Morgunblaðið - 10.07.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
Bríet Sif Hinriksdóttir og El-
ísabeth Ýr Ægisdóttir gengu í gær
til liðs við körfuknattleikslið Hauka
en þær spiluðu báðar með Grindavík
í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Bríet er 23 ára gömul og hefur leik-
ið lengi í deildinni, eitt ár með
Grindavík og áður með Keflavík og
Stjörnunni en Elísabeth er 17 ára
gömul og vakti athygli með Grinda-
víkurliðinu síðasta vetur.
Skíðakappinn Finn Christian
Jagge, einn þekktasti alpa-
greinamaður Norðmanna er látinn,
54 ára að aldri, vegna skyndilegra
veikinda. Jagge varð Ólympíu-
meistari í svigi í Albertville árið
1992 og vann sjö heimsbikarmót en
samtals komst hann sautján sinnum
á verðlaunapall á heimsbikarmótum
í alpagreinum.
Gróttumenn skýrðu frá því í gær
að skoski knattspyrnumaðurinn
Kieran McGrath væri kominn úr
sóttkví og byrjaður að æfa með lið-
inu. McGrath, sem er 19 ára fram-
herji og kemur frá skosku meist-
urunum Celtic, var löglegur með
Gróttu fyrir leikina gegn HK og
Fjölni en Seltirningar tóku enga
áhættu á því að taka hann strax inn
í hópinn. McGrath gæti því komið
við sögu á sunnudaginn þegar
Grótta fær ÍA í heimsókn.
Elmar Atli Garðarsson fyrirliði 1.
deildarliðs Vestra í knattspyrnu við-
beinsbrotnaði í leik liðsins gegn Þór
á Akureyri í fyrrakvöld. Elmar verð-
ur frá keppni næstu vikurnar af
þessum sökum en Vestri vann leik-
inn á Akureyri mjög óvænt, 1:0.
Arnór Ingvi Traustason og sam-
herjar hans í Malmö eru komnir í
bikarúrslit í sænska fótboltanum
eftir sigur á Mjällby á útivelli í und-
anúrslitum í gær. Réðust úrslitin í
vítakeppni, eftir markalaust jafn-
tefli, þar sem Malmö skoraði úr
fjórum spyrnum og Mjällby tveimur.
Arnór var í byrjunarliði Malmö og
lék í 69 mínútur.
Pólski markaskorarinn Robert
Lewandowski sigraði með nokkrum
yfirburðum í kosningu á vegum
samtaka atvinnuknattspyrnumanna í
Þýskalandi á besta leikmanninum í
1. deild karla. Lewandowski skoraði
34 mörk í 31 leik í deildinni fyrir
Þýskalandsmeistara Bayern Münc-
hen. Hann fékk rúmlega 40 prósent
atkvæða en
næstir komu
Englending-
urinn Jadon
Sancho hjá
Dortmund
með 13,9
prósent
og Jos-
hua Kim-
mich hjá
Bayern
með 7,2
prósent
atkvæða.
Eitt
ogannað
Midtjylland varð í gær danskur
meistari í fótbolta í þriðja skipti og
í annað skipti á þremur árum. Gull-
tryggði liðið meistaratitilinn með
3:1-sigri á FC København á heima-
velli í gær.
Landsliðsmaðurinn Mikael And-
erson var í byrjunarliði Midtjylland
og lék fyrstu 81. mínútuna. Þegar
aðeins fjórar umferðir eru eftir er
Midtjylland með 78 stig, sautján
stigum meira en FC København.
Mikael hefur verið mikilvægur
hlekkur í liði Midtjylland á leiktíð-
inni og leikið 28 leiki og skorað í
þeim fjögur mörk.
Þrátt fyrir að liðið hafi tryggt sér
titilinn á heimavelli, hefur grunn-
urinn verið lagður á útivelli þar
sem Midtjylland hefur unnið 15 af
16 leikjum sínum og enn ekki tapað.
Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðs-
son var í byrjunarliði FC Køben-
havn en fór meiddur af velli á 27.
mínútu þegar lið hans var með 1:0
forystu.
Mikael fagnaði danska
meistaratitlinum
Ljósmynd/Midtjylland
Meistarar Mikael Anderson og liðsfélagar hans fagna meistaratitlinum.
NOREGUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kópavogsbúinn Alfons Sampsted
hefur slegið í gegn með Bodø/Glimt
í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á þessari leiktíð en liðið er í
efsta sæti deildarinnar með fullt hús
stiga eða átján eftir fyrstu sex um-
ferðirnar.
Bakvörðurinn, sem er 22 ára
gamall, hefur spilað allar mínútur
liðsins í sumar en hann gekk til liðs
við norska félagið í febrúar á þessu
ári eftir þrjú ár í herbúðum Norr-
köping í Svíþjóð þar sem hann náði
ekki að festa sig í sessi.
Alfons er uppalinn hjá Breiðabliki
þar sem hann á að baki 25 leiki í
efstu deild en hann lék sína fyrstu
A-landsleiki í ár gegn Kanda og El
Salvador í Bandaríkjunum í janúar.
„Það er erfitt að segja að þetta
góða gengi hafi komið manni á
óvart,“ sagði Alfons í samtali við
Morgunblaðið. „Það eru mikil gæði í
leikmannahópnum og það er sér-
stakt hvernig allir í liðinu eru á ná-
kvæmlega sömu bylgjulengd. Það er
eitthvað sem maður hefur aldrei
upplifað áður.
Við erum með ákveðið leikplan
sem allir fylgja og þá hafa allir leik-
menn liðsins gríðarlega trú á því
leikplani sem unnið er með. Við höf-
um lagt gríðarlega mikið á okkur,
undanfarna mánuði, og manni finnst
við hálfpartinn eiga þetta skilið með
hliðsjón af allri vinnunni sem hefur
farið í þetta.“
Nýtti tækifærið
Alfons gekk til liðs við Norrköp-
ing frá Breiðabliki árið 2017 og var
lánaður þrívegis í sænsku neðri
deildarinnar á tíma sínum í Svíþjóð,
tvisvar til Sylvia og einu sinni til
Landskrona. Þá var hann lánaður til
Breiðabliks seinni hluta síðasta
tímabils.
„Mér hefur gengið mjög vel að
aðlagast lífinu í Noregi og ég bý að
ákveðinni reynslu frá tíma mínum í
Svíþjóð um hvernig það er að vera
atvinnumaður í fótbolta í öðru landi.
Kórónuveirufaraldurinn hafði ekki
áhrif á æfingar hjá okkur þannig
séð því við æfðum saman í litlum
hópum á meðan faraldurinn stóð
sem hæst og ég náði því að komast
vel inn í hópinn strax á fyrsta degi.
Það var smá lán í óláni að maður
mátti ekki umgangast neinn annan
nema leikmenn liðsins og þess
vegna eignaðist ég virkilega góða
vini hérna á skömmum tíma. Þá líð-
ur mér mjög vel í Noregi og þegar
að manni líður vel þá spilar maður
vel.“
Bakvörðurinn hefur smollið eins
og flís við rass í lið Bodø/Glimt en
ítrekar að hann hafi þurft að vinna
vel fyrir sæti sínu í byrjunarliðinu.
„Ég held að það sé enginn þjálfari
í heiminum sem lofar leikmönnum
byrjunarliðssæti bara sí svona. Þeg-
ar að ég kem til félagsins þá tjáir
þjálfarinn mér það að ég muni fá
mitt tækifæri eins og aðrir leik-
menn liðsins.
Ég nýtti þau tækifæri sem ég
fékk og er á góðum stað í dag. Að
sama skapi skiptir litlu máli hvað þú
hefur afrekað í fótbolta, það er bara
næsti leikur sem telur, og ég þarf
þess vegna að halda áfram að
standa mig ef ég ætla mér að halda
mínu sæti enda samkeppni um allar
stöður í liðinu.“
Liðsheildin mikilvægust
Bodø/Glimt hefur aldrei orðið
norskur meistari en liðið hafnaði í
öðru sæti deildarinnar á síðustu
leiktíð með 14 stigum minna en
Molde sem vann með yfirburðum.
„Það er oftast þannig að pressan
kemur mest utan frá en við erum
klárlega með gæðin til þess að fara
alla leið. Það er líka undir okkur
sjálfum komið hvernig við nýtum
okkur hæfileikana í leikmannahópn-
um og ef menn ætla allt í einu að
fara taka upp á því að fara gera
hlutina upp á eigin spýtur þá gæti
þetta verið fljótt að breytast.
Það sem hefur skilað okkur á
þann stað sem við erum á í dag er
fyrst og fremst samvinna og góð
liðsheild. Það hefur einkennt Bodø/
Glimt í upphafi tímabilsins en við
ætlum ekki fram úr okkur eftir sex
leiki. Við munum halda áfram að
taka einn leik fyrir í einu og svo
sjáum við hverju það skilar okkur
undir restina.“
Alfons segir lítinn mun á norsku
og sænsku úrvalsdeildinni þegar allt
kemur til alls og þá stefnir bakvörð-
urinn hátt með íslenska landsliðinu
eftir að hafa leikið sína fyrstu A-
landsleiki í janúar.
Lítill munur á deildunum
„Heilt yfir þá er sænska deildin
kannski aðeins teknískari en sú
norska en norska deildin byggir
meira á líkamsburðum og leikmenn-
irnir hérna eru sterkari. Eftir að
hafa spilað á báðum stöðum þá
myndi ég samt segja að bestu lið
Svíþjóðar séu á pari við bestu liðin í
Noregi þannig að gæðin eru
kannski svipuð bara í báðum deild-
um.
Þegar kemur að íslenska landslið-
inu þá vonast ég til þess að gera mig
gildandi í því einn daginn. Ég er
hins vegar meðvitaður um það að
landsliðsþjálfarar Íslands horfa
mikið til félagsliðanna og hvernig
menn eru að standa sig þar. Ef ég
er einbeittur á að standa mig með
mínu félagsliðið þá aukast líkurnar
á því að sé valinn í landsliðið,“ sagði
Alfons í samtali við Morgunblaðið.
Klárlega með gæðin
til þess að fara alla leið
Alfons byrjar vel með Bodø/Glimt sem hefur unnið sex fyrstu leiki sína
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Noregur Alfons Sampsted fer gríðarlega vel af stað með Bodø/Glimt.
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 16-liða úrslit:
Origo-völlur: Valur – ÍBV......................... 18
Meistaravellir: KR – Tindastóll .......... 19.15
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – FH........ 19.15
Samsung-völlur: Stjarnan – Selfoss ... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik ........... 20
Ásvellir: Haukar – Fjarð/Hött/Leikn. 20.15
Í KVÖLD!
Spænska körfuknattleiksliðið Val-
encia hefur samið við Martin Her-
mannsson landsliðsmann í körfu-
knattleik en frá þessu er greint á
vefsíðunni Eurohoops. Valencia er
eitt af stórliðunum í evrópskum
körfubolta og hafnaði í tíunda sæti í
Euroleague í vetur en Alba Berlín, lið
Martins undanfarin tvö ár, hafnaði
þar í sextánda sæti. Liðið var í undan-
úrslitum um spænska meistaratitilinn
á dögunum en tapaði þar naumlega,
75:73, fyrir Baskonia sem síðan vann
Barcelona í úrslitaleiknum. Valencia
hefur verið samfleytt í einu af sex
efstu sætunum á Spáni frá 2009 og
vann spænsku deildina árið 2017 en
varð síðan í öðru sæti í úrslitakeppn-
inni. Jón Arnór Stefánsson lék með
Valencia 2006-07 og aftur 2015-16 þar
sem hann lauk sínum atvinnumanns-
ferli. Tryggvi Snær Hlinason hóf sinn
atvinnuferil þar og lék með liðinu
2017 til 2019. Þá er Hilmar Smári
Henningsson á mála hjá Valencia og
hefur spilað með varaliði félagsins.
Martin að semja við
spænskt stórlið
Ljósmynd/Euroleague
Spánn Martin Hermannsson er á leið til Valencia á Spáni frá Alba Berlin.