Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 ✝ Trausti ÞórStefánsson fæddist í Reykjavik 6. júlí 1974. Hann lést á Landspít- alanum 14. júlí 2020. Foreldrar Trausta Þórs eru Stefán Grímur Ol- geirsson mat- reiðslumaður, f. 14. september 1940, og Bentína Haraldsdóttir umsjónar- maður, f. 29. september 1944, d. 24. desember 2018. Þau slitu samvistir. Alsystir Trausta Þórs er Elva Dís Hekla leikskólaliði, f. 1970, ardóttur veitingamanni og eiga þau fjögur börn; Stefán prentari, f. 1966, sambýliskona hans er Rannveig Þórarinsdóttir við- skiptafræðingur, f. 1969. Stefán á þrjú börn frá fyrra hjónabandi og Rannveig tvö. Trausti Þór ólst upp í Kópa- vogi og bjó þar alla tíð. Hann gekk í Digranesskóla og stundaði nám í Fjölbrautaskóla Garða- bæjar. Hann starfaði hjá Árvakri og Aðföngum stærstan hluta starfsævi sinnar. Trausti Þór hafði yndi af hjól- reiðum og hvers kyns menningu. Hann hafði dálæti á lestri góðra bóka og ferðaðist víða um heim, sér í lagi í þeim tilgangi að sækja leiksýningar og skoða söfn. Síðustu þrjú ár ævi sinnar barðist Trausti Þór hetjulega við krabbamein. Útförin fer fram frá Digra- neskirkju í dag, 22. júlí 2020, klukkan 13. gift Rósmundi Erni Sævarssyni verk- stjóra, f. 1970. Börn þeirra eru Róbert Leó, f. 1990, Sylvía Rún, f. 2000, Sævar Örn, f. 2001, og Guðjón Darri, f. 2008. Systkini Trausta Þórs, samfeðra, eru: Ingigerður leik- skólastjóri, f. 1963, gift Gunnsteini Sigurðssyni kennara, f. 1964, og eiga þau tvær dætur. Gunnsteinn á tvö börn frá fyrra hjónabandi; Karl Víkingur veitingamaður, f. 1964, kvæntur Unni Örnu Sigurð- Trausti Þór, í dag er ég að kveðja þig elsku litli bróðir og það er svo erfitt. Þú varst svo góður bróðir. Þegar við vorum lítil fékk ég þig til að leika við mig í barbie eða mömmó og aldrei sagðir þú nei við mig. Við vorum búin að sturta öllu dótinu í holinu heima í Stórahjallanum, þig langaði að leika í bíló en mig langaði að halda áfram í barbie og þú mótmæltir mér aldrei, ekki man ég til þess að ég hafi farið í bíló með þér. Þú reyndist mér best þegar ég gekk með Róbert Leó, þá bjó ég heima með þér og mömmu. Eina nóttina vaknar þú og sérð að ég er vakandi og spyrð hvað ég sé að gera á fótum. Ég svara að ég geti ekki sofið, þá komstu og settist hjá mér og byrjaðir að róta í hárinu á mér, sem varð til þess að ég steinsofnaði. Þetta gerðir þú alla meðgönguna. Þegar ég eign- aðist Róbert komstu í pabbatím- ann því mér leið svo illa yfir hvað það komu fáir í heimsókn á þess- um tíma og ekki vildir þú að mér liði illa, svona varst þú. Þegar ég kom heim af spítalan- um varst þú svo hjálpsamur þar sem ég var ein og litli drengurinn minn átti ekki pabba sem var til staðar. Þá komst þú í hans stað og gekkst elsku Róberti Leó mínum í föðurstað fyrstu árin hans. Við vorum svo góðir vinir, við reyndar misstum tengslin eftir að ég gifti mig en þegar mamma lést fund- um við aftur þessa dýrmætu vin- áttu okkar. Þegar þú greindist aftur með krabbamein pössuðum við okkur að vera í góðu sambandi og end- uðum alltaf samtölin okkar á „ég elska þig“. Þú varst hetja í þess- ari baráttu og kvartaðir aldrei. Ef ég spurði hvernig þú hefðir það fengum við alltaf jákvætt svar til baka. Þú sagðir okkur aldrei ef þér leið illa eða varst hræddur, við reyndar sáum það á þér þegar við hittum þig en þú vildir ekki að við hefðum áhyggjur af þér. Nú ertu farinn og það er svo sárt að hugsa til þess að ég heyri ekki í þér aftur en ég veit að þú ert á betri stað þar sem engir verkir eru. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér þegar þú yfirgafst þetta líf. Takk fyrir allt elsku bróðir. Þín systir, Elva Dís. Elsku Trausti minn. Í dag er dagur sem ég hefði aldrei viljað upplifa og það er kveðjustund. Þú veist ekki hversu mikið ég sakna þín elsku frændi minn. Við áttum svo margar skemmtilegar stundir saman og það er svo skemmtilegt hvað við smullum saman. Við gát- um spjallað um allt, hvort sem það var fyndnar fylleríssögur eða gráta og spjalla um ömmu eftir að hún féll frá. Það sem mér fannst svo merki- legt við þig og það sem ekki marg- ir veltu fyrir sér er hversu list- rænn þú varst, þú elskaðir að spila á hljómborð og píanó og það er nokkuð sem við gátum spjallað um þar sem við höfðum bæði áhuga á því og þú hafðir svakaleg- an áhuga á tónlist og gast hlustað á allt. Við ræddum mikið um hvaða tónlist við elskuðum, þú Megas og ég Bubba. Ljóð er eitt- hvað sem rennur í ættinni og við elskuðum að tala um góð ljóð og tilvitnanir, tala nú ekki um ef það var eftir Shakespeare. Þitt mesta áhugamál var að hjóla og ég veit að þig langaði til að taka þátt í hjólreiðakeppni í út- löndum, dugnaðurinn í þér þegar kom að því að hjóla var svakaleg- ur þar sem þú hjólaðir allt. Þú varst áhugasamur um að ferðast og gerðir mikið af því og ég elskaði að heyra sögurnar frá ferðalögum þínum. Þú varst svo framkvæmdasamur, þú gerðir bara það sem þig langaði að gera, ef þig langaði til útlanda þá fórstu bara til útlanda án þess að hugsa tvisvar um það. Þú elskaðir að ferðast með lest og stundaðir það mikið, bakpokaferðir voru í miklu uppáhaldi hjá þér og við vorum búin að plana eina saman sem varð aldrei en við förum saman í anda. Eftir að þú greindist með krabbamein barðist þú eins og hetja fyrir lífi þínu og ég er svo þakklát að hafa fengið að berjast með þér til enda. Þar til næst. Þín litla frænka, Sylvía Rún. Ég minnist elskulegs vinar míns Trausta. Ég kynntist honum í gegnum bróður minn og strax við fyrstu kynni var ég þakklát fyrir að hafa kynnst þessum frá- bæra manni sem ég hef getað kallað góðan vin minn alla tíð síð- an. Manni leið alltaf vel í návist Trausta. Það var svo áreynslu- laust og gott að hitta hann, hann var alltaf einlægur, alltaf úrræða- góður og alltaf var hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Skemmtilegast var samt að hlusta á góða tónlist með hon- um, hlæja og hafa gaman. Eftir að stelpurnar okkar Pét- urs fæddust kom Trausti ávallt færandi hendi í heimsókn til okk- ar. Hann var svo lunkinn við að gefa þeim gjafir sem hittu beint í mark og auðvitað var hann í miklu uppáhaldi hjá þeim. Þetta lýsir Trausta kannski best. Hann vildi öllum svo vel. Það var aldrei neitt vesen, heldur bara manngæska, örlæti og hlýja sem einkenndu Trausta okkar. Ég kveð þig elsku vinur – en minning þín lifir í hjörtum okkar sem vorum svo heppin að fá að þekkja þig. Við Pétur vottum fjöl- skyldu og aðstandendum okkar innilegustu samúð. Þín vinkona, Aðalheiður (Heiða). Það sem gefur lífinu gildi er fólkið sem við kynnumst á lífsleið- inni. Á þriðjudaginn í síðustu viku bárust mér þær sorgarfréttir að Trausti vinur minn væri fallinn frá aðeins 46 ára að aldri. Ég hafði heimsótt hann um þremur vikum áður en þá benti ekkert til þess að hann ætti svo stutt eftir. Trausti horfði nokkuð jákvæður fram á veginn og ætlaði að njóta lífsins – einn dag í einu. Hann hafði átt við erfið veikindi að stríða í nokkur ár sem hann háði hetjulega baráttu gegn. Frá fyrsta degi hafði hann tekið veik- indunum af þeirri yfirvegun og æðruleysi sem Trausti hafði tam- ið sér en því miður tapaðist sú barátta. Á svona stundu reikar hugur- inn til allra þeirra góðu stunda sem við áttum saman. Kynni okk- ar Trausta hófust fyrir um 30 ár- um. Báðir vorum við úr Kópavogi og þar höfum við báðir búið síðan þá. Það hefur ávallt verið stutt á milli heimila okkar og rölti ég oft í gegnum árin í heimsókn til hans í Hamraborgina þar sem við rædd- um saman, hlustuðum á tónlist og horfðum stundum á fótboltaleiki. Trausti var mikill tónlistarunn- andi og með fjölbreyttan tónlistarsmekk. Á fullorðinsaldri lærði hann að spila á píanó í nokk- ur ár til að geta spilað lög sem hann hafði dálæti á. Í heimsókn- um mínum til hans í Hamraborg- ina fékk ég oft að heyra lög sem hann hafði uppgötvað og nýjar út- gáfur af lögum sem við héldum báðir upp á. Tónlistarsmekkur okkar var svipaður og við fórum saman á ótal tónleika í gegnum árin. Það er mér sérstaklega minnisstætt þegar við fórum sam- an á tónleika í Glasgow. Í þeirri ferð komst ég að því hvað Trausti var góður og þægilegur ferða- félagi og með alveg einstakt lag á að finna réttu kaffihúsin og veit- ingastaðina. Mér þykir afar vænt um þessa ferð til Glasgow og er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast ferðafélaganum Trausta. Trausti var ekki bara vel að sér í tónlist heldur hafði hann mikið dálæti á kvikmyndum og bók- menntum. Samtölin okkar gátu snúist um alla þessa hluti og yfir- leitt varð maður einhvers vísari eftir heimsókn til Trausta. Nú kveð ég einstaklega góðan vin með miklum söknuði. Það er erfitt að hugsa til þess að geta ekki lengur farið í heimsókn til hans til að hlusta á tónlist og spjalla saman. Ég votta fjölskyldu og vinum Trausta mína innilegustu samúð, minning um góðan vin mun ávallt lifa. Hrafnkell Erlendsson. Trausti Þór Stefánsson  Fleiri minningargreinar um Trausta Þór Stefánsson bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar, bróður, mágs og frænda, SIGURBJÖRNS M. THEODÓRSSONAR vélstjóra, Heimagötu 37, Vestmannaeyjum. Theodór S. Ólafsson Margrét Sigurbjörnsdóttir Þorbjörg Theodórsdóttir Haukur Logi Michelsen Hafþór Theodórsson Hanna R. Björnsdóttir Júlíanna Theodórsdóttir Ingólfur Ingólfsson Bára Theodórsdóttir Tommy Westman Björk Theodórsdóttir Harpa Theodórsdóttir Örvar G. Arnarson og fjölskyldur Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, MÁLFRÍÐAR EMILÍU BRINK, Súsý, Tröllakór 8, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 10. júlí. Við viljum færa sérstakar þakkir til starfsfólks á deild L4 á Landakotsspítala og Skógarbæ fyrir hlýja og góða umönnun. Rúnar Sigurðsson Björn M. Sveinbjörnss. Brink Tinna Dahl Christiansen Einar Freyr Sveinbjörnsson Sukanya Nuamnui John Arnar Sveinbjörnsson María Katrín Sveinbjörnsdóttir Sveinbjörn Sophus Björnsson Jóhann Sophus Björnsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÍMON GUÐMUNDSSON, skipstjóri og stýrimaður, Sjafnarbrunni 1, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fimmtudaginn 16. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. júlí klukkan 13. Guðmundur Símonarson J. Helena Jónsdóttir Maríanna Olsen Jóhann Reynisson Gísli Birgir Olsen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og tengdasonur, ANDRÉS INDRIÐASON lést föstudaginn 10. júlí. Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 28. júlí klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Grund. Valgerður Ingimarsdóttir Ester Andrésdóttir Ásta Andrésdóttir Örn Úlfar Sævarsson Vala Melkorka, Laufey Matthildur, Högni Dagfinnur Ingimar G. Jónsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GEORGSSON, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, lést 14. júlí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 23. júlí klukkan 15. Erla Sigurðardóttir Ingólfur Örn Arnarson Björn Grétar Sigurðsson Kristín Sesselja Róbertsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KAMILLA GUÐBRANDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 14. ágúst klukkan 13. Olga Hafberg Björn Rögnvaldsson Einar Skúli Hafberg Hrannar Már Hafberg Rebekka Helga Aðalsteinsd. Júlíanna Ósk Hafberg Svavar Skúli Einarsson Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 19. júlí. Útför verður auglýst síðar. Sigurbjörg Lundholm Þórir Ólafsson Ísidór Hermannsson Steinn Lundholm Erla Elva Möller Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, HILMAR SNORRASON bifreiðastjóri, lést á Sæborg, dvalarheimili aldraðra, 18. júlí. Útför fer fram frá Blönduósskirkju laugardaginn 25. júlí klukkan 14. Sigurður Pétur Hilmarsson Lýdía Kristín Sigurðardóttir Guðmundur Þórisson Steinunn Lukka Sigurðard. Serkan Mermer Vilhjálmur Hilmar Sigurðars. Joke Michiel og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.