Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Eftir nokkuð hik í innleiðingu sjálfs- afgreiðslukerfa hefur íslensk smá- sala tekið hraustlega við sér og stát- ar nú af óformlegu heimsmeti í fjölda sjálfsafgreiðlustöðva, sé miðað við höfðafjölda. Ívar Logi Sigurbergsson, söluráð- gjafi viðskiptalausna hjá Advania, segir félagið hafa verið leiðandi í þessari tækni hér á landi. Þar á bæ hafi verið fylgst með þessari þróun um árabil. Eftir nokkurn aðdraganda reið Krónan á vaðið í byrjun árs 2018 og síðan fylgdu aðrir smásalar í kjölfar- ið, s.s. Hagkaup, Bónus, Nettó og Krambúðirnar. Vélbúnaðurinn er framleiddur af tæknirisanum NCR en hugbúnaður- inn er þróaður innanhúss hjá Adv- ania og lagaður að íslenskum mark- aði. Ívar segir að fulltrúar NCR séu gáttaðir á þeirri hröðu þróun sem átt hafi sér stað hér á landi. Á tveimur árum hafi sprottið upp 370 sjálfsaf- greiðslustöðvar, sem þeir fullyrða að sé heimsmet. Breytt upplifun viðskiptavina Að sögn Ívars sýna kannanir að langflestir viðskiptavinir taki þessari nýju tækni vel. Þetta er ný og öðru- vísi upplifun frá því að standa í röð við hefðbundinn „beltakassa“, segir Ívar og útskýrir að sjálfsafgreiðsla sé viðbót sem gefi viðskiptavinum aukið svigrúm til að velja hvað þeim hentar hverju sinni. „Mörgum líkar þetta vel sem sést vel í þeirri ásókn sem sjálfsafgreiðsla nýtur á mörgum stöðum.“ Spurður um þau störf sem kunni að glatast, segir hann að með sjálfs- afgreiðslu geti smásalar lagt aukna áherslu á aðra þætti á borð við upp- röðun í hillur, en að auki þurfi við- skiptavinir aðstoð við sjálfsaf- greiðslu. Ívar segir margt spennandi í þró- un afgreiðslukerfa. Markmiðið sé víðast það sama: að fækka snertiflöt- um og tryggja sem auðveldasta af- greiðslu. Hjá Advania sé til skoðunar kerfi sem lætur skanna í hendur við- skiptavina sem annast eigin af- greiðslu beint í kerru. Heimsmet í sjálfsafgreiðslu  Kössum fjölgað mikið á stuttum tíma  Almenn ánægja meðal viðskiptavina Morgunblaðið/Eggert Sjálfsafgreiðsla Margir nýta sér nú þann kost að afgreiða sig sjálfir. aðgengi að þriggja fasa rafmagni í sveitinni. „Með Tjarnavirkjun batn- ar mikið öryggi raforkukerfisins í sveitinni,“ sagði Heimir. „Við sáum það vel síðasta vetur þegar sem mest gekk á í óveðrinu hér á Norð- urlandi hvað það er mikilvægt að hafa traust rafmagn. Bændur úr sveitinni komu í opið hús hjá okkur á sunnudaginn. Þeir voru mikið að ræða þar um rafmagnsöryggis- málin. Þau snúa beint að notend- um.“ saman hér á landi. Virkjunin er að miklu leyti sjálfvirk og er henni fjarstýrt. Rafmagnið fer inn á dreifikerfi Rarik en kaupandi er HS Orka. Tjarnavirkjun er í hópi á ann- ars tugar smávirkjana sem selja HS Orku rafmagn. Rafstrengur lagður í jörð Rafstrengurinn sem flytur raf- magnið var lagður í jörð frá Tjarna- virkjun og að Gnúpufelli fyrir um þremur mánuðum. Um leið opnaðist Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tjarnavirkjun innst í Eyjafjarðar- sveit var tekin formlega í notkun á sunnudaginn var. Uppsett afl virkj- unarinnar er 1 MW og með henni er virkjað rennsli Eyjafjarðarár að 2⁄3 hlutum að jafnaði í lágrennsli þar sem hún rennur um land jarðanna Tjarna, Hólsgerðis, Halldórsstaða og Torfufells. Reiknað er með því að hægt verði að keyra virkjunina á fullum afköstum allan ársins hring. Virkjunin er í eigu Tjarnavirkj- unar ehf. en aðaleigendur félagsins eru hjónin Ágúst H. Guðmundsson og Guðrún Gísladóttir og meðeig- endur þeirra hjónin Heimir Guð- laugsson og Björk Sigurðardóttir. „Það var ótrúleg tilfinning að taka virkjunina í notkun. Ágúst hef- ur verið driffjöðurin í þessu,“ sagði Heimir. „Þetta hefur verið langt ferli. Það var mjög skemmtilegt að sjá þetta verða að veruleika.“ Að miklu leyti sjálfvirk Virkjað fall er um 50 metrar og virkjað rennsli um 2,8 m3/s. Inntaks- mannvirkin eru í landi Tjarna og Hólsgerðis. Stöðvarhúsið stendur í landi Halldórsstaða og þar rennur vatnið aftur í farveg árinnar. Vélbúnaðurinn kom frá Þýska- landi en stjórnbúnaður var settur Ljósmynd/Valgarður Gíslason Tjarnavirkjun Rennsli Eyjafjarðarár virkjað að hluta. Uppsett afl er 1 MW. Kaupandi raforkunnar er HS Orka. Tjarnavirkjun í Eyja- firði tekin í notkun  Bæirnir í sveitinni fá aðgang að þriggja fasa rafmagni Vígsluathöfn F.v.: Kristján Þór Júlíusson ráðherra, Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins, Guðrún Gísladóttir, Ágúst Guðmundsson og Heimir Guðlaugsson frá Tjarnarvirkjun ehf. Eiginfjárstaða ríkissjóðs versnaði um 258 milljarða króna á árinu 2019. Þá jukust langtímaskuldir um 170 milljarða króna milli ára. Þetta kemur fram í ríkisreikningi fyrir árið 2019. Skýra má breytingu í langtíma- skuldum með breyttri meðhöndlun efnahagsreiknings Íbúðalánasjóðs. Eru fjáreignir og fjárskuldir nú færðar á gangvirði sem gerir það að verkum að langtímaskuldir aukast um 170 milljarða króna. Óhagstæð vaxtaþróun hefur gert það að verkum að eigið fé sjóðsins er nú orðið neikvætt um 178 millj- arða króna. Séu áhrif Íbúðalána- sjóðs tekin út fyrir sviga lækkaði nettóstaða langtímaskulda um átta milljarða króna á árinu. Á eiginfjárhlið efnahagsreikn- ingsins hefur framangreind hlut- deild ríkisins í Íbúðarlánasjóði nei- kvæð áhrif um sömu upphæð. Þó munar einnig mikið um breytingar vegna aðlögunar lífeyrisskuldbind- inga. Er þar um að ræða breyt- ingar á reikningsskilaaðferð, en ís- lenska ríkið fylgir aðferðum sem byggja á alþjóðlegum reiknings- skilastöðlum fyrir opinbera aðila, IPSAS. Veldur það því að aðlaga þarf lífeyrisskuldbindingar að stöðl- unum. Slíkt þýðir jafnframt að eigið fé dregst saman um ríflega 83 millj- arða króna milli ára. Leiðrétt eig- infjárstaða stendur nú í 356 millj- örðum króna. Samtals eru langtímaskuldir rík- isins 942 milljarðar króna. Þar eru ekki teknar með inn í reikninginn ófjármagnaðar lífeyrisskuldbinding- ar ríkissjóðs. Langtímaskuldir ríkisins aukast verulega milli ára  Íbúðalánasjóður hefur neikvæð áhrif á skulda- og eiginfjárstöðu ríkisins Morgunblaðið/Ómar Vinna Reikna má með því að mikið fjármagn fari í fasteignir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.