Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 8

Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddvitiViðreisnar í borgarstjórn og formaður borgarráðs, og Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, rituðu á dögunum greinar um skuldastöðu borgarinnar. Þórdís Lóa fullyrti að borg- in stæði vel og ein- blíndi í því sambandi á skuldastöðu borg- arsjóðs en sleppti öðrum skuldum borgarinnar, sem eru miklar og að hluta til á ábyrgð borgarsjóðs þannig að fráleitt er að horfa fram hjá þeim.    Eyþór svaraðiþessum skrif- um og benti á að „samstæða borg- arinnar skuldar yfir þrjú hundruð milljarða og er eina sveitarfélagið, sem skuldar yfir 150% af tekjum, á höfuðborgarsvæðinu.“    Þegar þetta 150% skuldahlutfaller borið saman við meðaltal hinna sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu, sem er 95%, sést hve ískyggileg staðan er hjá borg- inni.    Það alvarlega er að skuldir borg-arinnar hafa hækkað stöðugt allt kjörtímabilið og hækkuðu um 20 milljarða í fyrra, í því góðæri sem þá ríkti, þvert á fyrirheit í sáttmála meirihutans, eins og Eyþór benti á.    Skuldasöfnun Reykjavíkur er að-eins enn ein birtingarmynd þeirrar óreiðu sem ríkir í stjórn borgarinnar. Sá vandi minnkar ekki við það að borgarfulltrúar Við- reisnar eða aðrir innan meirihlut- ans stingi höfðinu í sandinn og telji sjálfum sér trú um að allt sé í himna- lagi. Þórdís Lóa Þórhalldsóttir Sjálfsblekkingin bætir ekki stöðuna STAKSTEINAR Eyþór Arnalds Þýska rannsóknarskipið RV Sonne hefur undanfarna daga sinnt rann- sóknum innan efnahagslögsögu Ís- lands á hafstraumum í Norður- Atlantshafi. Sást til þess að störfum á miðunum fyrir austan landið, en samkvæmt ferðaáætlun þess verður skipið til sjós í Norðurhöfum fram til 25. júlí og heldur þá til hafnar í Emden. Ekki er gert ráð fyrir að skipið komi hér að landi, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæsl- unni. Ásgrímur Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni, segir mjög al- gengt að rannsóknarskip séu að störfum innan efnahagslögsög- unnar, og jafnvel algengara en fólk gruni. „Þetta er mest yfir skárri helming ársins en þó erum við farnir að sjá þetta oftar yfir allt árið.“ Ás- grímur segir það tilfinningu sína að komum rannsóknarskipa hafi fjölg- að mikið, en sum þeirra eigi einfald- lega viðkomu í íslenskum höfnum án þess að stunda rannsóknir innan efnahagslögsögunnar. sgs@mbl.is Kannar hafstrauma innan lögsögunnar  Komur rannsóknaskipa algengari Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Hafstraumar Þýska rannsóknarskipið RV Sonne sést hér við störf. Þinglýstir leigusamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæð- inu voru 60,1% fleiri í júní síðast- liðnum en í júní í fyrra. Á landinu öllu voru þinglýstir leigusamningar um íbúðarhúsnæði 47,7% fleiri í júní 2020 en í júní 2019. Alls var þinglýst 610 leigusamningum um íbúðar- húsnæði í júní í fyrra en 901 í júní 2020, að sögn Þjóðskrár Íslands. Hlutfallslega var fjölgun slíkra leigusamninga á milli júní 2019 og júní 2020 mest á Suðurlandi, eða 64,3%. Margrét Kristín Blöndal, tals- maður Samtaka leigjenda á Íslandi, sagði að af síðum á samfélagsmiðlum sem fjalla um leigumarkað íbúðar- húsnæðis mætti ráða að framboð af leiguhúsnæði væri nú meira og fjöl- breyttara en það var. „Það hefur aukist mikið að leigðar séu út íbúðir með öllu tilheyrandi,“ sagði Margrét. Hún sagði það benda til þess að um væri að ræða íbúðir sem áður hefðu verið leigðar í skammtímaleigu til erlendra ferða- manna en væru nú komnar í lang- tímaleigu til fólks sem býr hér. „Viðbjóðsholurnar sem verið er að leigja fátækum standa þó enn fyrir sínu og eru ekkert að hverfa,“ sagði Margrét. Hún sagði að leiguverð hefði lækkað aðeins í byrjun kórónu- veirufaraldursins en síðan hefði það hækkað aftur. gudni@mbl.is Leigusamningum fjölgaði milli ára  Algengt að fullbúnar íbúðir séu til leigu  Áður líklega leigðar ferðamönnum Morgunblaðið/Arnaldur Leigusamningar Fleirum þinglýst. Sérstakur rekstrarstuðningur til einkarekinna fjölmiðla Auglýst er eftir umsóknum einkarekinna fjölmiðla um sérstakan rekstrarstuðning sem veittur verður á árinu 2020. Umsóknir skulu sendar fjölmiðlanefnd fyrir 7. ágúst 2020. Í 9. gr. laga nr. 37/2020 er mennta- og menningarmálaráðherra veitt heimild til að veita sérstakan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Í greininni eru tilgreind nokkur skilyrði fyrir rekstrarstuðningi og einnig getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Þá segir í 2. mgr.: „Við ákvörðun um fjárhæð sérstaks rekstrarstuðnings skal m.a. litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðslna vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á ritstjórnum árið 2019, útgáfutíðni og fjölbreytileika fjölmiðla. Endanlegt hlutfall ræðst af fjölda umsókna og skal setja hámark á stuðning til einstakra fjölmiðla. Úthlutun sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla skal fara fram eigi síðar en 1. september 2020.“ Samkvæmt ákvæðum fyrrgreindrar 9. gr. laga nr. 37/2020 hefur mennta- og menningarmálaráðherra sett reglugerð nr. 670/2020 um fyrirkomulag sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla. Til úthlutunar verða 400 millj.kr. Í reglugerðinni eru tilgreind skilyrði fyrir stuðningi og er umsækjendum bent á að kynna sér þau. Einnig hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn. Einnig geta þeir sem starfrækja staðbundna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins sótt um styrk úr byggðaáætlun. Til ráðstöfunar úr byggðaáætlun eru 5 millj.kr. og ræðst styrkfjárhæð til hvers umsækjanda af fjölda gildra umsókna. Umsóknargögn og leiðbeiningar eru á vefsíðu fjölmiðlanefndar, www.fjolmidlanefnd.is. Þar eru tvö skjöl sem umsækjendur sækja og fylla út. Mikilvægt er að öll fylgiskjöl fylgi með umsókn. Umsóknir skulu berast á netfang fjölmiðlanefndar, postur@fjolmidlanefnd.is, fyrir miðnætti 7. ágúst nk. Ef spurningar vakna um hvernig eigi að fylla umsóknina út er hægt að senda fyrirspurn á framangreint netfang. Fjölmiðlanefnd, 10. júlí 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.