýna verkefninu viðeig-
andi virðingu.
Það gerum við til dæmis með því
að framleiða spilið að öllu leyti á Ís-
landi og handsmíða hús og skip úr
balsavið. Við sjáum fram á færi-
banda-frystihúsavinnu við samsetn-
ingu og pökkun á fyrsta upplagi,“ út-
skýrir hann.
„Það er ljóst að það verður tak-
markað magn í boði og þar sem eft-
irspurnin er að verða ansi hávær
stefnum við á að opna fyrir forsölu á
fyrsta upplagi og gefa fólki færi á að
tryggja sér eintak,“ bætir hann við.
Gífurlegur meðbyr