Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG Á ÉG AÐ VITA AÐ ÞÚ HAFIR
OFNÆMI FYRIR ÞEIM EF ÞÚ SEGIR
ALDREI NEITT?!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það afl sem heldur
þér ungum.
GLEÐILEG JÓL,
KISI!
UUUU…
TAKK
VONANDI
PASSAR
HÚN
KONAN MÍN VILL
AÐ ÉG LÍKIST ÞÉR
MEIRA, HRÓLFUR!
Í ALVÖRU? HRÓLFUR
ER MEIRA OG MINNA
Í BURTU ALLT ÁRIÐ!
EINMITT.
„ÞÚ ERT LÍKLEGA AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR
ÞÉR HVERS VEGNA ÉG FELLDI NIÐUR
TÍMANN Í DAG …”
hennar er Ólafur Alexander Ólafsson.
Systkini Alfreðs eru Carl Daníel
Tulinius, f. 30.11. 1956, tæknimaður
hjá Decode og fyrrverandi vélstjóri á
Hákoni ÞH, búsettur í Garðabæ;
Berglind Tulinius, f. 5.7. 1964, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Sportvers á
Akureyri þar sem hún er búsett;
Hrafnkell Tulinius; f. 5.7. 1964, fram-
kvæmdastjóri og meðeigandi Alfreðs
í Nautic ehf. – Skipahönnun, búsettur
í Reykjavík. Hálfbróðir Alfreðs er
Hörður Davíð Tulinius; f. 1.4. 1974,
viðskiptafræðingur og starfar hjá
Fjármálaeftirlitinu, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Alfreðs: Hjónin Hörður
Tulinius, f. 12.4. 1936, d. 21.8. 1989,
framkvæmdastjóri Híbýlis hf. á
Akureyri, og Erna A. Tulinius, f. 3.5.
1936, læknaritari hjá Fjórðungs-
sjúkrahúsi Akureyrar.
Alfreð Tulinius
Aðalheiður Kristjánsdóttir
húsfreyja á Hlöðum
Oddgeir Jóhannsson
útvegsb. á Hlöðum á Grenivík
Aðalheiður Oddgeirsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Alfreð Pálsson
verslunar- og
skrifstofum. á Akureyri
Erna A. Tulinius
læknaritari á Akureyri
Soffía Vigfúsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
og Akureyri
Páll Andrés Pálsson
kaupm. og bókari á
Seyðisfirði og Akureyri
Kristjana
Samper
myndlistar-
maður
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Alfreð Gíslason
þjálfari þýska
landsliðsins í
handbolta
Guðjón Jóhannsson
fv. skipstjóri á Grenivík
Jóhanna Margrét Tulinius
kennari á Akureyri
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
húsfr. á Ljósafossi
við Sogsvirkjun
Aðalheiður Alfreðsdóttir
fv. bankamaður á
Akureyri
Oddgeir Jóhannsson
skipstjóri á Grenivík
Signý Thoroddsen
sálfræðingur í Rvík
Baltasar
Kormákur
leikstjóri
Jóhann Adólf Oddgeirsson
skipstjóri á Grenivík
Björgólfur Jóhannsson
fv. forstjóri Icelandair
Guðmunda Kristjana Benediktsdóttir
húsfreyja á Næfranesi
Guðmundur Guðmundsson
skipstjóri og útvegsb. á
Næfranesi í Dýrafirði
Halla Tulinius
húsfreyja á Akureyri
Carl Daníel Tulinius
útgerðarmaður og bæjarverkstjóri á Akureyri
Valgerður Friðriksdóttir
húsfreyja á Akureyri
Ottó Friðrik Tulinus
útgerðarmaður og kaupmaður á Akureyri
Úr frændgarði Alfreðs Tulinius
Hörður Tulinius
framkvæmdastjóri á Akureyri
Ingólfur Ómar segir leitt að leir-inn muni líða undir lok, hann
muni sakna hans:
Svekktur er ég sár og meyr
sónargleði dofnar,
þegar út af lognast leir
ljóðagyðjan sofnar.
Undir þetta tekur Sigrún Ásta
Haraldsdóttir og segir: „Sama hér,
sorglegt að dagar Leirs séu taldir“:
Allt hefur sinn tíma, öllu er mörkuð
stund,
elfur tímans líður hægt til óssins.
Daprast aftan skíma, dökknar blik um
sund,
dauðinn þögull bíður handan ljóssins.
Helgi R. Einarsson skrifar að eft-
ir að hafa horft á Dorrit fagna upp-
risu Sáms í sjónvarpinu hafi þessi
orðið til – „Helgispjöll?“
Virðist ríkja vandi
í virtu hjónabandi
því hvutti má
nú kúra hjá
sé karlinn ekki í standi.
Hér kemur önnur af allt öðrum
toga – „Útfararstjórinn“:
Mál er að lofinu linni
kvað líkið í útförinni.
En vitið þið hvað?
Það vissi’ ekki að
það væri þarna í sinni.
Og enn skrifar Helgi: „Fyrst ég
er farinn að bulla fylgir þessi með –
„Feilspor“:
Er hjúskaparheitið braut
og hátt yfir markið skaut,
samviskan stundi,
já, stundi sem Mundi,
samt stundarinnar hún naut.
Hér leikur Heiðrekur Guðmunds-
son sér með orð og greinarmerki
og kallar „Í öngþveiti dagsins“:
Fljótt í mínar fínu taugar
fólkið þar og hér
99,
9% fer.
Um gortara yrkir Heiðrekur:
Hann þykist hafa átt við marga mök
og mótað gull í andans listasmiðju.
En kann þó ekki á yngismeyjum tök,
– og allra síst á ljóðsins tignu gyðju.
Þessa stöku kallar Dagbjartur
Dagbjartsson „Verðbréfaviðskipti“:
Ýmsir finna auð í því,
eðlisglaðir sinna
viðskiptum með verðbréf í
vonum allra hinna.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
svarar og segir frá reynslu sinni:
Fátt ég hef á kúnum grætt og grösum
þó garpur sé til vinnu og ósérhlífinn
því aðrir taka allt úr mínum vösum
utan límbandið og vasahnífinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Öllu er mörkuð stund