Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Félag eldri Hornfirðinga vígði nú á dögunum nýjan mínígolfvöll á Höfn. Var uppbygging vallarins unnin í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð. Til að gera fram- kvæmdina að veruleika fékk félag eldri borgara styrk frá sveitarfé- laginu. Nam hann um 500 þúsund krónum, en alls verða brautirnar fimm talsins. Nú þegar eru þrjár fullbúnar og ekki er langt þar til síðustu tvær verða sömuleiðis full- gerðar. Brautirnar eru smíðaðar af fé- lagsmönnum og lagði Skinney Þinganes til aðstöðu til verksins. Sveitarfélagið lagði til styrk til efn- iskaupa og undirbyggði svæði fyrir brautirnar. Matthildur Ásmundar- dóttir, bæjarstjóri Hornafjarðar, segir að framkvæmd verkefnisins hafi gengið mjög vel. „Þetta var skemmtilegt frumkvæði frá þeim sem stóðu að framkæmdinni. Svo er auðvitað jákvætt að þetta stuðlar að hreyfingu og eflir hreysti fólks,“ segir Matthildur, en brautirnar eru staðsettar nærri íbúðum eldri borg- ara. Útsýnið frá völlunum er auk þess mjög fallegt, en brautirnar eru staðsettar neðan við þyrlupall skammt frá Heilsugæslunni á svæð- inu. Aðspurð segir Matthildur að að- gangur að völlunum sé gjaldfrjáls. „Fólk þarf bara að taka með sér kylfu og kúlu. Aðgangurinn kostar ekki neitt og það eiga allir að geta komið þarna og nýtt aðstöðuna.“ Brautir Nú þegar eru þrjár fullbúnar en vinna við hinar heldur áfram. Nýr mínígolfvöllur á Höfn í Hornafirði  Gjaldfrjáls aðgangur fyrir alla íbúa Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það hefur verið mjög mikið að gera á tjaldstæðinu og í verslunum á svæðinu. Ferðaþjónustuaðilar eru mjög ánægðir,“ segir Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveit- arfélagsins Hornafjarðar, um mik- inn fjölda ferðamanna í sveitarfé- laginu undanfarnar vikur. Líkt og og víðast hvar á landinu urðu ferðaþjónustuaðilar á Horna- firði fyrir höggi sökum faraldurs kórónuveiru. Lítið var um að vera á svæðinu eftir að veiran tók að breið- ast út. Í kjölfarið var tekin ákvörð- un um að fara í öfluga markaðs- setningu með það fyrir augum að fá Íslendinga til að sækja Hornafjörð heim. „Þetta datt auðvitað allt niður þegar faraldurinn var á fleygiferð. Hins vegar tók þetta að glæðast í byrjun júlí. Við höfum verið að reyna að ná innanlandsmarkaðnum og hann er gjöfulli en ég átti von á. Það er mikið fólk í bænum vegna þess, en að auki eru nokkrir útlend- ingar,“ segir Matthildur og tekur fram að veður á svæðinu hafi verið mjög gott. Það hafi eflaust ýtt undir ferðir fólks til Hornafjarðar. Hafa auglýst innanlands Fram til þessa hefur auglýsingum og annarri markaðssetningu verið beint að Íslendingum. Það kann þó að breytast þegar líða tekur á haustið. „Við höfum sett fjármagn í markaðssetningu hér heima og höf- um séð það borga sig. Við munum setja það inn á erlenda markaði síð- ar,“ segir Matthildur sem hefur þó áhyggjur af haustinu. Mikil óvissa sé fram undan enda er heimsfarald- urinn óútreiknanlegur. „Við vonum að ferðamenn vilji koma hingað í fá- mennið, en við vitum ekkert hvað gerist. Þetta verður alveg örugglega mjög skrýtið ár. Þegar nær hefur dregið áramótum hafa Asíubúar verið að koma hingað og það er ómögulegt að segja hvort þeir komi,“ segir Matthildur. Áhyggjur af haustinu Fjölmörg fyrirtæki á Hornafirði treysta á ferðamennsku og því var ferðamannastraumurinn það sem af er júlímánuði kærkominn. Að sögn Matthildar er ferðaþjónustan ein helsta atvinnugreinin á Suðaustur- landi. „Þetta er á við sjávarútveg- inn. Það eru mörg afþreyingarfyr- irtæki með starfsemi, þar af fjöldi fjölskyldufyrirtækja. Að auki er gisting í kringum það þannig að við höfum áhyggjur af framhaldinu.“ Ferðaþjónustan hefur blómstrað í júlímánuði  Íslendingar fylla skarð erlendra ferðamanna á Hornafirði Hornafjörður » Óvissa er með ferðaþjón- ustu á svæðinu í vetur, en hingað til hafa Asíubúar verið tíðir gestir á Hornafirði. » Ferðaþjónusta á svæðinu tók mikinn kipp við upphaf júlí- mánaðar. Ljósmynd/Sveitarfélagið Hornafjörður Hornafjörður Mikið hefur verið um að vera á svæðinu síðustu vikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.