Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 Umræðan var á hærra plani áðurfyrr, sagði Lára V. Júl- íusdóttir, lögfræðingur og fyrrver- andi framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands, þegar hún var spurð út í ummæli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar og 2. varaformanns ASÍ.    Ummæli Sól-veigar Önnu voru sett fram í kjöl- far þess að Lára lýsti skoðun sinni á kjara- deilu Icelandair og Flugfreyjufélagsins og skýrði lagalega stöðu málsins. Lög- fræðiskýringar Láru hentuðu ekki stétt- arbaráttu Sólveigar Önnu, sem sagði um Láru: „Einn trufl- aðasti meðlimur reykvískrar borg- arastéttar talar úr hliðarveruleika hinna auðugu. Ömurlegt þvaður í ruglaðri manneskju.“    Nú kann að vera að fólk semstarfar með Sólveigu Önnu sé fyrir löngu hætt að veita því athygli hvernig hún talar um menn og mál- efni og kippi sér þess vegna ekkert upp við svo fáheyrð og ósvífin um- mæli.    Það breytir því þó ekki að SólveigAnna gegnir ábyrgðarstöðum, bæði innan Eflingar og innan ASÍ. Ekki hefur orðið vart við að hún iðr- ist orða sinna eða að Efling eða ASÍ hafi fordæmt ummælin.    Þvert á móti hefur Sólveig Annabætt um betur og tekið undir með Ragnari Þór Ingólfssyni að líf- eyrissjóðina eigi að nota í pólitískum tilgangi og að misbeiting þeirra gegn Icelandair sé sjálfsögð. Hún orðar það á sinn máta og segir að það sé „úrkynjun að skilja það ekki“. Sólveig Anna Jónsdóttir Á lægsta plani STAKSTEINAR Lára V. Júlíusdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsráðherra hefur undirritað reglugerð um auknar aflaheimildir til strandveiða á þessu fiskveiðiári. Með reglugerðinni er komið til móts við þá miklu fjölgun báta sem hafa stundað strandveiðar á þessu ári, segir í frétt á heimasíðu ráðu- neytisins. Alls er um að ræða 720 tonn til viðbótar áður útgefnum kvóta og verður heildaraflamagn til strand- veiða á þessu fiskveiðiári 11.820 tonn, sem er það mesta frá því strandveiðar hófust hér við land. Við upphaf strandveiða á þessu fiskveiðiári í maí sl. lá fyrir að tals- verð fjölgun yrði í fjölda báta sem myndu taka þátt í veiðunum. Í maí- mánuði, þegar veiðarnar hófust, voru 590 strandveiðileyfi gefin út hjá Fiskistofu. Samkvæmt samantekt atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins eru nú líkur til þess að það afla- magn, sem ætlað er til strandveiða, muni klárast um komandi mánaða- mót, þegar enn væri mánuður eftir af tímabilinu. Fiskistofa hefði í kjöl- farið þurft að stöðva veiðarnar. Vegna þessa hefur ráðherra tekið ákvörðun um að flytja allar óráð- stafaðar aflaheimildir innan svokall- aðs 5,3% kerfis til strandveiðiflot- ans. sisi@mbl.is Ráðherra eykur strandveiðikvóta  Að óbreyttum kvóta hefðu strand- veiðarnar stöðvast um mánaðamótin Morgunblaðið/Alfons Strandveiðar Kvótinn í ár verður sá mesti síðan slíkar veiðar hófust. Gera má ráð fyrir tveimur hrað- hleðslustöðvum til viðbótar á þjón- ustustöð N1 í Lindum í Kópavogi. Fyrir eru tvær 50kW hraðhleðslu- stöðvar við þjónustustöðina en nú er ljóst að fleirum verður bætt við. Þetta segir Þyrí Dröfn Konráðs- dóttir, markaðsstjóri N1, í samtali við Morgunblaðið. Að sögn hennar hefur stöðvunum verið mjög vel tekið. Þá hefur fjöldi viðskiptavina lýst yfir mikilli ánægju með uppsetninguna. „Við byrjuðum á að setja niður tvær stöðvar, sem var risastórt skref fyrir okkur. Í kjölfarið fengum við alveg frábærar viðtökur og í raun framar björtustu vonum. Við munum síðan fjölga í samræmi við það sem þörf er á,“ segir Þyrí og bætir við að nú geti viðskiptavinir í vildarkerfi N1 nýtt sér þjónustuna. Þannig geti þeir nú notast við greiðslumöguleika fyrir- tækisins. „Við erum með um 70 þús- und manns í kerfinu hjá okkur og nú geta þessir aðilar greitt á hraðhleðslustöðvunum með N1-korti eða lykli,“ segir Þyrí. Nýju hraðhleðslustöðvarnar við Lindir eru þær tólftu í röðinni hjá fyrirtækinu og bætast við þær ellefu sem þar til í byrjun september eru í samstarfi við Orku náttúrunnar. Segir Þyrí að fátt bendi til annars en að þróunin haldi áfram á sama hraða næstu ár. Nú sé til dæmis verið að bíða eftir að byggingafulltrúi gefi grænt ljós á hraðhleðslustöð við þjónustustöð N1 í Staðarskála. „Við erum orkufyrirtæki og ætlum okkur að framleiða þá orku sem viðskipta- vinirnir vilja. Miðað við það sem við sjáum er þróunin á þessu sviði jafn- vel hraðari en við gerðum okkur grein fyrir.“ aronthordur@mbl.is Bæta við tveimur stöðvum í Lindum  Hraðhleðslu- stöðvar N1 hafa not- ið mikilla vinsælda N1 Hraðhleðslustöðvum fyrir- tækisins hefur verið mjög vel tekið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.