Morgunblaðið - 10.07.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 10.07.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Pepsi Max-deild karla Breiðablik – FH........................................ 3:3 Fylkir – KA............................................... 4:1 Staðan: Breiðablik 5 3 2 0 12:6 11 Valur 5 3 0 2 13:6 9 Fylkir 5 3 0 2 9:5 9 KR 4 3 0 1 5:4 9 ÍA 5 2 1 2 11:8 7 FH 4 2 1 1 9:10 7 Stjarnan 2 2 0 0 6:2 6 HK 5 1 2 2 11:13 5 Víkingur R. 5 1 2 2 6:9 5 Grótta 5 1 1 3 7:12 4 KA 4 0 2 2 4:9 2 Fjölnir 5 0 1 4 4:13 1 3. deild karla Sindri – Ægir ............................................ 4:2 Elliði – Reynir S. ...................................... 2:2 KFG – KV ................................................. 0:3 Staðan: Reynir S. 4 3 1 0 10:7 10 KV 4 3 0 1 12:5 9 Sindri 4 2 1 1 8:7 7 Tindastóll 4 2 1 1 7:7 7 KFG 4 2 0 2 10:9 6 Ægir 4 2 0 2 9:9 6 Elliði 4 1 2 1 8:5 5 Augnablik 4 1 2 1 6:6 5 Álftanes 4 1 2 1 4:4 5 Einherji 4 1 1 2 7:12 4 Höttur/Huginn 4 0 1 3 6:9 1 Vængir Júpiters 4 0 1 3 2:9 1 2. deild kvenna HK – ÍR..................................................... 3:0 Grindavík – Álftanes ................................ 6:0 Hamar – Sindri ......................................... 4:2 Staðan: HK 4 4 0 0 13:0 12 Grindavík 4 2 0 2 12:6 6 Hamrarnir 3 2 0 1 6:5 6 FHL 3 2 0 1 8:9 6 Álftanes 3 2 0 1 5:8 6 ÍR 4 1 1 2 6:10 4 Hamar 3 1 0 2 5:9 3 Fram 3 0 1 2 7:11 1 Sindri 3 0 0 3 4:8 0 England Everton – Southampton.......................... 1:1  Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 43. mínútu hjá Everton. Bournemouth – Tottenham..................... 0:0 Aston Villa – Manchester United ........... 0:3 Staðan: Liverpool 34 30 2 2 75:26 92 Manch.City 34 22 3 9 86:34 69 Chelsea 34 18 6 10 63:46 60 Leicester 34 17 8 9 64:32 59 Manch.Utd 34 16 10 8 59:33 58 Wolves 34 13 13 8 45:37 52 Sheffield Utd 34 13 12 9 35:33 51 Arsenal 34 12 14 8 50:42 50 Tottenham 34 13 10 11 52:44 49 Burnley 34 14 7 13 38:46 49 Everton 34 12 9 13 41:49 45 Southampton 34 13 5 16 43:56 44 Newcastle 34 11 10 13 35:50 43 Crystal Palace 34 11 9 14 30:43 42 Brighton 34 8 12 14 36:47 36 West Ham 34 8 7 19 40:59 31 Watford 34 7 10 17 31:53 31 Bournemouth 34 7 7 20 32:59 28 Aston Villa 34 7 6 21 36:65 27 Norwich 34 5 6 23 26:63 21 B-deild: Leeds – Stoke ........................................... 5:0 Ítalía Torino – Brescia ...................................... 3:1  Birkir Bjarnason lék fyrstu 60 mínút- urnar með Brescia. Bologna – Sassuolo.................................. 1:2  Andri Fannar Baldursson kom inn á hjá Bologna á 74. mínútu. C-deild, umspil, 16-liða úrslit: Juventus U23 – Padova........................... 2:0  Emil Hallfreðsson lék fyrstu 62 mínút- urnar með Padova. Rússland Rubin Kazan – Krasnodar ...................... 1:0  Jón Guðni Fjóluson var allan tímann á bekknum hjá Krasnodar. Bandaríkin New York City – Philadelphia Union ... 0:1  Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá New York í uppbótartíma leiksins. Danmörk Midtjylland – FC København ................. 3:1  Mikael Anderson lék fyrstu 80 mínút- urnar með Midtjylland.  Ragnar Sigurðsson lék fyrstu 27 mín- úturnar með Köbenhavn. Bröndby – Nordsjælland ........................ 4:0  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. AaB – AGF................................................ 1:0  Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn með AGF. Staða efstu liða: Midtjylland 32 25 3 4 53:20 78 København 32 19 4 9 53:37 61 AGF 32 17 6 9 50:37 57 Brøndby 32 15 6 11 54:40 51  Midtjylland er danskur meistari. Svíþjóð Bikarkeppnin, undanúrslit: Mjällby – Malmö .............................. 2:4 (0:0)  Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 69 mínúturnar með Malmö.  FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Daði Ólafsson, sem gaf tóninn fyrir frábæran endasprett Fylkis gegn KA í Árbænum í gærkvöld með því að kom liði sínu í 2:1, sagði við mig eftir leikinn að hann vissi ekki hvað væri eiginlega orðið langt síðan Fylkir hefði unnið þrjá leiki í röð í deildinni. Engin furða að Daði myndi ekki eftir því, enda gerðist það síðast hjá Fylki í efstu deild nokkrum vikum áður en hann spilaði sinn fyrsta leik með liðinu, síðsumars árið 2013. Þá vann Fylkir fjóra leiki í röð, eftir einn sigur í fyrstu tólf leikjunum. Með sannfærandi 4:1 sigri á KA eru sigurleikirnir í deildinni orðnir þrír í röð eftir tvö töp í byrjun móts. Gott veganesti fyrir erfiðan kafla þar sem næstu mótherjar Árbæinga eru FH, KR og Valur. Þá sést betur hvort þeir muni gera alvöruatlögu að því að koma sér fyrir í efri hluta deildarinnar.  Valdimar Þór Ingimundarson skoraði sitt fimmta mark í jafn- mörgum leikjum í ár og lagði auk þess upp tvö önnur fyrir Fylki.  Djair Parfitt-Williams, kant- maður frá Bermúda, skoraði sitt fyrsta mark í deildinni þegar hann kom Fylki í 1:0 í fyrri hálfleik, eftir sendingu Valdimars.  Andrés Már Jóhannesson, leikjahæsti leikmaður Fylkis í deild- inni frá upphafi, kom inná undir lok- in, í fyrsta sinn á tímabilinu. Hann er með 189 leiki fyrir liðið í deildinni.  Byrjun KA-manna, tvö stig í fjórum leikjum, er versta byrjun fé- lagsins á nokkru Íslandsmóti frá því liðið hóf titilvörnina 1990 á því að tapa fyrstu fjórum leikjum sínum. Mikkelsen þýtur upp listann  Thomas Mikkelsen er kominn í þriðja til fjórða sæti yfir marka- hæstu leikmenn Breiðabliks í efstu deild karla frá upphafi eftir að hafa skorað tvívegis í jafnteflinu, 3:3, við FH á Kópavogsvelli í fyrrakvöld. Daninn hefur nú skorað sex mörk á tímabilinu og 29 mörk alls fyrir Breiðablik. Hann fór upp fyrir Al- freð Finnbogason og jafnaði Árna Vilhjálmsson í þriðja sætinu.  Kristinn Steindórsson bætti markamet sitt enn með því að skora fyrsta markið gegn FH. Hann hefur gert 37 mörk fyrir Breiðablik en Sigurður Grétarsson er annar með 31 mark.  Steven Lennon skoraði þriðja mark FH, sitt fimmta á tímabilinu, og jafnaði Óskar Örn Hauksson í 14.-15. sæti yfir markahæstu menn deildarinnar frá upphafi með 76 mörk.  Atli Guðnason skoraði líka fyrir FH og er kominn í 21.-22. sæti markalistans með 67 mörk, jafn Helga Sigurðssyni. Þar með hefur Atli skorað mark á fimmtán tímabil- um í röð með FH, eða samfleytt frá 2006. Morgunblaðið/Árni Sæberg Markaskorarar Varnarmaðurinn Orri Sveinn Stefánsson úr Fylki og Guð- mundur Steinn Hafsteinsson, framherji KA, skoruðu báðir í gærkvöldi. Besti kafli Fylkis frá árinu 2013  Þriðji sigurinn í röð og Fylkir í þriðja sæti  Versta byrjun KA frá 1990 Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í knatt- spyrnu, er orðinn þjálfari Þróttar frá Vogum. Þróttur leikur í 2. deild. Her- mann tekur við af Brynjari Gestssyni sem hætti með liðið á dögunum vegna veikinda. Hermann lék tæplega 500 leiki sem atvinnumaður á Englandi og 89 landsleiki. Hefur hann m.a. þjálfað karla- og kvennalið Fylkis og karlalið ÍBV. Var hann síðast aðstoð- arþjálfari Sol Campbell hjá Southend í ensku C-deildinni. Þróttur er í átt- unda sæti 2. deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki. Hermann þjálf- ar Þrótt Vogum Ljósmynd/Þróttur Vogum Vogar Hermann Hreiðarsson er tek- inn við Þrótti Vogum. Sleggjukastarinn Vigdís Jónsdóttir úr FH bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti á níunda Origo- mótinu sem fram fór í Kaplakrika í gær. Vigdís kastaði 62,69 metra og bætti eigið Íslandsmet um ellefu sentímetra. Var metið aðeins tveggja vikna gamalt en Vigdís átti það sjálf og var hún að bæta Íslandsmetið í þriðja sinn í sumar og í tólfta skiptið í heildina. Keppir hún á Meistaramóti Íslands á Akureyri 25. og 26. júlí næst- komandi. Ellefta Íslands- met Vigdísar AFP Íslandsmet Vigdís Jónsdóttir bætti Íslandsmetið í Kaplakrika. FYLKIR – KA 4:1 1:0 Djair Parfitt-Williams 31. 1:1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 67. 2:1 Daði Ólafsson 73. 3:1 Valdimar Þór Ingimundarson 75. 4:1 Orri Sveinn Stefánsson 86. M Djair Parfitt-Williams (Fylki) Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki) Aron Snær Friðriksson (Fylki) Orri Sveinn Stefánsson (Fylki) Nikulás Val Gunnarsson (Fylki) Arnór Gauti Jónsson (Fylki) Daði Ólafsson (Fylki) Hallgrímur Mar Bergmann (KA) Bjarni Aðalsteinsson (KA) Hrannar Björn Bergmann (KA) Dómari: Elías Ingi Árnason – 7. Áhorfendur: 815. BREIÐABLIK – FH 3:3 M-gjöfin var ekki í blaðinu í gær þar sem leiknum var ekki lokið þegar það fór í prentun í fyrrakvöld. MM Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) Þórir Jóhann Helgason (FH) M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki) Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Davíð Ingvarsson (Breiðabliki) Gunnar Nielsen (FH) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Steven Lennon (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Atli Guðnason (FH) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7. Áhorfendur: 1.483.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. Manchester United er aðeins einu stigi frá Leicester City í fjórða sæti ensku úrvalsdeildinnar í fótbolta eft- ir sannfærandi 3:0-útisigur á Aston Villa í gærkvöld. United hefur leikið afar vel eftir að deildin fór af stað á ný og unnið fjóra af fimm leikjum sínum og enn ekki beðið ósigur. Eft- ir erfiða byrjun fékk United afar vafasama vítaspyrnu á 27. mínútu er Bruno Fernandes fór niður innan teigs. Fernandes skoraði sjálfur úr spyrnunni og eftir það tók United völdin og Mason Greenwood og Paul Pogba bættu við mörkum. Haldi United áfram á sömu braut er næsta víst að liðið leiki í Meistaradeild Evr- ópu á næstu leiktíð. Everton og Southampton skiptu með sér stig- unum er þau gerðu 1:1-jafntefli á Goodison Park. Gylfi Þór Sigurðs- son kom inn á sem varamaður á 42. mínútu í stöðunni 1:0 fyrir South- ampton og aðeins mínútu síðar skor- aði Richarlison jöfnunarmark og þar við sat. José Mourinho vill væntanlega gleyma markalausa jafntefli læri- sveina sinna í Tottenham á útivelli gegn Bournemouth. Tottenham átti ekki skot á markið og varð í leiðinni fyrsta liðið frá því árið 2015 sem leikur deildarleik við Bournemouth án þess að eiga skot á markið. AFP Pressa Gylfi Þór Sigurðsson pressar Shane Long í liði Southampton í gær. United aðeins stigi frá fjórða sætinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.