Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
75 ára Jan ólst upp í
Limmared í Vestur-
Gautlandi í Svíþjóð en
kom fyrst til Íslands
1970 og býr í Reykja-
vík. Hann var klæðskeri
á Savile Row í London
og er stofnandi Don
Cano og Cintamani og var leiðandi í
hönnun og framleiðslu á útivistarfatnaði
hjá 66° norður.
Maki: Larissa Davidsson, f. 1970 í
Kasakstan, heimavinnandi.
Dætur: Gréta Sandra, f. 1973, og Freyja
Andrea, f. 1976. Barnabörn eru þrjú.
Foreldrar: Gunnar Davidsson, f. 1909, d.
1985, klæðskeri, og Greta Davidsson, f.
1911, d. 1974, söngkona. Þau voru búsett
í Limmared.
Jan Davidsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er eins og allt nái að sleppa
fyrir horn hjá þér í dag. Ef þú ferð eitt-
hvert, reyndu þá að fara á kunnuglegan
stað.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gætir uppgötvað alveg nýja
tekjumöguleika í dag. Nýttu hvert fé-
lagslegt tækifæri til hins ýtrasta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er engin ástæða fyrir þig til
þess að bera ábyrgð á öllum sem í kring-
um þig eru. Hlustaðu á það sem aðrir hafa
fram að færa og dragðu þann lærdóm af
sem nauðsynlegur er þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Maður er manns gaman og það
getur verið reglulega ánægjulegt að eyða
dagstund í góðra vina hópi. Brettu upp
ermarnar og taktu fram verkfæratöskuna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Varastu að dreifa kröftum þínum um
of, því þá áttu á hættu að koma litlu sem
engu í verk. Ef þú reynir of mikið mun það
sleppa frá þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það þýðir ekkert annað en að
sækja málin af festu og láta hvergi deigan
síga þótt eitthvað blási í móti. Forðastu að
skuldbinda þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú stendur frammi fyrir erfiðri
ákvörðun og mátt ekki efast um eigin
dómgreind. Settu þig inn í málið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Í dag verða hlutverkaskipti.
Gættu þess bara að ofmetnast ekki þegar
vel gengur því dramb er falli næst.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt fá jákvæð viðbrögð
við verkefni sem þú hefur unnið að. Ann-
aðhvort muntu slá í gegn eða ákveða að
breyta um starfssvið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt hitta einhvern sem er
á sömu bylgjulengd og þú sjálfur. Búðu þig
undir hörð átök um starfsaðferðir þínar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum er nauðsynlegt að
halda fólki í ákveðinni fjarlægð. Til þín
kann að verða leitað sem sáttasemjara og
þá hefur þú þitt á tæru.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að njóta allra samskipta
við vandamenn þína, einkum börnin. En
það kemur annar dagur og sjálfsagt að
halda þá áfram. Sinntu því sem máli
skiptir og gleymdu ekki sjálfum þér.
alþjóðlegu tengslaneti á sínu sviði. Á
Íslandi stofnaði Alfreð Nautic ehf.
Eftir að hafa fengið stórt hönn-
unaverkefni í Rússlandi stofnaði Al-
freð Nautic RUS 2017, skipahönn-
unarstofu í St. Pétursborg. Í Nautic
og Nautic RUS starfa 55 fagmenn og
-konur við skipahönnun og smíða-
teikningar tíu frystitogara og fjög-
urra 63 metra langra línuskipa fyrir
Norrebo, sem er stærsta rússneska
útgerðarfyrirtækið. Dvelur Alfreð
langdvölum í Rússlandi við uppbygg-
Grenivík, þeim Jóhanni Adólf Odd-
geirssyni eða „Dolla“, og sonum hans,
þeim Oddgeiri og Guðjóni.
Eftir störf við skipahönnun og
eftirlit með skipasmíðum til fjölda ára
m.a. með viðkomu í Asmar í Concep-
tion í Chile 2000-2002, Gdansk/
Gdynia í Póllandi 2005-2008, Celik-
trans í Tyrklandi 2014-2016, hafði Al-
freð öðlast alhliða og alþjóðareynslu á
sviði viðskipta- og lagaumhverfis
þegar kom að skipahönnun og smíði.
Jafnframt kom Alfreð sér upp öflugu
A
lfreð Tulinius fæddist 10.
júlí 1960 á Akureyri og
sleit barnskónum á
„Eyrinni“. Hann óx og
dafnaði við ilminn frá
Kaffibrennslu Akureyrar í bland við
súkkulaðilminn frá sælgætisverk-
smiðju Lindu. Bakgarðurinn var æv-
intýraheimur Slippstöðvarinnar og
smábátahöfnin á Akureyri. Síðar
þegar hann flutti í þorpið var það
peningalyktin frá loðnubræðslunni í
Krossanesi sem fyllti vit Alfreðs sem
gjarnan svaf við galopinn norð-
angluggann, sumar sem vetur.
Tólf ára gamall fór Alfreð í sveit í
Sigluvík á Svalbarðsströnd og dvaldi
gjarnan sumarlangt og fram yfir slát-
urtíð næstu árin og sem kaupamaður
til 17 ára aldurs.
Skólagangan hófst í Oddeyrar-
skólanum á Akureyri en Alfreð lauk
síðan námi við Tækniskólann á Ak-
ureyri 1979. Árið 1981 héldu Alfreð
og Bergljót konan hans til Danmerk-
ur þar sem hann nam við Helsingör
Teknikum, og lauk þar B.Sc.-gráðu í
skipatæknifræði 1985. Næstu tvö ár-
in þar á eftir dvöldu þau hjónin,
ásamt frumburði sínum í Kaup-
mannahöfn meðan Alfreð starfaði hjá
Ramböll & Hanneman við hönnun og
eftirlit með miðlægu hitakerfi Kaup-
mannahafnar. Eftir flutning aftur til
Íslands 1987 starfaði Alfreð hjá
Skipatækni hf. við skipahönnun. Árið
1991 flutti fjölskyldan til Kanada þar
sem Alfreð lauk MBA-námi við Uni-
versity of Western Ontario í London í
Ontario.
Alfreð er mikill keppnismaður og
var liðtækur og kraftmikill körfu-
knattleiksmaður á sínum yngri árum,
fyrst með KA á Akureyri, síðar Þór
og á námsárum sínum í Danmörku
varð hann meðal annars danskur
meistari í greininni með liði sínu þar,
en lagði íþróttina á hilluna eftir þrálát
hnémeiðsli.
Starfssvið Alfreðs hefur alla tíð
tengst alhliða skipahönnun,
verkfyrirkomulagi og búnaði skipa. Á
yngri árum stundaði Alfreð sjálfur
sjómennsku með hléum og samhliða
námi á Verði og Hákoni ÞH með
frændum sínum, útgerðarmönnum
og skipstjórum í útgerðinni Gjögri frá
ingu og þekkingaryfirfærslu íslensks
hugvits til handa ungum og efnileg-
um verkfræðingum Nautic RUS. Al-
freð og Nautic eru meðal annarra
stofnendur að Knarr Maritime Con-
sortium – samsteypu íslenskra þekk-
ingarfyrirtækja sem hafa það að
markmiði að markaðssetja íslenskt
hugvit og tækni tengt íslenskum sjáv-
arútvegi og heildarlausnum í nýsmíð-
um fiskiskipa.
Fjölskylda
Eiginkona Alfreðs er Bergljót Tul-
inius Gunnlaugsdóttir, f. 3.2. 1960,
upplýsingafræðingur við framhalds-
skóla. Þau eru búsett í Reykjavík.
Foreldrar Bergljótar eru hjónin Sig-
ríður Jóhanna Bjarnadóttir, f. 19.3.
1927, húsfreyja frá Ögurnesi í Ísa-
fjarðardjúpi, og Gunnlaugur Finns-
son, f. 11.5. 1928, kennari, bóndi, al-
þingismaður og kaupfélagsstjóri frá
Hvilft í Önundarfirði.
Börn Alfreðs og Bergljótar eru 1)
Arnar Þór Tulinius, f. 9.6. 1986, lækn-
ir í Gautaborg, kona hans er Berglind
Ingibertsdóttir, f. 24.9. 1985, börn
þeirra eru Baldur Logi Tulinus og
Bergþóra Iðunn Tulinius; 2) Steinar
Þorri Tulinius, f. 22.2. 1989, deild-
arstjóri Nautic í Rússlandi og á Ís-
landi, unnusta hans er Olga Mas-
urova frá St. Pétursborg; 3) Karitas
Lotta Tulinius, f. 18.11. 1999, nemi við
Listaháskóla Íslands, sambýlismaður
Alfreð Tulinius, skipaverkfræðingur og stjórnarformaður Nautic ehf. – 60 ára
Í St. Pétursborg Öll fjölskyldan saman komin á skrifstofu Nautic RUS árið 2018.
Hannar skip í Rússlandi
Forsetaheimsókn Alfreð ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs-
ráðherra, Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Berglindi Ásgeirsdóttur, fyrr-
verandi sendiherra í Rússlandi, á skrifstofu Nautic RUS árið 2018.
40 ára Ingi ólst upp
í Breiðholti og Kópa-
vogi en býr í Hafnar-
firði. Hann er fram-
kvæmdastjóri Bíla-
nausts, sem selur
varahluti og bíla-
tengdar vörur.
Maki: Ingibjörg Ása Júlíusdóttir, f.
1985, grunnskólakennari í Hörðuvalla-
skóla í Kópavogi.
Synir: Styrmir Þór, f. 2015, og Júlíus
Þór, f. 2018.
Foreldrar: Hörður Sigurgeirsson, f.
1955, vann við blikksmíðar, síðast hjá
Blikkási Funa, búsettur í Reykja-
nesbæ, og Sigrún Arnarsdóttir, f.
1953, ráðherrabílstjóri, búsett í Breið-
holti.
Ingi Þór Harðarson
Til hamingju með daginn
New York Max Oddsson fæddist 30. júní
2019 í New York. Hann vó 3.400 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru Inga
Nova Oddsson og Baldvin Oddsson.
Nýr borgariSVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU