Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð
á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson,
sem komið hefur út í íslenskri þýðingu.
EXTENDED EDITION
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI
Sýnd með
íslensku tali
Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI
ÞESSI STÓRKOSTLEGA MYND SÝND Í ÖRFÁA DAGA.90% Variety
2020 verða haldnir kl. 17. Þar frum-
flytur KIMI tríó ný verk eftir
staðartónskáld Sumartónleika,
Þórönnu Björnsdóttur og Gunnar
Karel Másson. Tónskáldin hafa
dvalið í Skálholti undanfarið og
unnið að verkum sem samin eru
sérstaklega að þessu tilefni, fyrir
KIMA tríó. Á undan tónleikunum,
kl. 16.15, verður rætt við staðar-
tónskáldin um verkin.
Lokahelgi Sumartónleika í Skál-
holti 2020 fer nú í hönd og kennir
þar ýmissa grasa. Tónlistarhópur-
inn KIMI tríó flytur ný og nýleg
verk á dagskránni Afkimar, í kvöld,
föstudaginn 10. júlí, kl. 20. Þrjú
verkanna eru samin sérstaklega
fyrir KIMA.
Barokkdagskráin Allar leiðir
liggja frá Rómarborg verður á
laugardag kl. 14. Tónleikarnir eru
tileinkaðir fiðluleikaranum Jaap
Schröder og Helgu Ingólfsdóttur,
semballeikara og stofnanda Sumar-
tónleika í Skálholti. Seinna sama
dag, kl. 16, flytur flautuhópurinn
Aulos Ensemble dagskrána Landið
okkar. Þar verða ný íslensk verk á
efnisskránni.
Sumartónleikum lýkur á sunnu-
dag með tvennum tónleikum.
Fiðludúettinn Bachelsi verður
með tónleika fyrir alla fjölskylduna
kl. 14. Þar fá gestir að hlýða á sögu
Jóhanns Sebastians Bach og Önnu
Magdalenu Bach og flutning á
verkum þeirra.
Lokatónleikar Sumartónleika
Barokk og ný verk á dagskrá
lokahelgar Sumartónleika í Skálholti
Ljósmynd/Efi Anagnostidou
Tríó Hópurinn KIMI heldur tvenna tónleika
í Skálholti um helgina.
ina í ár. Síðar sama kvöld, kl. 21.30,
sýnir búrleskhópurinn Dömur og
herra kabarett. Báðar sýningarnar
fara fram í Tjarnarbíói.
Hátíðinni lýkur að vanda með
verðlaunaafhendingu. Hún verður
haldin í Secret Cellar á sunnudag,
kl. 18.
Nánari upplýsingar um dagskrá
Reykjavík Fringe má finna á
heimasíðu hátíðar rvkfringe.is.
Jaðarlistahátíðin Reykjavík Fringe
hefur staðið yfir síðan síðastliðinn
laugardag og lýkur henni nú um
helgina.
Fringe sérhæfir sig meðal annars
í að kitla hláturtaugar gesta sinna
með miklu úrvali uppistandssýn-
inga. Um helgina gefst gestum
meðal annars kostur á að hlýða á
hinn vinsæla ástralska uppistand-
ara Jono Duffy, á föstudagskvöld
kl. 22 í Tjarnarbíói og síðan á
laugardags- og sunnudagskvöld í
Secret Cellar við Lækjargötu. Einn-
ig verða uppistandssýningar á borð
við Why Are You So Old? með Nich
Jameson og My Voices Have Tour-
ettes á dagskrá um helgina.
Leikhúsvídeóverkið Them verð-
ur sýnt á laugardagskvöld kl. 19.30.
Það hafði verið hugsað sem sviðs-
verk en vegna faraldursins hafa
listamennirnir neyðst til að þróa út
því myndbandsverk og hafa haft
gaman af. Þessu verki, ásamt fleir-
um, er streymt á netinu. Það var
lausn skipuleggjenda á því að er-
lendir gestir kæmust ekki á hátíð-
Kabarett, leikhús og uppistand á
jaðarlistahátíðinni Reykjavík Fringe
Þreyttur Uppistandssýning Jono Duffy,
I’m Tired, verður á dagskrá.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hin árlega alþjóðlega myndlistar-
sýning Rúllandi snjóbolti verður
opnuð í Bræðslunni á Djúpavogi á
morgun, laugardag, klukkan 15.
Þetta er sjöunda árið í röð sem sýn-
ingin er sett upp á Djúpavogi en
þessi hefur þó númerið 13 og er
samstarfsverkefni Djúpavogs-
hrepps og Kínversk-evrópsku
menningarmiðstöðvarinnar í Xia-
men í Kína. Upphafsmenn sýning-
arinnar hér á landi eru hjónin Sig-
urður Guðmundsson myndlistar-
maður og Ineke Guðmundsson,
stofnandi miðstöðvarinnar í
Xiamen, og hafa þau boðið fjölda
ólíkra listamanna að taka þátt í sýn-
ingunni á undanförnum árum.
Eins og áður eiga margir lista-
menn verk á sýningunni, um þrjátíu,
en að þessu sinni er um þriðjungur
erlendir listamenn.
Að sögn Kristínar Dagmar Jó-
hannesdóttur, sem kemur að
sýningarstjórninni með Ineke og
Sigurði, hefur kórónuveirufaraldur-
inn óneitanlega haft áhrif á skipu-
lagningu og framkvæmd sýningar-
innar að þessu sinni en hún segir að
útkoman verði jafn áhugaverð og
áður. Ákveðið hafi verið að slá sýn-
inguna ekki af vegna ástandsins,
heldur finna leiðir til að setja saman
ferska og áhugaverða sýningu.
„Það verða sýnd verk eftir sjö
listamenn frá menningarmiðstöð-
inni í Xiamen,“ segir Kristín. „Þeir
eru ekki á staðnum, þar sem lokað
er á ferðalög milli landanna, en við
sýnum vídeóverk eftir þá alla.“
„Stór og flottur hópur“
Athygli vekur að margir sýnend-
anna, 19 listamenn, eru nýútskrif-
aðir úr Listaháskóla Íslands.
„Sigurður bauð þeim að sýna, fyr-
ir ekki svo löngu. Það var fallegt boð
en með þeim sýna svo nokkrir
reyndir Íslendingar, Sigurður á
sjálfur verk á sýningunni, líka Þór
Vigfússon, Hrafnkell Sigurðsson og
Bjargey Ólafsdóttir. „Þetta er því
stór og flottur hópur sem sýnir nú
saman.“
Þegar spurt er hvort ungu lista-
mennirnir sýni verk sem voru á út-
skriftarsýningu þeirra á dögunum
segir Kristín að mörg þeirra vinni
að nýjum verkum fyrir sýninguna á
Djúpavogi. „Þau gátu ráðið því
hvort þau sýndu útskriftarverk eða
eitthvað annað og langflest kusu að
gera ný. Þau eru öll að mæta, og
sum eru mætt þegar að vinna verk.“
Hún segir einhver vinna vídeóverk,
aðrir eru með gjörninga, málverk
eða skúlptúra.
„Það er afar fersk og skemmtileg
stemning hér. Það er komin hefð
fyrir sýningunni á staðnum og ég
heyri það í bæjarfélaginu að það er
áhugi á henni, hvað verði að sjá
núna. Það var vissulega tvísýnt um
tíma hvort sýningin yrði, og það
gleður alla að það verði af henni.
Þessi sýning er að vissu leyti líf-
rænni en hinar fyrri en Ineke og
Sigurður hafa þó aldrei verið með
neitt þema heldur hefur verið opið
hvað listamenn sem hefur verið boð-
ið hafa sýnt.
Það er óðum að koma mynd á sýn-
inguna og þetta er mjög spennandi,“
sagði Kristín Dagmar þar sem hún
var við uppsetningu Rúllandi snjó-
bolta í gær. Sýningin mun standa
fram í miðjan ágúst.
Safn ljóðverka Sigurðar
Samhliða opnun sýningarinnar á
Djúpavogi gefur Crymogea út bók-
ina Ljóð og Ljóð sem er heildarsafn
ljóðverka Sigurðar Guðmunds-
sonar.
Í bókinni koma saman ljóð Sig-
urðar frá ýmsum skeiðum í ferli
hans. Ljóð sem upphaflega voru
hugsuð sem hugmyndalistaverk og
voru gefin út í bókum í Hollandi,
ljóð úr skáldsögum hans og síðan
ljóð sem hann hefur ort í samhengi
við verk sín.
Ungir listamenn
áberandi á Djúpavogi
Samsýningin Rúllandi snjóbolti opnuð í sjöunda sinn
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Frumkvöðlar Hjónin Ineke og Sigurður Guðmundsson við eitt verka hans á
Djúpavogi. Þau eru forsprakkar samsýningarinnar Rúllandi snjóbolti/13.