Morgunblaðið - 10.07.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.07.2020, Qupperneq 32
Sumardagskrá Jazzklúbbsins Múlans held- ur áfram í kvöld, föstudaginn 10. júlí. Tón- leikar með kvartett Þorgríms Jóns- sonar hefjast kl. 20 í Flóa á jarð- hæð Hörpu. Bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson leiðir nýjan kvartett, en með honum leika þeir Rögnvaldur Borgþórsson gítarleikari, Magnús Trygvason Elíassen trommuleikari og hinn fjölhæfi Tómas Jónsson. Þeir munu flytja nýja tónlist eftir Þorgrím, sem er útsett af þeim fé- lögum sérstaklega fyrir þetta tilefni. Þeir útiloka þó ekki að eldri tónsmíðar fái að fljóta með. Kvartett Þorgríms Jónssonar á sumardagskrá Múlans FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 192. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Fylkismenn eru komnir í þriðja sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, eftir sigur á KA, 4:1, á Würth-vellinum í Árbænum í gærkvöld. Fylkir er þá með 9 stig eftir fimm leiki og hefur unnið þrjá leiki í röð eftir tvö töp í byrjun móts. KA situr eftir með tvö stig úr fjórum leikjum og er í næstneðsta sætinu. Að- eins KA og Fjölnir eiga enn eftir að fagna sigri í sumar. Fylkismönnum var ekki spáð góðu gengi í sumar og áttu fáir von á að Árbæingar yrðu í þriðja sæti eftir fimm leiki. »26 Fylkismenn upp í þriðja sæti Pepsi Max-deildarinnar eftir stórsigur ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Skemmtilegast er að vera í vagn- inum þegar mest er að gera. Þó að ég sé farin að minnka við mig vinnu tek ég alltaf tarnir, þá sérstaklega um helgar og á annatímum því það höfðar til mín að vera í asanum og hitta fólk,“ segir Ingunn Guðmunds- dóttir, sem á og hefur rekið Pylsu- vagninn á Selfossi í 36 ár. Þar í bæ er þessi skyndibitastaður sem föst stærð og nýtur vinsælda. Staðinn á Ingunn með Þórdísi Sólmundsdóttur dóttur sinni. Hamborgarar með rauðkáli Sjaldan kemur sú stund að ekki sé fólk við afgreiðsluna eða bílar í röð sem liggur að lúgunum. Á seðlinum í Pylsuvagninum eru um 30 réttir; ein með öllu er þar efst og selst eins og enginn sé morgundagurinn. Einnig má nefna fisk og franskar, pítur, samlokur, kjúklingarétti og fleira. Þá bjóðast hamborgarar af sjö gerðum, svo sem með rauðkáli og súrum gúrkum. „Þetta er sérstaðan; Selfossborgarinn sem við köllum svo. Norður á Akureyri tíðkast að setja rauðkál á pylsurnar en hér ger- um við enn betur,“ segir Ingunn, sem með þáverandi eiginmanni sín- um keypti Pylsuvagninn árið 1984 – en reksturinn hófst fáum árum fyrr. Þegar Ingunn tók við var starf- semin í þriggja fermetra skúr og mátti varla þrengra vera. Nokkrum árum síðar voru húsakynnin meira en tvöfölduð, í sjö fermetra. Árið 1995 var starfsemi Pylsuvagnsins, sem nú er í 86 fermetra húsi, svo flutt á núverandi stað sem er vestan við Ölfusárbrú og á hægri hönd þeg- ar yfir hana er ekið inn í bæinn. Úr innheimtu í pylsur Rekstur Pylsuvagnsins var lengi aðeins aukageta hjá Ingunni, sem lengi starfaði í Landsbankanum. „Ég var síðast í því að skrifa út inn- heimtubréf fyrir lögfræðinga. Ég mæddist um síðir á því, kannski skiljanlega, og sneri mér því alfarið að pylsunum,“ segir Ingunn og hlær. „Þessi rekstur byggist annars mikið á því að hafa gott starfsfólk sem mér hefur haldist vel á. Sumar stelpurnar hafa unnið hér hjá mér í áraraðir. Alls vinna hjá mér 38 manns; sumir eru bara virku dagana en fleiri aðeins um helgar, því þá er opið lengi. Aðfaranætur sunnudaga er hér opið fram undir morgun og oft er talsverður erill á nóttunni, til dæmis þegar fólk er á heimleið eftir skemmtanir. Þegar sveitaböllin voru og hétu var oft líf í tuskunum hér fyrir utan,“ segir Ingunn og að síð- ustu: Lít á lífið út um lúguna „Já, og oft hef ég séð hér á planinu síðla nætur þar sem strákur og stelpa eru saman á spjalli og labba síðan heim. Já, ég hef svo oft séð fyrsta kossinn – og sama fólki bregða fyrir með börnunum sínum þegar fram líða stundir. Mannlífið birtist nefnilega í svo mörgum skemmtilegum myndum þegar litið er út um lúguna á Pylsuvagninum.“ Ljósmynd/Guðmundur Karl Pylsukonur Ingunn Guðmundsdóttir (t.h.) ásamt dóttur sinni og meðeiganda, Þórdísi Sólmundsdóttur. Ingunn pylsusali í 36 ár  Selfossborgarinn vinsæll með rauðkáli og súrum gúrkum Hamborgarinn Selfossútgáfan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.